NT - 31.08.1984, Síða 27
Utlönd
Breska verkalýðshreyfingin þingar:
Námamenn kasta
stríðshanskanum
Bríghton-Reuter
■ Breska verkalýðshreyfingin
mun í næstu viku halda allsherj-
arþing í Brighton og er búist við
að þar dragi til mikilla og af-
drifaríkra tíðinda og er jafnvel
talið að verkalýðshreyfingin,
sem síðustu árin hefur verið á
hröðu undanhaldi undan stjórn
Thatchers, geti splundrast á
þinginu.
Eins og kunnugt er er breska
verkalýðshreyfingin klofin í af-
stöðunni til verkfalls kolanáma-
manna, sem nú hefur staðið í
meira en hálft ár og tvívegis
breiðst út til hafnarverka-
manna. Vinstrimenn í verka-
lýðshreyfingunni með hina her-
skáu námamenn í fararbroddi
heimta að verkalýðshreyfingin
styðji verkfall þeirra, en hægri
sinnaðir og hægfara verkalýðs-
foringjar eru hikandi og telja
jafnvel að helsta markmið verk-
falls námamanna sé að fella
stjórn Thatchers, en ekki að
mótmæla fækkun starfa í kola-
iðnaði. Á mánudaginn mun
Arthur Scargill, leiðtogi náma-
manna, ávarpa þingið og fara
þess á leit að það samþykki
ýmsar stuðningsaðgerðir við
námamenn - þar á meðal líklega
allsherjarverkfall í einn dag.
Hægfara verkalýðsforingjar
hafa árangurslaust reynt að
koma á fundi með náma-
mönnum til að ná samkomulagi
um sameiginlega ályktun sem
yrði lögð fyrir þingið, en náma-
menn hafa neitað og vilja heldur
ávarpa þingið milliliðalaust.
Bresk stjórnvöld og verka-
lýðsforingjar óttast mjög að
óeirðir kunni að brjótast út í
hinni friðsælu Brighton í næstu
viku og lögregluliðið þar hefur
verið eflt til að vernda hægri
sinnaða verkalýðsforingja fyrir
aðkasti námamanna, sem búist
er við að muni fjölmenna á
þingið.
Shikkar:
Halda þing í
trássi við bann
■ Fjárreiður Johns Zaccaros, eiginmanns Ferraros varaforsctaefnis, eru mjög til umræðu í
bandarískum fjölmiðlum þessa dagana. í gær ákvað dómstóll að hann skyldi ekki lengur vera
fjárhaldsmaður yfir eignum aldraðrar konu. Þessi mynd er tekin af þeim hjónum og fjölskyldu
þeirra þegar þau héldu upp á 49 ára afmæli Ferraros á dögunum - auðvitað á voða dýrum
veitingastað... Símamynd: POLFOTO.
Zaccaro gerður
fjárhaldsvana
Nýja-Delhi-Reuter
■ Vegatálmar voru í gær sett-
ir upp á vegum sem liggja til
Amritsar, hinnar heilögu borgar
Shikka í Punjab-héraði á Ind-
landi, en leiðtogar Shikka eru
staðráðnir í að hunsa bann ind-
verskra stjórnvalda við heims-
þingi Shikka sem þar á að
hefjast á sunnudag. Stjórnvöld
standa fast á banninu, en
leiðtogar Shikka hafa ítrekað
reynt að fá stjórnina til að
aflétta því og forðast blóðsut-
hellingar.
I dag tekur hæstiréttur Ind-
lands fyrir bænaskjal frá Shikk-
um um að þingið fái að eiga sér
stað.
Eins og fyrr kom fram ljá
æðstuprestar og foringjar
Shikka ekki máls á því að hætta
við þingið, en yfirvöld og lög-
regla hafa reynt að beita ýmsum
meðulum til að hindra fólk í að
komast til Amritsar. 840 fram-
ámenn Shikka hafa verið hand-
Jackson
neitað
um vega*
bréfaáritun
Washington-Reuter
■ Talsmaður Suður-Afrfku-
stjórnar lýsti því yfir í gær að
þarlend yfirvöld hefðu neitað
bandaríska blökkumannaleið-
toganum Jessie Jackson um
vegabréfsáritun til Suður-Afr-
íku. Talsmaðurinn gaf enga
ástæðu fyrir neituninni, en sagði
að Jackson hefði valið sér
óheppilegan tíma til að ferðast
til Suður-Afríku. Hann sagði
þó að ekki væri útilokað að
synjunin yrði endurskoðuð við
hentugleika.
Jackson, sem á þessu ári hefur
heimsott Kúbu, Nicaragua
og E1 Salvador, hefur sagt að
heimsókn sinni hafi veriðætlað að
beina augum heimsins að aö-
skilnaðarstefnu Suður-Afríku-
stjórnar.
teknir síðustu dagana og sam-
göngur við Amritsar hafa verið
rofnar á ýmsum mikilvægum
leiðum. Indversk fréttastofa
skýrði frá því í gær að þrátt fyrir
bann stjórnvalda hefðu um sex
þúsund manns frá nærliggjandi
héruðum verið komin til Am-
ritsar í gær.
Norður-lrland:
New-York-Reuter.
■ John Zaccaro, eiginmaður
Geraldine Ferraro varaforseta-
efnis í Bandaríkjunum var i
gær úrskurðaður frá fjárhaldi
yfir eignum 84 ára gamallar
konu. Það var dómari í New
York ríki sem svipti Zaccaro
fjárhaldinu og gaf honum
tuttugu daga frest til að útskýra
hvernig hann hefði höndlað
fjárreiður konunnar sem dvel-
ur á elliheimili. Ástæðan er sú
að Zaccaro fékk lánaða 175
þúsund dali úr sjóðum skjól-
stæðings síns og fjárfesti þá í
eign fyrirtæki. Dómarinn sagði
að ekki léki grunur á því að
Zaccaro hefði notað féð í
vafasömum eða glæpsam-
legum tilgangi, en að það sé
ófrávíkjanleg regla að fjár-
haldsmaður eigi ekki að nota
fé skjóistæðinga á þann hátt að
eigin hagsmunir geti verið í
veði.
Bandarísk blöð hafa upp á
síðkastið rýnt mjög í fjármál
Zaccaros, sem er lögfræðingur
og fasteignasali, og komist að
þeirri niðurstöðu að þar séu
ýmsar misfellur í bókhaldi,
enda þótt tæpast sé um fjár-
glæframennsku að ræða. Þessi
grandskoðun er talin geta unn-
ið forstetaframboði demókrata
talsvert tjón. Ferraro, sem ér
á kosningaferðalagi í Connect-
icut, gagnrýndi í gær niður-
stöðu dómarans og sagði að
málsmeðferð eiginmanns síns
hefði verið eðlileg og ásetning-
ur hans góður.
Fðstudagur 31. ágúst 1984 27
28 farast
í fellibyl
Manila-Reuter.
■ Að minnsta kosti 28 manns
fórust og meira en 10 þúsund
misstu heimili sín þegar fellibyl-
ur gekk yfir norðureyjar Filips-
eyjaklasans í fyrradag. Flestir
munu hafa farist í skriðuföllum
og flóðum sem gríðarleg rigning
olli. Marcos foresti lýsti í gær
yfir neyðarástandi á svæðinu og
hjálparsveitir munu vera teknar
til starfa.
Bandaríkin:
Meðallaun
hækka
■ Meðallaun 89 milljóna
bandarískra launþega sem eiga
rétt á bótum úr atvinnuleysis-
tryggingum - starfa hjá skráðum
fyrirtækjum - voru á síðasta ári
17.544 dalir eða um 530 þúsund
ísl. kr., samkvæmt upplýsingum
frá bandarísku vinnumálastofn-
uninni. Hækkunin á meðal-
launum var 4.8 prósent frá
árinu 1982.
Stofnunin kannaði einnig í
hvaða fylkjura Bandríkjanna
meðallaun væru hæst og lægst
og var niðurstaðan sú að meðal-
launin voru hæst í Alaska 28.720
dalir á ári (865 þús. ísl.), en
lægst í Suður-Dakota 13.188
dalir (tæpl. 400 þús. ísl. kr.).
Mest höfðu meðallaunin vaxið í
Connecticut um 6.4 prósent og
í New Hampshire um 6.3
prósent. Meðallaun í New York
töldust einnig hafa vaxið um 6.3
prósent og voru 19.694 dalir á
ári (um 600 þús. ísl. kr.). Mest
mun launahækkunin hafa orðið
hjá þeim sem starfa hjá fjár-
málastofnunum, en einnig
munu kjör hafa batnað mjög í
ýmsum þjónustugreinum. Á ár-
inu 1983 mældist 3.8 prósent
verðbólga í Bandaríkjunum.
Mótmælendafangar
í hungurverkfalli
Belfast-Reuter
■ Fjórir fangar af mótmæl-
endatrú eru í hungurverkfalli í
Magilligan-fangelsi í London-
derry á Norður-írlandi og krefj-
ast þess að þeir verði aðskildir
■ Geimferjunni Discovery var loks skotið á loft frá Canareval-
höfða í Flórída skömmu eftir hádegið í gær. Það hefur ekki gengið
áfallalaust að koma þessari nýjustu geimferju í loftið, því þrívegis
hefur fiugtakinu verið frestað vegna bilana í vélarbúnaði og tölvum
og um tíma í gær voru horfur á því að enn yrði að fresta brottförinni
vegna tölvuvandamála. í gær hafði einmitt veríð áætlað að
Discovery færi sína aðra ferð út fyrir gufuhvolfið, en ekki þá fyrstu
eins og raunin varð. Um borð í ferjunni eru sex geimfarar og þrjú
gervitungl sem sett verða á hringsól úti í himingeimi.
Símamynd-POLFOTO
frá samföngum sínum, kaþólsk-
um lýðveldissinnum. Tveir
fanganna hafa ekki neytt fastrar
fæðu í tíu daga, en allir munu
þeir vera við bestu heilsu enn
sem komið er. Upp á síðkastið
hefur oft soðið upp úr milli
kaþólskra fanga og mótmælenda
fanga í fangelsinu. Fangelsis-
málaráðherra Norður-írlands,
Nicholas Scott, hefur þvertekið
fyrir það að fangar verði að-
skildir eftir trúarbrögðum, en
flestum mun í fersku minni
þegar tíu fangelsaðir lýðveldis-
sinnar sveltu sig í hel fyrir
nokkrum árum er þeir voru að
krefjast sérstakra réttinda sem
pólitískir fangar.
Talsmaður varnarsamtaka
Ulster, einnar stærstu hreyfing-
ar mótmælenda, sagði í gær að
einhver yrði myrtur í öryggis-
fangelsum Norður-írlands ef
hóparnir tveir yrðu ekki að-
skildir. „Magilligan-fangelsi er
martröð“, sagði hann, „fang-
arnir hafa mátt sæta barsmíðum
og misþyrmingum þar.“
■ Krístnir hægrimenn í Líbanon syrgöu í gær ákaft leiðtoga sinn
Pierre Gemayel, þótt ekki jafnaðist sorgin á við múgæðið sem greip
um sig þegar sonur hans Bashir var jarðaður. Hér sést sonur hans,
Amin Gemayel forseti, ganga ásamt konu sinni fyrír líkfylgdinni.
Símamynd-POLFOTO
Gemayel borinn
til moldar
Bikfaya-Rcutcr
■ Amin Gemayel, forseti Líb-
anons, gekk í dag fyrír fjöl-
mennri líkfylgd föður síns, Pierre
Gemayels, eins helsta leiðtoga
kristinna hægri manna í Líban-
on um áratuga skeið. Gemayel
var jarðsettur í fjölskyldugraf-
reit í fjallaþorpinu Bikfaya við
hlið sonar síns Bashirs, sem
ráðinn var af dögum 1982.
Meðal þeirra sem voru við-
staddir útförina var hinn sáttfúsi
múhameðstrúarmaður Rashid
Karami forsætisráðherra og
fjöldi leiðtoga kristinna manna,
þar á meðal dr. Elie Karameh,
líflæknir Gemayels heitins og
eftirmaður hans á stóli leiðtoga
Falangistaflokksins.
Hinir herskárri leiðtogar mú-
hameðstrúarmanna voru hins
vegar fjarri góðu gamni og engin
merki sorgar í múhameðstrúar-
hverfum í Beirút, þótt kristni
hlutinn væri skrýddur svörtum
sorgarborðum.
„Við getum verið viss um að
þú skildir okkur eftir í traustum
höndum sonar þíns, Amins,"
sagði biskupinn í Beirút í lík-
ræðunni.
Aðeins fáum tímum eftir að
útförinni lauk hófu hersveitir
kristinna og múhameðstrúar-
manna á nýjan leik að hella
sprengjum hvorar yfir aðrar í
Ltbanonshæðum.