NT - 01.05.1985, Side 28
■Ksjærisas'1
CE
tilkynningar
Sumartími
Frá 2. maí til 15. september veröa skrifstofur
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur opnar
frá kl. 8.30 til kl. 16.00 alla virka daga.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Orlofshúsum Sjómanna-
félags Reykjavíkur
veröur úthlutað frá og meö 2. maí n.k. á
skrifstofu félagsins Lindargötu 9. Orlofshús
félagsins eru í Grímsnesi og í Húsafelli.
Stjórnin.
Styrkur til háskólanáms í Kína
Stjórnvöld Alþýöulýöveldisins Kína bjóöa
fram styrk handa íslendingi til háskólanáms
í Kína skólaárið 1985-86. Styrkurinn er
ætlaður til náms í kínverskri tungu og
bókmenntum.
Umsóknum um styrkinn skal komið til
menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík, fyrir 23. maí n.k., og fylgi
staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmæl-
um. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytið,
30. apríl 1985.
Hafnarfjörður
matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er
bent á að síðustu forvöð að greiða leiguna
eru föstudaginn 10. maí n.k.,eftir þann dag
verða garðarnir leigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingur
Sumartími
Við viljum vekja athygli viðskiptavina á því
að frá 1. maí til 1. september verður
aðalskrifstofa okkar opin frá kl. 08:00 til kl.
16:00.
S
BffiinHBániFáiic tsumns
Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055
BI
ÚFTRYGGING
GAGNKWÍMT TRYGGINGAFELAG
TILKYNNING
um breyttan vinnutíma
Frá 1. maí til 30. september verður vinnutíma á
skrifstofu Verslunardeildar Sambandsins í Holta-
görðum hagað þannig:
Opið frá kl. 8.30 til 17 mánudaga og þriðjudaga,
til kl. 16.30 miðvikudaga og fimmtudaga og til kl.
15.30 föstudaga.
Samband ísl. samvinnufélaga
Verslunardeild
Holtagörðum Rvík Sími 81266
Miðvikudagur 1. maí 1985 28
Útlönd
Sameinuðu þjóðirnar:
Flóttakonur fái betri aðstoð
Genf-Reuter
■ Aðstæður flóttakvenna hafa
dregið 20 kunnar konur til sér-
Tíu þúsund
dýrabit í
Kirghizia
Moskva-Reuter
■ Meira en tíu þúsund nianns
urðu að fá læknismeðferð á einu
ári vegna dýrabita í Sovétlýð-
veldinu Kirhizia í Mið-Ásíu
að sögn sovéska dagblaðsins
Sovietskaya Kirghizia.
Tölur blaðsins ná ýfir árið
1983 en að sögn þess stöfuðu
flest bitin af árásum villihunda
sem halda sig í nágrenni við
byggð ból á þessum slóðum.
40% hinna bitnu voru börn og
það varð að leggja þriðjung
allra, sem urðu fyrir bitárásum
dýranna inn á sjúkrahús.
Prátt fyrir aðgerðir stjórn-
valda til að fækka villihundum
virðist þeim fara fjölgandi og
óttast menn nú mjög hundaæð-
isfaraldur þar sem þeim sem
veikjast af hundaæði eftir dýra-
bitin fer fjölgandi.
staks fundar Sameinuðu þjóð-
anna í Genf.
Á fundinum, sem yfirmaður
flóttamannastofnunar Samein-
uðu þjóðanna; Poul Hartling,
boðaði til var skýrt frá því að
flóttakonur yrðu oft fórnarlömb
nauðgara, ruddaskapar,
grimmdar, og vannæringar.
Hartling sagði að á flóttanum
frá félagslegum, stjórnmálaleg-
um og efnahagslegum umbrot-
um liðu konur mun meiri þján-
ingar en karlmenn.
Fundarmenn kröfðust auk-
inna rannsókna og talna og fóru
einnig fram á að flóttakonum
yrði leyft að hafa meiri áhrif á
hjálparstarfið en nú tíðkast.
( skýrslu um víetnamska
„bátafólkið" kemur fram að síð-
ast liðin fimm ár nauðguðu
sjóræningjar 2.400 konum og
um 1000 konum var rænt á hafi
úti.
Næringarfræðingurinn Ang-
ela Berry sagði að könnun á
flóttafólki á landamærum Thai-
lands og Kampútseu sýndi að
80% kvennanna hefðu misst
börn vegna árása skæruliða,
næringarskorts eða sjúkdóma.
Maureen Reagans-dóttir
sagði að þarfir kvennanna fyrir
að læra nýtt tungumál, aka bíl
og vérsla lentu oftast fyrir aftan
þarfir heimilisföðurins. Pær
væru metnar sem annars flokks.
■ Flóttakonur þurfa að líða mun meiri þjáningar en karlkynsfélag-
ar þeirra á flóttanum. Sjóræningjar nauðguðu t.d. og rændu
þúsundum kvenna sem tilheyrðu víetnamska „bátafólkinu“. Hér
bendir ein þeirra sem sluppu á staðinn þar sem sjóræningjar réðust
á bátinn Sem hún flúði í.
Nairobi:
Háskólinnopnaðuráný
- stúdentar verða að lofa öllu fögru
Nairobi-Reuter
Hert eftirlit með
fílabeinsverslun
Buenos Aires-Reuter
■ Á fundi 87 ríkja, sem
eiga aöild að alþjóðasáttmála
um takmörkun verslunar
með sjaldgæfar dýrategund-
ir, var ákveðið að setja á
strangt kvótakerfi fyrir út-
flutning á fílabeini frá Afríku
til að reyna að draga úr
gengdarlausu fíladrápi í álf-
unni.
Ríki þessi halda með sér
fund annað hvert ár og ræða
leiðir til að vernda dýrateg-
undir sem séu í hættu á
útrýmingu. Á fundi þeirra
núna korn m.a. fram að fíla-
drápið hefði leitt til mikillar
fækkunar fíla í mörgum Afr-
íkulöndum. Fækkunin væri
sérstaklega mikil í Súdan,
Chad, og Miðafríkulýðveld-
inu. Hcildarfjöldi fíla í Afr-
íku er nú talinn vera um 1,2
milljónir.
Með útflutningskvóta á
fílabeini vonast menn til að
fílabeinsútflutningur minnki
um 50%, eða niður í um 230
tonn á ári. Sem stendur er
markaður fyrir fílabein í
heiminum talinn nema um
100 milljón dollurum á ári.
Mikið af fílabeininu kemur
úr fílum sem hafa veriö
skotnir ólöglega af veiðiþjóf-
um.
Kvótarnir eiga að ganga í
gildi 1. janúar á næsta ári og
er búist við því að a.nr.k. 14
Afríkuríki setji þá kvóta á
fílabeinsútflutning sinn.
Detroit:
Bílaverksmiðjan AMC
dregur saman seglin
Detroit-Reuler
■ American Motors (AMC)
bílaverksmiðjurnar hafa skipað
öllum sínum deildum að skera
rekstrarkostnaðinn niður um
25%. Nú eru 6.100 manns starf-
andi hjá fyrirtækinu og segja
iðnaðarsérfræðingar að þessi
ákvörðun rnuni hafa í för með
sér að margir þeirra muni missa
vinnuna.
Talsmaður AMC sagði að
þetta skref væri stigið í von um
að draga mætti úr almennum
útgjöldum fyrirtækisins, en
frönsku bílaverksmiðjurnar
Renault eru stærsti hluthafinn í
bílaverksmiðjum AMC. Síð-
ustu fimm ársfjórðungana hefur
rekstur AMC einungis skilað
lágmarks hagnaði og er búist
við að reikningar fyrstu þriggja
mánaða þessa árs sýni tap.
Varaforseti fyrirtækisins,
Jerry Sloan, sagði að nú væri reynt
að draga eins ntikið úr rekstrar-
kostnaðinum og unnt væri en
framleiðslu áætlanir hefðu þó
enn ekki raskast.
Ekki var Iátið uppi hve háar
upphæðir fjórði stærsti bíla-
framleiðandi Bandaríkjanna
telur sig geta sparað á niður-
skurðinunt og Sloan sagðist ekki
liafa neinar tölur um það hve
mörgum hvít-flibba starfsmönn-
uni yrði sagt upp störfum.
Sala á þeim bílum sem AMC
framleiða hefur verið svo léleg
upp á síðkastið að eina verk-'
smiðja þeirra sem framleiöir
■ Ríkisstjórnin í Kenya hefur
sett hinum 2.800 nemendum við
háskólann í Nairobi ströng skil-
yrði fyrir inngöngu í skólann
sem hefur nú opnað á ný tveim-
ur mánuðum eftir uppþot í
skólanum sem olli dauða eins
nemandans.
Stúdentar urðu að undirrita
plagg frammi fyrir dómara þar
sem þeir lofuðu því að trufla
hvorki kennslu né eyðileggja
eigur skólans og taka hvorki
þátt í né hvetja til fundahalda í
skólanum. Ennfremur urðu þeir
að lofa því að tala ekki við
fjölmiðla án leyfis háskólayfir-
valda eða ríkisstjórnarinnar.
Háskólayfirvöld munu vísa
hverjum þeim nemanda frá, um
stundarsakir eða að fullu og
öllu, sem verður uppvís að
drykkjuskap eða sakaður um
glæpsamlegt athæfi.
bandaríska bíla hefur verið lok-
uð meiri liluta ársins.
Um 400 starfsmenn AMC
fyrirtækisins sern eru á launaskrá
í Norður-Ameríku, starfa hjá
dótturfyrirtæki þess í Kanada.
Einn stúdent lét lífið og fjöl-
margir særðust þegar lögreglan
ruddist inn á fund stúdenta hinn
10. febrúarsl., aðloknum nokk-
urra daga mótmælum stúdenta
við brottrekstri samstúdenta og
því að sumir nemendur voru
sviptir námsstyrk frá ríkinu. Þá
var byggingum háskólans lokað
urn óákveðinn tíma.
Bandaríkin:
Bióðþrystingur
barna kannaður
Chicago-Rcutcr
■ Hópur bandarískra lækna
leggur til að blóðþrýstingur hjá
börnum verði athugaður reglu-
lega til að finna þá sem hafa of
háan blóðþrýsting sem alira
fyrst og helst áður en fólk nær
fullorðinsaldri.
Þetta kom frant á ráðstefnu í
Chicago um leiðir til að vinna
gegn of háum blóðþrýstingi.
Dr. Michael Horan hjá Hjarta-
lungna og blóðstofnun Banda-
ríkjanna sagði á ráðstefnunni'
að rnargir læknar teldu að sam-
band gæti verið á milli hás
blóðþrýstings hjá börnum
og hás blóðþrýstings hjá eldra
fólki. Hann sagði að allir læknar
og aðrir aðilar, sem störfuðu við
heilsugæslu barna, ættu að mæla
blóðþrýsting þeirra einu sinni á
ári án tillits til þess hvernig
heilsa barnanna væri að öðru
leyti.