NT - 31.08.1984, Qupperneq 28
_____________________________________________________________________Föstudagur 31. ágúst 1984 28
ift ’ í ' .
W-
m
r> . &&
Vafasamt að republikanar noti
skattamál Ferraros í áróðrinum
Reagan vill ekki mæta Mondale í sjónvarpseinvígi
15% rafmagns
framleitt í
Sovétríkin:
Yoga fyrir geimfara
undir 10. september. Báðir
flokkarnir munu nú búa sig
fyrst og fremst undir höfuðor-
ustuna. Það verður vegið og
metið hvernig málflutningur á
landsfundunum hefur fallið
mönnum í geð og síðan lagt út
af því, sem þykir hafa fundið
bestan jarðveg.
Mondale hefur bæst nokkur
umtalsvarður stuðningur ný-
lega, þar sem Jesse Jackson
hefur lýst við hann eindregnu
fylgi. Sama hefur John Ander-
son gert, en hann kiauf sig úr
flokki republikana fyrir for-
setakosningarnar 1974, og
bauð sig fram sérstaklega og
fékk um 7-8% greiddra at-
kvæða. í prófkjörunum kusu
flestir fylgismenn hans Hart og
sögðust hallast eins mikið að
Reagan og Mondale. Senni-
lega breytist þetta þó, þegar
nær dregur kosningum.
kjarnorkuverum
■ Þótt smíði nýrra kjarn-
orkuvera hafi dregist mikið
saman á síðustu árum er kjarn-
orkuframleitt rafmagn stöðugt
stærri hluti af allri rafmagns-
framleiðslu í heiminum. í ný-
útgefinni ársskýrslu Alþjóða-
kjarnorkustofnunarinnar, sem
er stofnun á vegum Sameinuðu
þjóðanna, kemur í ljós að í
árslok 1983 hafi 12% af öllu
rafmagni í heiminum verið
framleitt með kjarnorku og
því er spáð að á næsta ári verði
hlutfall kjarnorku í rafmagns-
framleiðslu heimsins komið
upp í um 15%.
Frakkland og Belgía eru þau
lönd sem hafa hæst hlutfall af
kjarnorkuframleiddu raf-
magni. í Frakklandi er hiutfall
þess 48% en í Belgíu 45%. En
kjarnorkuvæðing vestrænna
ríkja hefur hægst mikið að
undanförnu og mörg þeirra
telja að rafmagn framleitt með
kjarnorku sé síst ódýrara en
rafmagn framleitt með hefð-
bundnum aðferðum, t.d. með
kolum. Reyndar er ekki að
fullu ljóst hver raunverulegur
kostnaður við kjarnorkuver er
þar sem umhverfisvernd og
geymsla geislavirks úrgangs er
stöðugt kostnaðarsamari.
Það er fyrst og fremst í Asíu
sem verið er að byggja ný
kjarnorkuver um þessar
mundir. Nú þegar er um 40%
af öllu rafmagni á Taiwan
framleitt í kjarnorkuverum og
á meginlandi Kína eru miklar
áætlanir um að reisa kjarnork-
uver til að auka rafmagns-
framleiðsluna. Kjarnorka er
einnig orðin mikilvæg orkulind
í Suður-Kóreu og Japan.
Moskva-Rcuter
■ Tass-fréttastofan hefur
skýrt frá því að hugsanlega verði
yoga hluti af þjálfun sovéskra
geimfara þótt Sovétmenn séu
ekki beint hrifnir af tengslum
yoga við indversk trúarbrögð.
Áhugi sovéskra geimvísinda-
manna á yoga stafar af því að
indverski geimfarinn, Rakesh
Sharma, sem fór út í geiminn
með sovésku geimfari í apríl á
þessu ári, notaði yoga með mj ög
góðum árangri í þyngdarleys-
inu. Svo virðist sem yogaæfingar
Indverjans hafi dregið úr áhrif-
um þyngdarleysis á vöðva lík-
ama hans. Vísindamennirnir
telja að geimfarar geti almennt
beitt yogaæfingum með góðum
árangri til að yfirvinna fyrstu
áhrif þyngdarleysisins á manns-
líkamann.
■ ÞÓTT skoðanakannanir
séu enn mjög hagstæðar Reag-
an forseta og spái honum mikl-
um sigri í forsetakosningun-
um, gætir viss óróleika hjá
republikönum. Þeir óttast, að
eitthvað kunni að koma til
sögunnar, sem geti breytt tafl-
stöðunni.
Þeir vitna m.a. til þeirrar
reynslu, að það reynist oft
erfitt fyrir frambjóðanda, sem
stendur vel í skoðanakönnun-
um um langa hríð að halda því
óslitið til kosningadags. Oft
getur komið sveifla á síðustu
stundu, sem gerir úrslitin
tvísýn.
Þetta óttuðust Nixon og
samstarfsmenn hans fyrir
kosningarnar 1974, þegar
skoðanakannanir spáðu hon-
um glæsilegum sigri. Þess
vegna var gripið til furðulegra
ráða, en örlagaríkast þeirra
var Watergate-ævintýrið.
Verulegur ótti virðist hjá
republikönum við það, að
Reagan geti talað af sér. Hon-
um hættir orðið oft til þess.
Það er því mikil andstaða gegn
þvf hjá republikönum að hann
mæti Mondale í sjónvarpsein-
vígi. Mondale vill hins vegar
ekki hafa þau færri en sex. Það
munu republikanir aldrei fall-
ast á.
REPUBLIKANAR virðast
enn ekki til fulls gera sér ljóst,
hvernig þeir eiga að bregðast
við framboði Ferraros sem
varaforsetaefni demókrata.
Þeir hafa auðsjáanlega ekki
heldur ráðið það við sig, hvern-
ig þeir eiga að nota skattamál
hennar.
Ferraro hagaði sér nokkuð
djarft, þegar hún lýsti yfir því,
að hún væri reiðubúin til að
birta skattaframtal sitt og einn-
ig manns síns. Þar gekk hún
verið löglegt, en viðkomandi
tapaði þó ekki neitt af því.
Þetta mál er ekki endanlega
leyst. Hvernig, sem það fer, er
óvíst, að republikanargeri það
að stóru máli, en noti það
heldur til áróðurs að tjalda-
baki. En óvíst er, að þeir verði
þar einir um hituna. Ýmis
æsifréttablöð eru nú sólgin í
vegna blaðasölunnar, að gera
skattamál Ferrarohjónanna að
sem mestu fréttaefni.
New York Times og fleiri
ábyrg blöð hafa varað við
þessu. Þau telja, að Ferraro
hafi gert svo hreint fyrir sínum
dyrum, að þessum áróðri eigi
að hætta og snúa sér að öðrum
málum.
Ýmsir telja, að það geti
snúist Ferraro til ávinnings, ef
stefnt verði að því að sakfella
hana vegna manns hennar. Þá
muni konur rísa upp og and-
mæla því, að hún sé meðhöndl-
uð öðruvísi en karlframbjóð-
endur.
Ferraro hefur tvívegis haldið
blaðamannafundi um þessi mál
og þótt standa sig þar með
prýði. Hún hefur verið rökföst
og vel að sér eins og lögfræð-
ingi ber að vera, en líka verið
skjót í svörum og orðheppin
eins og reyndur stjórnmála-
maður.
OFT er nokkurt kosninga-
_________________________baráttuhlé eftir landsþing stóru
Geraldine Ferraro hefur staðið sig vel á blaðamannafundum i flokkanna, sem stendur fram
um skattamálin.
niiuji
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Liðsmenn Reagans munu
vafalaust forðast slík úrræði,
en þeir vilja samt vera á verði.
Þótt Mondale þyki ekki vin-
sæll frambjóðandi og tefli oft
af sér, hefur hann sýnt það, að
hann er þrautseigur og getur
sótt sig, ef hann lendir í vanda.
Þetta sýndi hann eftir ósigur-
inn, sem hann beið í prófkjör-
inu í New Hampshire.
Oft gerist það líka, að fram-
bjóðandi, sem stendur lengi
höllum fæti, fær eins konar
samúð og bætist fylgi á þann
hátt. Mikil sigurvissageturlíka
gert menn of sigurvissa og er
þar eftirminnilegast, þegar
Dewey tapaði fyrir Truman
1948.
Allt þetta vilja liðsmenn
Reagans varast. Þeir segjast
að vísu vera bjartsýnir með
réttu, en þó ekki svo, að það
nálgist andvaraleysi.
lengra en áður hafði tíðkast,
því að maki frambjóðanda hef-
ur ekki þurft til þessa að skýra
frá framtölum sínum, þótt
frambjóðandinn gerði það.
Eiginmaðurinn neitaði þessu
því í fyrstu, þar sem það gæti
orðið óþægilegt vegna við-
skiptamanna hans, en hann er
fasteignasali. Hann sá sig þó
um hönd og féllst á að fara eftir
loforði konu sinnar.
Þótt nokkrar misfellur hafi
komið í ljós við skattaframtöl
þeirra, eru engar stórvægileg-
ar, eða saknæmar. Þó er enn
ekki lokið því máli eigin-
mannsins, að hann hafi tekið
skammtímalán af eignum, sem
hann átti að gæta fyrir veika
konu, en borgað aftur með
fullum vöxtum og eigur hennar
hafa aukist verulega síðan
hann tók við þeim. Að öllu
leyti kann þetta ekki að hafa
■ Reagan og Bush eru sigurvissir.
■ Kjarnorkuver á Taiwan. Á næsta ári er reiknað með því að
50-60% af öllu rafmagni á Taiwan verði framleitt í kjarnorkuverum.
Kristnir Filipseyingar
drepa ellefu þorpsbúa
Ozami-Reuter
■ Lögreglan á Filipseyjum
hefur skýrt frá því að félagar
í kristilegum trúflokki, sem
kallar sig Dasdas, hafí ráðist
á þorp í sunnanverðum Filips-
eyjum vopnaðir löngum hníf-
um og drepið þar að minnsta
kosti ellefu manns.
Þorpið, sem Dasdas-trú-
flokkurinn réðst á, heitir
Bonifacio og er í Misamis-'
héraði þarsem kommúnískir
skæruliðar úr Frelsisher al-
þýðunnar hafa bækistöðvar.
Þorpsbúar hafa þótt nokkuð
hallir undir kommúnista en
Dasdas-trúflokkurinn lítur á
það sem heilaga skyldu sína
að berjast gegn þeim.
Árásin á Boniíacio var lík-
lega gerð í hefndarskyni fyrir
árás sem kommúnistar gerðu
á þorp í nágrenninu en í
þeirri árás tóku þeir 6 félaga
í Dasdas-trúflokknum af lífi.