NT - 31.08.1984, Síða 10
Föstudagur 31. ágúst 1984 10
Næring og
vinnsla
- ný bók um vinnslu
oghollustufæðunnar
■ Dr. Jón Óttar Ragnarsson gluggar í nýju bókina sína.
NT-mynd: Þorfinnur
■ Næring og vinnsla nefnist
nýútkomin bók eftir Jón Óttar
Ragnarsson, matvælafræöing,
Þetta er mikið rit, hátt í 400
blaðsíður að stærð og spannar
yfir flestar fæðutegundir sem
neytt er á íslandi.
Bókin ber greinilega með sér
að vera ætluð til kennslu, því
hver kafli endar á ágripi af inni-
haldi kaflans og spurningum til
upprifjunar.
I bókinni, sem skiptist í 32
fremur stutta kafla er fjallað um
hvernig fæðan verður til og
hvernig hún er meðhöndluð í
vinnslu. Þá eru og hollustu ým-
issa fæðutegunda gerð skil.
Við gerð bókarinnar kveðst
höfundur hafa lagt áherslu á að
gefa stutt og skýr svör við þeim
spurningum sem helst sé álitið að
neytendum séu efst í huga um
það víðfeðma svið sem bókin
spannar.
Nokkrir viðaukar eru aftast í
bókinni með tölulegum upplýs-
ingum fyrir neytendur, þar á
meðal eru næringarefnatöflur
sem ná til 29 næringarefna í yfir
200 fæðutegundum. Töflur þess-
ar ná m.a. yfir allar þær tslensku
mælingar sem nú eru taldar áreið-
anlegar.
í ritinu fjallar Dr. Jón Óttar
ekki einungis um þau fæðuefni
sem yfirleitt eru talin holl heldur
drepur hann einnig á ýmislegt
annað, þar á meðal fjallar hann
nokkuð um áfengi og segir þá
meðal annars:
„Margt er undarlegt í afstöðu
okkar til áfengisins, en skrítnast
er að börn og unglingar skuli
ekki fá fræðslu um þessi efni áður
en þau byrja að neyta þeirra.
Ekki er það síður undarlegt að
hér skuli ekki leyfður bjór á sama
tíma og leyfð eru vín af öllum
gerðum og þar á meðal vín sem
eru margfalt sterkari en bjórinn.
Margt bendir til þess að áfeng-
issýki sé einkum tengd sterkum
drykkjum. Ástæðan er sú að
erfiðast er að hafa stjórn á
vínandámagninu þegar slíkra
drykkja er neytt.“
Til skýringar lesmáli bókarinn-
ar er allmikið af töflum og skýr-
ingarmyndum en auk þess tölu-
vert af ljósmyndum.
Kápu bókarinnar gerði Erna
Ragnarsdóttir en ljósmyndir eru
unnar af Leifi Þorsteinssyni og
Kristjóni Haraldssyni.
SiTRÓNtm EI>U
inzrxzx
GULBÆTUR LÚOA
. SUR-
i ALDIN PLÓMUR
l::Er:
TUN-
KARTOFLUn FISKUR ÞORSKUR
TOMATAR
ZBBZ
EQQJARAUÐUR
nssggz
RARAROAR! Vl'MBEn
SPERGJU. MAÍS
GMEIPALOIN
:znrr::
RAUDROR.’ft SVEPPIP.
~rrr*TTf
HUNANG
:c=zrr:
APPEU5ÍNUF5
rcpun
:nrí::
vttd II.i Sýnislig heistu niafvíela.
■ Ein skýringarmyndanna í bókinni gerir grein fyrir sýrustigi
ýmissa matvæla.
Húseigendur - Framkvæmdamenn
Fjölbreytt úrval af vönduðum hellum í gangstéttir og bílaplön ásamt 2 gerðum af kantsteinum.
Einnig brothellur í veggi og ker. Splittsteinar úr rauðamöl til notkunar innanhúss og utan
í stærðunum 40 x 10 x 10 og 30 x 10 x 7.
œ
Hagstæð greiðslukjör r Fjölritaðar leiðbeiningar
Opið laugardag til kl. 16.
HELLU OG STEINSTEYPAN
VAGNHÖFÐ117
SÍMI30322
REYKJAVÍK
Reynir Kristinsson, tæknifræðingur:
Nær helmings sparnaður í
frágangi steypu utanhúss
■ Gerður hefur verið saman-
burður á hagkvæmni við notk-
un Thoroseal-efna og hefð-
bundinnar notkunar múrhúð-
unar og málningar við frágang
á steinsteypu utanhúss.
Markmiðið með þessari at-
hugun var að gera samanburð
á hagkvæmni þess að nota
Thoroseal-efni til frágangs á
húsum að utan í stað hefð-
bundins frágangs með pússn-
ingu og máhngu.
Upplýsinga í þessa athugun
var aflað frá Múrarafélagi
Reykjavíkur, Málarafélagi
Reykjavíkur, málningarverk-
smiðjum og iðntæknistofnun.
Við útreikning á kostnaði
við hefðbundin múrverk, var
stuðst við niðurstöður úr upp-
mælingum nokkurra bygginga,
og þar á meðal var fjölbýlishús
það sem notað er í viðmiðunar-
tölum Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins fyrir
byggingarkostnað. Samsvörun
úr þessari athugun var mjög
góð, og því ættu þessar tölur
að vera vel viðmiðunarhæfar.
Niðurstaðan varð sú, að múr-
vinna reyndist vera um 8.41
mælieining pr m2 í brúttó
flatarmáli útveggja og hand-
lang 35%. Reiknað var með
sementi um 12,5 kg á m2 og
sandi um 0,25 á m2. Loftblendi
og réttskeiðar voru reiknaðar
sem 1,5% af kostnaðarverði.
Við hraunáferð er viðbótar-
kostnaður í vinnu um 15% og
í efni um 40% ofan á kostnað
við slétthúðun.
Við málningu á útveggjum
var stuðst við niðurstöður
málningarprógramma sem upp
voru gefin af málningarverk-
smiðjunum. Þar sem magn-
tölur voru nokkuð breytilegar,
voru notaðar meðaltölur fram-
leiðendanna. Þannig er gert
ráð fyrir að sléttir nýir fletir
séu málaðir 3 umferðir, að
efnismagn miðað við plast-
málningu sé samtals 0,32 1 á
m2, og að vinna sé 25,2 taxta-
mínútur málara. Reiknaður
kostnaður við heildarfrágang
skv. hefðbundinni aðferð, þar
sem múrhúðun er í flestum
tilfellum valin til að gefa mann-
virkinu ákveðna áferð, en
málning valin til að gefa húsinu
lit og verja múrhúðunina og
mannvirkiðfyrirveðrum. Ekki
var tekið með í dæmið viðhald
málaðra húsa, en endurmáln-
ing húsa kostar um 2/3 af
kostnaði við málningu í fyrsta
sinn.
Ástæða þess að framan-
greindur hefðbundinn frá-
gangur er valinn til saman-
burðar við meðhöndlun með
Thoroefnum, er að með Thoro-
efnum er hægt að velja mis-
munandi áferð flatarins, t.d.
er hægt að fá fram svipaða
áferð og pokapússning gefur,
þar sem borðaför og annað
slíkt kemur í ljós, eða slétta
áferð samsvarandi sléttri múr-
húðun, eða hraun-áferð eins
og með hefðbundinni hraun-
húðun.
Auk þess að gefa mannvirk-
inu ákveðna yfirborðsáferð,
verja Thoroefnin mannvirkið
gegn veðrum og gefa því jafn-
framt Iit. Ástæða þess er að
Thoroefnin eru byggð upp úr
mjög hörðum samvöldum
steintegundum, blönduðum
acrylefnum og mynda því
þunna, sterka steinhúð utan á
mannvirkið.
Kostur þess að nota slíka
steinefna-yfirborðsmeðhöndl-
un er, að með því er tryggt að
viðloðun sé góð, að vatnsþétti-
leiki steypunnar og gufu-
streymiseiginleikar raskist
ekki milli yfirborðs og stein-
steypunnar í mannvirkinu
sjálfu. Ending þessarar yfir-
borðsmeðhöndlunar er því
mun meiri en þegar um hefð-
bundinn frágang er að ræða,
og má einna helst líkja því við
yfirborðsfrágang bygginga eins
og hann var hér áður fyrr, þar
sem hrafntinna, marmarasalli
eða slík hörð efni voru sett í
ytra lag múrhúðunar til að
verja mannvirkið gegn veðrun.
Slík meðferð hefur sýnt sig að
hafa mjög góða endingu og
má í því sambandi m.a. benda
á Þjóðleikhúsið.
Niðurstaða þessarar athug-
unar sýndi, að á verðlagi í júlí
1983, var kostnaður við múr-
húðun og málningu með hefð-
bundinni aðferð um 360 kr. á
m2, en siétt Thoroáferð um
190 kr. á m2, eða um 50%
ódýrari en hefðbundin aðferð.
Við hraunaða fleti reyndist
kostnaður með hefðbundnum
hætti vera um 470 kr. á mJ, en
með notkun Thoroefna um
250 kr. á m2. Verðmismunur
er því hinn sami. (Þegar rætt
er um kostnað við yfirborðs-
meðhöndlun með Thoroefn-
um, hefur verið tekið tillit til
vinnu við vírhögg, hreinsun,
múrviðgerðir á samskeytum og
köntum).
Notkun Thoroefna er ekki
ný hér á landi. Thoroefni hafa
verið notuð á all-margar bygg-
ingar á sh 10 árum, og má þar
m.a. nefna að á þak íþrótta-
hallarinnar í Laugardal var
síðast valið Thoroseal, og utan
á Geðdeild Landspítalans.
Ekki hafa legið fyrir mælingar-
taxtar fyrir notkun Thoroefna,
en nú er unnið að því að finna
mælingartaxta fyrir yfirborðs-
meðhöndlun með Thoroefnum
hjá Múrarafélagi Reykjavíkur.
Þó svo að Thoroefnin séu
innflutt efni, þá er hér ekki
verulegur munur á, varðandi
atvinnusköpun miðað vð hefð-
bundinn frágang, þar sem
vinnan við að blanda efnin og
setja þau utan á mannvirkin
er alfarið unnin af íslenskum
fagmönnum, hinsvegar eru
efnin fljótlegri í notkun og stór
kostur er, að ekki þarf að
meðhöndla hús að utan eins
oft og raun ber vitni þegar um
er að ræða hefðbundinn
frágang.
Komið hefur fram, að ekki
liggi fyrir nægjanlegar athug-
anir hér á landi, á notkun og
endingu málningar og Thoro-
efna utanhúss. Fyrirhugað er
því að gera samanburðarat-
hugun á gæðum yfirborðsmeð-
höndlunar með Thoroefnum
og málningu, þar sem sérstak-
lega verður prófuð viðloðun,
vatnsþéttleiki, gufustreymis-
eiginleiki og ending þessara
efna. Hér er um mjög veiga-
mikið mál að ræða, þar sem
kostnaður íslendinga við við-
hald mannvirkja er all-veru-
legur, og því mikið hagsmuna-
mál að hægt sé að finna ódýra
og endingagóða aðferð við
yfirborðsmeðhöndlun bygg-
inga sem tryggir jafnframt
framangreindar kröfur um við-
loðun, vatnsþéttleika, gufu-
streymiseiginleika og endingu.
Góð ráð
■ í kynningarbæklingi
frá Neytendasamtökun-
um, sem m.a. er dreift á
Heimilissýningunni, er aö
finna eftirtalin „góð ráð
sem vert er að hafa í huga
þegar innkaup eru gerð.“
1) Skrifaðu alltaf minnis-
lista, - hann getur
hangið uppi í eldhúsinu
og á hann má skrifa
jafnóðum og í ljós
kemur að einhverja
vörutegund vantar.
Haltu þig við listann.
2) Skipulegðu matseðil-
inn a.m.k. tvær vikur
fram í tímann og hag-
aðu innkaupunum
samkvæmt því.
3) Kauptu ekki matvörur
út á krítarkort og láttu
ekki skrifa matvörur
hjá þér.
4) Skrifaðu ekki ávísanir
upp á lægri upphæðir
en 1000 kr.
5) Farðu aldrei svangur í
matarinnkaup.