NT - 31.08.1984, Blaðsíða 2
CD
■ Frá Stéttarsambandsfundinum á ísafirði. Ingi Tryggvason formaður sambandsins í ræðustól en aðrir í forsæti eru Gunnar Guðbjartsson
lengst til vinstri og Jón Helgason landbúnaðarráðherra. NT-mynd Finnbogi
Bændur funda á ísafirði:
Óánægðir með
fjölmiðlana
■ Megn óánægja með um-
fjöllun fjölmiðla um málefni
bænda kom fram á aðalfundi
Stéttarsambandsins sem haldinn
er á ísafirði þessa daga. Þá var
ennfremur hart deilt á þá sam-
keppni sem afurðasölufyrir-
tækjum landbúnaðarins hefur
verið veitt með afskiptum
einkaaðila af kartöiluinnfiutn-
ingi og beinni afurðasölu frá
bændum. Ennfremur komu
skipulagsmál Stéttarsambands-
ins til umræðu en þar hefur lengi
verið óánægja meðal ýmissa sér-
greinasambanda sem ekki telja
hag sínum nægilega vel borgið
innan Stéttarsambandsins.
A fundinum höfðu fulltrúar 8
sérgreina af 11, fulltrúa sinn en
þeir hafa þar málfrelsi og til-
lögurétt. Stóðu umræður um
þessi mál enn yfir í gærkvöldi.
Annað umræðumál gærdagsins
var eins og fyrr segir samkeppni
við innlenda aðila sem keppa
við Grænmetisverslun ríkisins.
í ræðu sem landbúnaðarráð-
herra hélt deildi hann mjög hart
á þessa aðila og sagði meðal
annars:
„Við hljótum að dást að
glöggskyggni hins fræga rithöf-
undar á mætti múgsefjunarinnar
í sögu hans um nýju fötin keisar-
ans, þegar kaupmaður getur í
dag fengið fjölda manns til
að tyggja eftir sér að kartöflur,
sem hann hefur hellt úr poka í
trog úti í horni verslunar sinnar,
séu frjálsar. Það er haldið uppi
látlausum rógi og svívirðingum
um þá, sem vilja vinna að hag-
kvæmni og skipulagningu á
þessu sviði. Það hlýtur að vakna
spurning um það, hvernig er
háttað hugarástandi þeirra, sem
senda frá sér og birta auglýsingu
með spurningunni „ertu með
réttu ráði eða framleiðsluráði?“
Getur fjölmiðill gengið lengra
með svívirðingu um heila stétt
með ummælum um stofnun sem
lögum samkvæmt byggist á
heildarsamtökum hennar, eða
hvernig er sá dómur, sem þessir
aðalfundur Stéttarsambands
bænda fær...“ í framhaldi af
þessu hvatti Jón bændur til sam-
stöðu og nefndi í því sambandi
að frelsi kartöflubænda yxi ekki
við það að hver bóndi keyrði
sínar kartöflur sjálfur milli
verslana og að þeir byðu vöruna
niður hver fyrir öðrum.
Aðalfundurinn stendur alla
helgina og er búist við miklum
umræðum um framtíðarskipu-
lag landbúnaðarins í kjölfar til-
lagna sjö manna nefndar sem
nýlega voru kynntar. Sagði
Guðmundur Stefánsson, starfs-
maður Stéttarsambandsins, með-
al annars í samtali við blaða-
mann NT þar vestra að slíkt
væri nauðsynlegt til þess að
tryggja bændum og samtökum
þeirra starfsfrið og létta af þeirri
óvissu sem nú er þegar menn
tala meðal annars um að kippa
útflutningsbótum burt í einu
vetfangi.
Fjörutíu fulltrúar eru
á fundinum, 39 karlar og ein
kona, Halldóra Ját varðsdóttir
frá Miðjanesi í Reykhólasveit.
Þá hafa makar fundarfuiltrúa
fjölmennt á fundinn og skipa
ásamt öðrum gestum um fimm-
tíu manna hóp. Fundurinn fer
fram í húsnæði Menntaskólans
á Isafirði.
Föstudagur 31. ágúst 1984 2
Fagmenn brjótast inn í vídeóleigu:
Hirtu 70 spólur
ogsjovideotæki!
■ „Þetta er rosalegur pening-
ur, 40 þúsund hvert tæki og svo
að minnsta kosti 60 til 70 vídeó-
spólur sem þeir tóku“, sagði
Þórarinn Jónasson eigandi
Myndbandalagsins í Mosfells-
sveit en í fyrrinótt var brotist
þar inn og tekin sjö vídeótæki
og vídeóspólur. Alls mun tjónið
nema hundruðum þúsunda
króna.
„Þetta voru greinilega fag-
menn að verki og það var ekkert
um skemmdarverk. Lögreglan
var líka að tala um það og að
hér hefði verið að verki grúppa
úr bænum sem þeir hafa ekki
ennþá getað haft uppá“, sagði
Þórarinn ennfremur. Við inn-
brotið var farið inn í vörugeymslu
Kaupfélagsins sem er sambyggð
húsi vídeóleigunnar bakatil og
rofinn milliveggur á mjög snyrti-
legan hátt.
Myndbandalagið var stofnað
um síðustu áramót og kvað
Þórarinn reksturinn hafa gengið
mjög vel til þessa.
■ Sólfari í ísafjarðarhöfn í gærdag. NT-mynd: Finnbogi.
Óhappið á Sólfara:
Boxaloksfesting losnaði
og lestin fylltist af sjó
■ Orsakir óhappsins er Sólfari
AK var hætt kominn út af Horni
í fyrradag, voru þær, að lest
bátsins fylltist af sjó. Kom þetta
fram í sjóprófum, sem haldin
voru á ísafirði í gær.
Sólfari komst fyrir eigin vélar-
afli í var við Hornvík eftir
óhappið og fylgdu honum fjórir
bátar. Þegar dælt hafði verið úr
lestinni, var haldið til ísafjarðar
og komið þangað um hádegis-
bilið í gær. Engar skemmdir
urðu á bátnum.
■ Bjóðendur og umboðsmenn þeirra fylgdust spenntir með, þegar ■ Fulltrúar Landsvirkjunar ganga úr skugga um, að tilboðin séu
tilboðin í Blönduvirkjun voru opnuð í gær. eftir settum reglum, áður en þeir lesa þau upp.
■ Það var engu líkara en það væri bögglauppboð í Súlnasalnum,
þegar tilboðin í Blönduvirkjun voru opnuð í gær. NT-myndir Róbert
Tilboð í Blönduvirkjun opnuð:
Júgóslavar með lægstu tilboðin
Bjóða I allt verkið fyrir 68,3% af áætluðum kostnaði
■ Það ríkti rafmögnuð spenna
í Súlnasal Hótel Sögu í gær,
þegar forráðamenn Landsvirkj-
unar opnuðu rúmlega 80 tilboð
í 6 verkþætti Blönduvirkjunar,
að viðstöddum umboðs-
mönnum bjóðenda.
Júgóslavneska fyrirtækið
Ingra Group átti lægst tilboðið í
verkið í heild, rúmlega 464
milljónir króna, sem er 68.3%
af áætluðum kostnaði verk-
fræðinga. Samsteypa fyrirtækja
frá Austurríki, Vestur-Þýska-
landi og Sovétríkjunum bauð
einnig í heildarverkið og hljóð-
aði tilboð hennar upp á 697
milljónir króna. Aætlaður
kostnaður verkfræðinga fyrir
verkheildina er 680 milljónir
króna.
Júgóslavneska fyrirtækið átti
lægsta tilboð í 3 einstaka verk-
þætti; í vatnshverfla, vélarloka,
rafala og fylgibúnað; í lokubún-
að; og í þrýstipípur. í aðra þætti
komu lægstu tilboðin frá tveim-
ur frönskum fyrirtækjum og
loks öðru júgóslavnesku.
Nokkur íslensk fyrirtæki
buðu í einstaka verkþætti, ýmist
sér eða í samvinnu við önnur
fyrirtæki, íslensk og erlend.
Þannig var Vélsmiðja Orms og
Víglundar með 3. lægsta tilboð-
ið í lokubúnað; og íslensk fyrir-
tæki og svissneskt 4. lægsta.
Framleiðslusamvinnufélag iðn-
aðarmanna átti 3. lægsta tilboð-
ið í þrýstipípur og í sama þátt
áttu Stálvík, Slippstöðin, Þor-
geir og Ellert og svissneska
fyrirtækið Vevey Engineering
Works, 4. lægsta tilboðið; og
Slippstöðin átti 7. lægst tilboðið
í lyftikrana.
Landsvirkjun á nú eftir að
bera saman öll tilboðin og
kanna hvort farið hafi verið
eftir útboðslýsingum og hvort
búnaður uppfylli þær kröfur,
sem gerðar eru til hans. Það
verður því ekki ljóst fyrr en eftir
2-3 mánuði hvaða tilboðum
verður tekið.