NT - 31.08.1984, Síða 6
fcVft*
dá\^
Ragnhildur
„Ætlar
menntamálaráðhcrra að ganga
þannig frá menntakerfi
landsmanna að ekki standi
steinn yfir steini þegar hún
skilar af sér?“ spyr
Alþýðublaðið í nokkurs konar
forsíðuleiðara í gær. Þar er
fjallað um stjórn liennar á
menntakerfinu síðustu vikur
og mánuði, sem blaðinu þykir
ráðherra hafa farist illa úr
hendi. „Daglegastreymainná
blaðið ályktanir frá hinurn og
þessum liópum sem tengjast
menntamálum landsmanna á
einn eða annan veg. Það er
sameiginlegt með öllum
þessum ályktunum að þær eru
mótmæli gegn
niðurrifsstarfsemi Ragnhildar
Helgadóttur," segir blaðið.
- Alþýðublaðið (Reykjavík)
■ Hér má sjá að báturinn er
vel búinn siglingatækjum. Efst
eru tveir dýptarmælar, annar
til notkunar á hægri ferð, en
hinn þegar allt er á fullu.
Tækið vinstra megin við stýrið
er lóran, sem gerir alla sigl-
ingafræði einfaldari. Hægt er
að stilla inn áæltunarstaðinn,
fá stefnuna útreiknaða og síð-
an lætur tækið vita ef farið er
út af stefnunni.
Höfn:
Humar
vertíð
lokið
Lóðir í
Garðabæ
Morgunblaðið vekurathygli
á því í frétt í gær að nýverið
hafi verið auglýstar
byggingarlóðirí Garðabæ. Um
eraðræða 18 einbýlishúsalóðir
og 20 raðhúsalóðir. Hér eru á
ferðinni lóðir í svonefndri
Hofstaðamýri nánast í miðjum
Garðabæ. Lóðirnar eru frekar
litlar og er umsóknarfrestur til
7. september. Lóðirnar eru
10-20 metrar yfir sjávarmáli en
landið umhverfis liggur heldur
hærra. Því er útsýni
takmarkað.
Dreifbýlis-
skólarnir
Skólarnir eru nú að hefjast
og eru því gerð myndarleg skil
á Mannlífssíðum Þjóðviljans í
gær. Af því tilefni spjallar
blaðið meðal annars við
Kolfinnu Þorfinnsdóttur
skólastjóra Kiðhamraskóla í
Geithellnahreppi. í
Kiðhamraskóla eru 17
nemendur og stendur rekstur
skólans í járnum, enda erfitt
fyrir 20 heimili að standa undir
þessum rekstri að miklu leyti.
„Mér líst mjög illa á þær
hugmyndir að auka
fjárhagslega hlutdeild
sveitarfélaga í skólahaldi,“
segirKolfinna. Hún bætirvið:
„Nú eru gerðar svo miklar
kröfur til skóla og kennslu að
það myndi setja litlu
sveitarfélögin afturúr og
mismuna börnum stórlega.“
- Þjóðviljinn (Reykjavík)
Breiðafjörður:
Fimmta
her-
deildin
■ Ólsarar og fleiri sem
búa við utanvert Snæfells-
nes hafa um nokkurt skeið
haft áhuga á því að komast
á skelfiskveiðar, en hingað
til hafa útgerðarmenn í
Stykkishólmi setið einir að
þeim. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir hafa aðrir ekki
fengið að veiða skelfiskinn
og því meðal annars borið
við að þetta séu hefðbund-
in mið Stykkishólmsbáta.
Þetta eiga nágrannarnir
erfitt með að sætta sig við
og benda á að bátarnir í
Stykkishólmi sæki stíft á
hefðbundin mið annarra
til þorskveiða þegar skel-
fiskveiðinni sleppi. Nú
hefur heyrst að innan
skamms megi búast við 5.
herdeildinni í Stykkis-
hólmsflotanum því til-
teknir útgerðamenn í ná-
grenninu íhugi nú að
kaupa báta úr Stykkis-
hólmi til þess að komast í
skelina.
Því fylgi hins vegar sá
annmarki að þeir verða að
leggja upp í Hólminum.
Föstudagur 31. ágúst 1984 6
■ „Næst á dagskrá hjá okkur
er að byggja upp jákvætt sam-
band við borgaryfirvöld,“
sagði Héðirin Emilsson, for-
maður umhverfisnefndar Snar-
fara, félags sportbátaeigenda.
Snarfari hefur nú fengið að-
stöðu í Elliðárnaustum, við
Elliðárvog. Að sögn Héðins er
þetta í fyrsta sinn í sögu
Reykjavíkur sem smábátaeig-
endur fá fastan samastað.
„Saga félagsins hefur verið
saga hrakninga hingað til, þessi
tíu ár.“
Félagið er búið að koma upp
einni flotbryggju, þar sem
leguaðstaða er fyrir 50 báta, en
á næsta sumri er áformað að
koma upp tveimur bryggjum
til viðbótar, þannig að legu-
aðstaða verði fyrir 150 báta.
Bryggjan var keypt frá Nor-
egi, og var verðið 1-1,5 millj-
ónir króna.
Starfsemi félagsins er fjár-
mögnuð með félags- og aðstöðu-
gjöldum, og kostar 10.000
■ Humarvertíð lauk í
Höfn í Hornafirði 22.
ágúst sl. og varð heildar-
aflinn 234 tonn og 139 kg.
16 bátar lögðu upp á
Höfnog alls fóru þeir í 279
sjóferðir þannig að með-
altalsaflinn í hverjum
róðri var um 0.8 tonn.
Aflahæsti báturinn var
Æskan SF 140 með 22
tonn og 426 kg. í 20
róðrum.
Með humrinum bárust
á land 1000 tonn af fiski og
aðrir bátar hafa landað
455 tonnum.
Ný
rækju-
vinnsla
■ Ný rækjuvinnsla tók
til starfa á Höfn í fyrradag
og var fyrsti aflinn sem þar
var unninn úr Skógey, sem
landaði 1200 kg. á Höfn
deginum áður.
Þrír bátar gera út á
rækju á Höfn og hafa þeir
landað 69‘/5 tonni það sem
af er.
Þrír til fjórir bátar gera
út á fiskitroll frá Höfn en
afli þeirra hefur verið rýr.
Bíða Hornfirðingar eftir
síldinni eins og fleiri
byggðarlög.
Skógarfoss kom með
10.900 tómar síldartunnur
frá Noregi í vikunni svo
greinilegt er að menn
reikna með síldinni í
haust.
Halldór Blöndal
alþingismaður ritar gagnmerka
ferðasögu í íslending fyrir
stuttu þar sem gerð er grein
fyrir sumarferð
sjálfstæðismanna í Hrísey.
Halldór er stemmningsmaður
eins og eftirfarandi klausa úr
greininni ber með sér. „Séra
Kári Valsson var svo
elskulegur að hafa helgistund
fyrir okkur í kirkjunni um
morguninn. Það var hátíðleg
stund. Hún hófst með því, að
Árni Johnsen lék lag eftir
ömmu sína, Klukknahljóm á
gítar. Gullfallegt lag.“
- Islendingur (Akureyri)
Ólafsvík:
Fer nýi togarinn á flakk?
Hátíðleg
stund
■ Hér sést lónið þar sem
áformað er að koma upp
tveimur bryggjum til viðbótar
næsta sumar.
NT-myndir: Sverrir.
■ Svo getur farið að Ólsarar
sjái á bak nýja togaranum
sínum Jökli fljótlega. Togarinn
sem byrjaði veiðar í lok júlí er
nú svo til búinn með þorsk-
kvótann sem var um 270 tonn.
Þessu hefur verið náð inn í 4
veiðiferðum. Nú leitaeigendur
skipsins, útgerðin Hrói, eftir
verkefnum fyrir skipið. Meðal
annars er verið að athuga hvort
hægt sé að fá keyptan veiði-
kvóta í öðrum bvggðarlögum,
en slíkt myndi að líkindum
hafa í för með sér að skipið
þyrfti að leggja aflann upp á
viðkomandi stað. „Það er að
sjálfsögðu hart að þurfa að
grípa til slíks, þegar við sjáum
frammá hugsanlegt verkefna-
leysi í okkar eigin fiskverkun-
arstöðvum,“ sagði Pétur Jó-
hannesson framkvæmdastjóri
Hróa í samtali við NT í gær.
„Við verðum hins vegar að
hugsa um skipið sem er nýtt og
dýrt“ bætti hann við. Pétur
sagði að útgerð skipsins hefði
gengið vel það sem af er og
togarinn reynst einstaklega
vel. Jökull er eitt þriggja skipa
sem voru raðsmíðuð í Pól-
landi. Hin skipin keypti Sam-
tog í Vestmannaeyjum og
heita þau Giedeon ogHalkion.
Einhverjir byrjunarörðugleik-
ar hafa komið í Ijós í útgerð
Eyjaskipanna, aðallega í
sambandi við spilin. Þessa örð-
ugleika hafa Ólsarar hins vegar
sloppið við að sögn Péturs
Jóhannessonar.
■ Jökull var síðastur þeirra
þriggja togara sem pólska skipa-
smíðastöðin afhenti, en hann
hóf veiðar 24. júlí síðast liðinn.
Hann virðist hafa reynst best
þessara þriggja skipa til þessa.
Hér við bryggjuna í Olafsvík
við fyrstu komu til heimahafn-
ar. Vegna verkefnaleysis getur
farið svo að skipið leggi upp
annars staðar í haust.
r