NT - 31.08.1984, Síða 7
Reykjavík:
Bryggjupláss
fyrir 150 báta
næsta sumar
í nýrri aðstöðu Snarfara
krónur á ári að vera félags-
maður og hafa legupláss við
nýju bryggjuna.
A nýju bryggjunni hittum
við Kára Halldórsson, sem á
Örn HF 60, rúmlega þriggja
tonna bát, með öðrum.
Kári sagði að með öllu hefði
báturinn kostað um sjö hund-
ruð þúsund. í bátnum hafa
þeir Kári, og meðeigandi hans
Valdimar, tvo dýptarmæla,
fullkominn Loran, tvær tal-
stöðvar og 165 hestafla vél.
Hann sagði að báturinn
gengi um 37 sjómílur og sagði
að það hefði tekið þá 7 tíma að
sigla til ísafjarðar í sumar.
Þar sem báturinn er nýr,
sjósettur um páskana, er lítill
rekstrarkostnaður á honum,
nema olíukostnaður. Kári sagði
að hægt væri að reikna með um
1 lítra af olíu á sjómílu og þar
sem lítrinn kostaði 10 krónur,
þá væri eldsneytiskostnaður
um 10 krónur á mílu.
Þeir Kári og Valdimar fóru í
ferð í kringum landið í sumar,
og sigldu alls 3000 mílur. Kári
sagði að þetta væri þriðji bátur
þeirra, en fyrst hefðu þeir átt
lítinn gúmmíbát
■ Kári Halldórsson á bát sín-
um Erni HF-60 við bryggju í
Elliðaárnaustum.
Ólafsvík:
Dýr ormatí nsla
■ Stjórnendum fisk-
vinnslunnar Hróa í Ólafs-
vík reiknast til að það hafi
kostað þá um 4 milljónir
króna að hreinsa orminn
úr saltfiskinum sem fram-
leiddur var á vertíðinni
1983. Eins og menn muna
var ákveðið á árinu 1983
að gegnumlýsa og ormtína
allan saltfisk sem þá var til
í landinu.
Fyrir þá hjá Hróa þýddi
þetta að að fara þurfti í
gegnum 900 tonn af salt-
fiski. Petta áætla menn að
hafi kostað þessa einu fisk-
vinnslu um 4 milljónir
króna í vinnulaun, rýrnun
og í vexti vegna þess hve
menn þurftu að sitja lengi
uppi með birgðirnar.
Fróðlegt væri að vita hvað
menn áætli þennan kostn-
að mikinn fyrir alla salt-
fiskverkun landsins.
Við núverandi
bryggju Snarfara
geta um 50
bátar lcgið.
Grundarfjörður: 1 Allt í
„hers höndum“
■ „Það má segja að hér sé allt undir lagt,
enda verið að leggja bundið slitlag á hálfan
bæinn,“ sagði Sigurður Eggertsson sveitar-
stjóri í Grundarfírði er NT ræddi við hann
nú í vikunni. AHs eru það um 30 þúsund
fermetrar af olíumöl sem lagðir verða að
þessu sinni og er áætlað að því verki verði
lokið á sjö dögum (áttundi dagurinn hvíld-
ardagur??).
Ekki er þó þessi framkvæmd eina framtak
sveitarfélagsins nú í sumar. Öðru nær.
Sigurður upplýsti okkur um að fyrr í sumar
hefði verið gengið frá þremur íþróttavölluny
einum handboltavelli og tveimur körfu-
boltavöllum. Þá er einnig verið að steypa
Hrannarstíg, sem er aðalgatan og liggur
niður á hafnargarðinn. Loks má nefna að
nýjum löndunarkrana fyrir smábáta hefur
verið komið fyrir á hafnarbakkanum og
verður hann væntanlega tekinn í notkun
einhvern næstu daga að sögn sveitarstjór-
ans.
Hólabrekkuskóli:
Vill fá reit til gróð-
ursetningar
■ Skólayfirvöld í Hólabrekkuskóla íhugá
að sækja um reit í borgarlandinu til að gefa
nemendum sínum ko'st á að hefja gróður-
setningu. Efst á óskalistanum er réitur við
Elliðaárnar, sem hefur þann kost að vera
nálægt skólanum. Nemendur þyrftu því
ekki að ferðast um langan veg og' hefðu
einnig betri aðstöðú til að fylgjast með
árangri starfs síns. Aðrir reitir, sem einnig
þykja koma til greina eru í Heiðmörkinni og
á Reynisvatnsjörðinni.
BILAKAUP
Borgartúni 1, -105 Reykjavik.
Simar 86010-86030. .
ANDSINS