NT - 31.08.1984, Page 15
Föstudagur 31. ágúst 1984 15
Sjónvarp kl. 21.55 á laugardagskvöld:
Við skulum elskast
■ Úr Við skulum elskast.
Marilyn Monroe og Yves Montand í aðalhlutverkum
■ Á laugardagskvöld verður
sýnd bandaríska kvikmyndin
Við skulum elskast, eða Let’s
Make Love. Myndin er frá
1960, og aðalhlutverk leika
Marilyn Monroe, Yves Mont-
and og Tony Randall.
Myndin gerist í New York.
Mark Clemens er aðlaðandi
piparsveinn, einn af fáum mill-
jarðamæringum heimsins.
Hann er heimsborgari en fædd-
ur í Frakklandi, og hefur nú
höfuðstöðvar sínar í New
York.
Dag einn les almennings-
tengslamaður Clemens-fyrir-
tækisins, Mike Jackson, að
æfingar séu hafnar á söngleik
þar sem gera eigi grín að ýmsu
þekktu fólki, þ.á m. Clemens
sjálfum. Hann segir lögfræð-
ingi Marks, John Wales, frá
þessu, en sá á þá ósk heitasta
að Mark hætti að haga sér eins
og hani í hænsnabúi og gifti sig.
Mark og Mike fara í leikhús-
ið og biðja um viðtal við pró-
dúsentinn, Oliver Burton.
Mark er tekinn í misgripum
fyrir leikara, og hann hefur
ekkert á móti því þar sem hann
hefur þegar séð aðalleikkon-
una, Amöndu Dell, og hrifist
af. Hann reynir að vera sniðug-
ur en tekst heldur illa, og
Amanda fær samúð með
honum. Inn í söguna kemur
einnig aðalleikarinn, Tony
Danton, sem er alkohólisti og
er að reyna að sigrast á flösk-
unni.
Síðan gerist það að bankinn
neitar Burton um frekara fjár-
magn og Mike ásakar Mark
fyrir að vera valdur að því.
Mark neitar. Hann skipar síð-
an Wales að fjármagna söng-
leikinn, og segist ætla að giftast
Amöndu.
stórstjarna í Evrópu og hafði
þá átt lög efst á vinsældalistum
í Danmörku, Þýskalandi,
Belgt'u, Hollandi, Frakklandi
og Ítalíu, með lög eins og
Sailor, Romeo, Chariot,
Monsieur og Casanova, svo
aðeins fá séu nefnd. Hún var
vinsælasta söngkona áratugar-
ins 1960-70.
Petula hefur síðan átt fleiri
vinsæl lög (hún á fleiri gull-
plötur en nokkur önnur bresk
söngkona) og fengið fjölda
verölaun, þ.á m. tvö Grammy-
verðlaun, fyrir Downtown og 1
Know A Place, og hin virtu
verðlaun Grand Prix National
du Disque Francais.
Plötur hennar hafa hingað
til selst í meir en 25 milljónum
eintaka.
Meðal laga sem hún flytur í
þættinum eru Downtown,
Don’t Sleep In The Subway,
This Is My Song og Colour My
World.
Sjónvarp kl. 21.00 á laugardagskvöld:
Petula Clark
- 40 ára söngafmæli
Petula Clark og fjnlskylda.
■ Á laugardagskvöld verður
sýndur þáttur með bresku dæg-
urlagasöngkonunni Petulu
Clark. Pættirnir eru reyndar
tveir og er þetta sá síðari. Peir
voru gerðir í tilefni af 40 ára
söngafmæli söngkonunnar.
Hljómleikarnir voru teknir
upp í Royal Albert Hall og það
er Fílharmoníusveit Lundúna
sem leikur undir.
Petula Clark var þegar við
10 ára aldur orðin þekkt
stjarna og lék síðan í nærri 30
kvikmyndum. Hún ferðaðist
um meginland Evrópu þar sem
lag sem hún söng, With All My
Heart, var gífurlega vinsælt á
6. áratugnum. Um 1964 var
hún orðin traust í sessi sem
Sjónvarp kl. 20.35 á laugardagskvöld
Heima er best
Nýr breskur gamanmyndaflokkur
■ Nýr gamanmyndaflokkur
hefst á laugardagskvöld. Nefn-
ist hann Heima er best og er í
sex þátturn. Aðalhlutverk
leika William Gaunt og Patric-
ia Garwood.
Arthur og Beryl Crabtree
hafa verið gift í 24 ár og eiga 4
börn, sem nú eru að fljúga úr
hreiðrinu. Arthur og Beryl sjá
loksins fram á náðuga daga.
En börnin hafa aðrar hug-
myndir og Arthur kemst að
því að það að vera faðir getur
verið lífstíðardómur. í fyrsta
þættinum gerist það helst að
síðasta barnið, Neil 19 ára, er
að fara að heiman. En þá
missirPaul 23áravinnuna,og
Tracy rífst við kærastann.
Tracy er 21 árs. Pau ákveða
bæði að flýja heim í hreiðrið á
ný.
■ Jónas Jónasson,
■ Áttundi og síðasti þáttur
framhaldsleikritsins Gilberts-
málið verður fluttur á laugar-
dag kl. 16.20. Þátturinn heitir
Hinn seki.
í 7. þætti gerðist þetta:
Fabian kveðst búa yfir nýj-
um upplýsingum varðandi
Gilbertsmálið en til þes að
nálgast þær verður Paul
Temple að fara til Reading.
Paul þiggur þó ráð Betty Wa-
yne og fer hvergi. Frú Temple
hittir Reynolds á förnum vegi
og komast þau í kast við
óþekktan ökumann sem reynir
að slasa þau en bæði sleppa
ómeidd. Skömmu síðar kemur
í ljós að Gilbertsmálið tengist
gimsteinaráni sem framið var
fyrir ári og Betty veit meira um
en hún vill vera láta. Loks
leysir hún þó frá skjóðunni og
kemst nú skriður á rannsókn
málsins.
Leikendur í 8. þætti eru:
Gunnar Eyjólfsson, Helga
Bachmann, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Steindór Hjör-
leifsson, Rúrik Haraldsson,
Jón Aðils, Baldvin Halldórs-
son, Benedikt Árnason,
Guðmundur Magnússon og
Pétur Einarsson.
Höfundur leiksins er Francis
Durbridge en Sigrún Sigurðar-
dóttir þýddi. Leikstjóri er Jón-
as Jónasson.
8. þátturverðurendurtekinn
föstud. 7. sept. kl. 21.35.
Útvarp kl. 16.20 á laugardag:
Gilbertsmálið
Síðasti þáttur
Laugardagur
1. september
7.00Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöur-
fregnir. Morgunorö - Rósa Svein-
bjarnardóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Melga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög sjúk-
linga, frh.
11.20 Súrt og sætt. Þáttur fyrir ung-
linga. Stjórnendur: Sigrún Hall-
dórsdóttir og Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.
14.00 Á ferð og flugi. Þáttur um
málefni líðandi stundar í umsjá
Ragnheiðar Daviðsdóttur og Sig-
urðar Kr. Sigurðssonar.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: „Gilberts-
málið“ eftir Frances Durbridge
VIII. og síðasti þáttur: „Hinn
seki“. (Áður útv. 1971). Þýðandi:
Sigrún Sigurðardóttir. Leikstjóri:
Jónas Jónasson, Leikendur:
Gunnar Eyjólfsson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Baldvin Halldórs-
son, Helga Bachmann, Jón Aöils,
Benedikt Árnason, Steindór Hjör-
leifsson, Rurik Haraldsson, Pétur
Einarsson og Guömundur Magn-
ússon.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegistónleikar August
Wenzinger og Hljómsveit Tónlist-
arskólans í Basel leika Sellókon-
sert í D-dúr op. 34 eftir Luigi
Boccherini; Joseph Bopp stj. /
Sinfóniuhljómsveit franska út-
varpsins leikur sinfóniu nr. 2 í
a-moll op. 55 eftir Camille Saint-
Sáens; Jean Martinon stj.
18.00 Miðaftann í garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnjr. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Ævintýrið um hanann Edda
Bjarnadóttir les úr Kantaraborgar-
sögum eftir Geoffrey Chaucer í
þýðingu Helga Hálfdánarsonar.
20.00 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka. Stjórn-
endur: Guðrún Jónsdóttir og Mál-
fríður Þórarinsdóttir.
20.40 Laugardagskvöld á Gili Stef-
án Jökulsson tekur saman
dagskrá frá Vestfjörðum.
21.15 Harmonikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
21.45 Einvaldur í einn dag Samtals-
þáttur í umsjá Áslaugar Ragnars.
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins. *
22.35 Kvöldsagan: „Að leiðarlok-
um“ eftir Agöthu Christie Magn-
ús Rafnsson les þýðingu sina (13).
23.00 Létt sígild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Laugardagur
1. september
’ 16.30 íþróttir Umsjónarmaður Ingólf-
ur Hannesson.
18.30 Þytur í laufi 3. Reimleikar
Breskur brúðumyndaflokkur í sex
þáttum. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.50 Enska knattspyrnan Umsjón-
armaður Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Heima er best (No Place Like
Home) Nýr flokkur. Aðalhlutverk:
William Gaunt og Patricia Gar-
wood. Eftir 24 ár sjá Crabtreehjón-
in loks fram á náðuga daga. Börnin
fjögur eru komin á legg og hverfa
úr föðurhúsum hvert af öðru. En
hjónin komast brátt aö raun um
þaö að foreldrahlutverkinu verður
) seint eða aldrei lokið. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson. /
21.00 Petula Clark-siðari hluti Frá
! tónleikum sem haldnir voru i tilefni
i af 40 ára söngafmæli bresku dæg-
i urlagasöngkonunnar. Petula Clark
1 syngur með Fílharmóniusveitinni
í Lundúnum.
21.55 Við skulum elskast (Let’s
Make Love) Bandarisk bíómynd
frá 1960. Leikstjóri George Cukor.
Aðalhlutverk: Yves Montand, Mari-
lyn Monroe, Tony Randall og Wil-
frid Hyde White. Auðkýfingur af
frönskum ættum fregnar að hann
verði hafður að skotspæni í nýrri
reviu á Broadway. Svo fer að hann
tekur að sér að leika sjálfan sig í
revíunni til að njóta návistar aðal-
stjörnunnar sem heldur að hann
sé fátækur leikari. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir.
00.00 Dagskrárlok