NT - 31.08.1984, Qupperneq 29
Föstudagur 31. ágúst 1984 29
Utlönd
Bokassa
langar
heim
■ Jean Bédel Bokassa, sem
var illræmdur keisari í Mið-
Afríkulýðveldinu, dvelur nú í
Fakklandi og lætur illa af vist-
inni. Að eigin sögn líður honum
eins og fanga í Frakklandi og
langar aftur heim til að krefjast
réttar síns, en hann var settur af
og flúði land árið 1979. Honum
hefur verið leyft að dvelja í
Frakklandi, en er ekki kærkom-
inn gestur - enda fór miklum
sögum af voðaverkum hans á
veldisstóli, þar á meöal má
nefna mannát og fjöldamorð á
hundrað skólabörnum.
En Bokassa vill halda leiðinni
aftur heim oþinni og beitir til
þess ýmsum klækjum. Á dögun-
um var slátrari nokkur handtek-
inn í Menucourt, útborg París-
ar, þegar hann reyndi að verða
sér úti um frönsk skilríki fyrir
mann sem átti að heita Abdel
Kader Mohammed Aloul.
Skarpskyggn skrifstofumaður,
sem virti fýrir sér myndirnar af
Aloul þessum, sá hins vegar að
þar var enginn annar á ferðinni
en sjálfur Bokassa. Slátrarinn
var handtekinn og bíður nú
dóms, en sagði að hann væri að
leggja keisaranum fyrrverandi
lið vegna þess að hann væri
ástfanginn af óskilgetinni dóttur
Bokassa og að skilríkin ættu að
gera Bokassa kleift að hitta
þjóð sína á nýjan leik, helst
með því að snúa aftur til Afríku.
Álitið er að Bokassa, sem býr í
höll nálægt París, muni ekki
þurfa að svara fyrir hlut sinn í
þessu undirferli.
Pess má geta að 1980 var
Bokassa dæmdur til dauða í
Mið-Afríkulýðveldinu að honum
fjarverandi fyrir ýmsa Ijóta
glæpi.
Nýir
olíufundir
í Kuwait:
Kuwait-Reuter.
■ Kuwaitmenn hafa fundið
tvö ný olíusvæði sem tryggja að
þeir geta haldið áfram að fram-
Íeiða olíu í að minnsta kosti 250
ár í viðbót ef þeir auka ekki
framleiðsluna á ári hverju.
Geta framleitt
olíu í 250 ár
Pær olíulindir sem áður voru
þekktar, hefðu enst í um 175 ár.
Nýi olíufundurinn lengir þann
tíma um 75 ár. Nú hafa þannig
fundist samtals 90 til 100 millj-
arðar olíutunna í jörðu í Kuwait
sem gerir Kuwait að mesta olíu-
landi í heimi næst á eftir Saudi-
Arabíu.
Olíuauðurinn hefur gert
Kuwaitbúa að einhverri auðug-
ustu þjóð í heimi. Þeir eru
aðeins 1.670.000 og olían hefur
fært þeim svo mikinn auð að
árið 1981 ákváðu þeir að draga
úr olíuframleiðslunni til þess að
ganga ekki of hratt á þessa
auðlind sína. Nú dæla þeir dag-
lega um 1.05 milljón tunnum
upp úr jörðinni og þeir hafa sett
1.5 milljón tunnur á dag sem
hámark.
Ráðherra
hýddur
— fyrir drykkjuskap
■ íslömsk strangtrúar-
lög eiga nú æ meiri vin-
sældum að fagna meðal
herskárra múhameðstrú-
armanna í Asíu og Afríku.
Súdanska fréttastofan
skýrði frá því í gær að
Mohamed Mahdi Ahmed,
ráðherra húsnæðis- og
þrifnaðarmála þar í landi
til skamms tíma, hefði ver-
ið hýddur opinberlega á
laugardaginn. Glæpur
Mahdi Ahmeds mun hafa
verið drykkjuskapur.
Hann fékk fjörutíu vand-
arhögg.
Borges 85 ára:
Enginn
ættiað
lifa
svona
iengi
■ Argentínski rithöfundurínn, Islands-
vinurinn, ástmaður völundarhúsa, spegla
og skringilegheita Jorge Luis Borges varð
85 ára nú á dögunum. Hann var ekkert
yfír sig ánægður með þessi tímamót og
sagði að sig hefði ekki langað til að lifa
svona lengi, en þó væri ellin honum
„dulbúin blessun“ eins og hann orðaði
það. „Enginn ætti að lifa svona lengi,“
voru orð hans, „en við því er náttúrlega
ekkert að gera.“
Borges, sem hefur verið alblindur síðan
hann var 56 ára, er skiljanlega orðinn gamall
og hrumur, en andinn er þó ennþá kvikur og
hann fer með langa kafla úr verkum skáld-
mæringa og er ekkert farinn að ryðga í þeim
tungumálum sem hann hefur á valdi sínu.
Hann ferðast víða um lönd - gisti ísland
síðast fyrir umtveimurárum-og setur á blað
ljóð, sögukorn og minnist punkta frá ferða-
lögum sínum.
Borges ræddi við blaðamenn í Buenos
Aires á afmælinu og minntist þá móður
sinnar, sem var honum mjög nákomin en
hún dó árið 1976, 99 ára gömul „Hún bað
guð að nema sig burt á hverri nóttu,“ sagði
Borges. „Hún óttaðist það mest að verða 100
ára."
„Ég er hamingjusamari núna en þegar ég
var ungur,“ sagði Borges ennfremur. „Þegar
ég var ungur reyndi ég af fremsta megni að
vera óhamingjusamur eins og Byron og
Hamlet. En í raun og veru var ég auðvitað
ekki vitund óhamingjusamur. Nú reyni ég að
taka hlutunum eins og þeir sækja að -
blindunni, ellinni og veikindunum. I þessu
getur líka verið fólgin fegurð, dulbúin
blessun."
Borges lætur lítið yfir því sem hann hefur
afkastað um dagana, smásögum sínum, ljóð-
um og ritgerðum. „Ég hef skrifað of margar
bækur,“ segir hann og bætir því við að hann
voni að menn fyrirgefi sér og gleymi flestum
bókum sínum. Um frægustu bækur sínar,
smásagnasöfnin Völundarhús og skáldskap,
segir hann að þær séu bæði ofhlaðnar og
ofskrifaðar.
Vestrænir skyrtubol
ir slá í gegn í Sovét
■ Vestræn hugarfars-
mengun hefur löngum ver-
ið sovéskum stjórnvöldum
mikið áhyggjuefni; galla-
buxur, popptónlist, tyggi-
gúmmí og glapsemdir af
þvi tagi. Nú hefur enn
einn ódámurinn bæst við
til að dreifa huga sovésks
æskulýðs frá hinum tæra
kommúnisma. Það eru
áletraðir skyrtubolir að
vestrænni fyrirmynd, sem
nú má sjá hvarvetna í
Moskvu og víðar, í neð-
anjarðarlestum, skemmti-
görðum og á götuhomum,
mjög til hugraunar stjórn-
vöidum.
Nú hefur kommúnista-
flokkurinn ákveðið að
snúa vörn í sókn og byrja
að framleiða skyrtuboli
með uppbyggilegum slag-
orðum, til að mynda bol-
um sem minna á að 40 ár
eru liðin síðan sigur vannst
á herjum Hitlers á næsta
ári. Þetta gæti þó orðið
þrautin þyngri, því gríðar-
leg eftirspurn er eftir
skyrtubolum með vestræn-
um áletrunum, helst á
ensku, og mikið af slíku
framleitt á laun. Vestrænir
fréttamenn í Moskvu hafa
séð ungt fólk flíka áletrun-
um á borð við: „Heldur
dauður en rauður.“ Isvest-
ia, málgagn Sovétstjórnar-
innar brást ókvæða við
þessu og hélt því fram að
fjölmörg ungmenni sem
gengju í slíkum skyrtubol-
um skildu ekki einu sinni
áletranirnar sem þau flík-
uðu á brjóstinu.
## I I I I I
TAKIÐ EFTIR TAKIÐ EFTIR
ÁHUGAMENN UM FERÐALÖG OG 4WD-BÍLA
Nú gefst í fyrsta sinn tækifæri til þess
hérlendis að sjá á einum stað allt hið
besta í framleiðslu 4 WD-farartækja í
heiminum.
Ótrúlegt úrval, ótal gerðir.
Jeppar, pallbílar og aðrir 4WD-bílar
bæði nýir og notaðir til sýnis og sölu.
Einnig verður sýndur sérhannaður fylgi-
og ferðabúnaður fyrir 4WD-bíla.
Látið ekki þetta einstaka tækifæri framhjá ykkur fara. Sýningin stendur aðeins
þennan eina dag, laugardaginn 1. sept. kl. 13.00-17.00.
BILVANGUR Sf=
HÖFÐABÁKKÁ"“9HÍMI 687300
Ibb^bbI Vmm^W mmmmr bhbbbbbbb^
## lll. I >1..
j 1 >L.J ...j
IMVMffMU