Morgunblaðið - 04.08.2004, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2004 15
BANDARÍSKA geimvísindastofn-
unin NASA skaut í gær á loft
ómönnuðu rannsóknargeimfari
sem ætlað er að komi til reikistjörn-
unnar Merkúrs eftir sex og hálft ár.
Á geimfarið um átta milljarða km
ferð fyrir höndum.
Vonast vísindamenn stofnunar-
innar eftir því að geimfarið, sem
ber nafnið Messenger, komist á
sporbaug um Merkúr árið 2011 en
af plánetum sólkerfis okkar þá er
Merkúr næst sólu.
Geimfarið mun safna upplýsing-
um í heilt ár nái það sporbaug
Merkúrs og þarf að þola um 370° C
hita. Sérþróað postulínsefni utan á
geimfarinu mun halda hitanum frá.
Svartfjallaland neit-
ar Fischer um hæli
FORSETI Svartfjallalands, Filip
Vujanovic, sagði í gær að landið
gæti ekki veitt skákmanninum
Bobby Fischer hæli þar sem Banda-
ríkin hefðu krafist framsals hans.
Fischer var ákærður af banda-
rískum yfirvöldum fyrir að brjóta
viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna
á Júgóslavíu með því að tefla þar
við Boris Spasskí árið 1992.
Fischer var handtekinn með ógilt
vegabréf í Japan fyrir þremur vik-
um. Japönsk stjórnvöld vilja fram-
selja hann til Bandaríkjanna en
Fischer hefur áfrýjað þeirri
ákvörðun.
Þrír féllu í Rafah
ÞRÍR Palestínumenn létu lífið og 17
særðust, þ.á m. þrjú börn, í gríðar-
legri sprengingu sem varð við inn-
rás Ísraelshers á Rafah-flótta-
mannabúðir Palestínumanna á
Gaza-svæðinu í gær. Þrjú börn voru
meðal hinna særðu.
Hugðust hermennirnir finna
göng til vopnasmygls sem sögð eru
liggja frá Gaza að Egyptalandi.
Vitni sögðu skriðdreka Ísraelshers
hafa skotið sprengikúlu með fyrr-
greindum afleiðingum en tals-
maður Ísraelsstjórnar neitaði því.
Hamas, herská hreyfing Palest-
ínumanna, sagðist hafa skotið eld-
flaugum að skriðdrekum og jepp-
um Ísraelshers í gær. Tíu hús hafa
verið jöfnuð við jörðu í Rafah.
Bannað að eiga
hljómflutningstæki
DÓMARI í Birmingham í Englandi
hefur bannað konu að eiga hljóm-
flutnings- og sjónvarpstæki eftir að
hún hafði stillt tækin svo hátt að
húsgögn færðust til í íbúð á hæðinni
fyrir ofan. Er þetta í fyrsta skipti í
Birmingham – og líklega í Bret-
landi – sem slíkur dómur er kveð-
inn upp á grundvelli nýrra laga
gegn andfélagslegri hegðun. Dóm-
arinn heimilaði að konan yrði borin
út úr húsinu innan hálfs mánaðar
og bannaði henni að eiga hljóm-
flutnings- og sjónvarpstæki á með-
an hún býr þar.
AP
Geimfar á leið
til Merkúrs
EMBÆTTISMENN í Washington
hafa viðurkennt að viðvaranir banda-
rískra yfirvalda um að hryðjuverka-
menn hefðu undirbúið árásir á fimm
byggingar fjármálastofnana í Banda-
ríkjunum byggðust á upplýsingum
sem al-Qaeda aflaði fyrir allt að fjór-
um árum.
Nokkrir heimildarmenn The
Washington Post segja að liðsmenn
al-Qaeda hafi safnað megninu af upp-
lýsingunum fyrir hryðjuverkin 11.
september 2001 og að bandarísk yfir-
völd séu ekki viss um að liðsmenn al-
Qaeda hafi haldið áfram að fylgjast
með byggingunum eftir hryðjuverk-
in.
Heimildarmennirnir vildu ekki láta
nafns síns getið þar sem málið snýst
um trúnaðarupplýsingar. Nokkrir
þeirra sögðu að flest gögnin um bygg-
ingarnar væru um það bil þriggja ára
gömul og hugsanlega eldri. Gögnin
fundust í tölvu og tölvudiskum liðs-
manns al-Qaeda í Pakistan í vikunni
sem leið.
„Ekkert af því sem við heyrum
núna er nýtt,“ sagði einn heimildar-
mannanna og kvaðst ekki vita hvers
vegna bandarísk yfirvöld ákváðu að
auka öryggisviðbúnaðinn í New York,
Washington og Newark í New Jersey
vegna upplýsinganna.
„Tengdist ekki flokksþingi
demókrata“
Tom Ridge, heimavarnaráðherra
Bandaríkjanna, sagði að al-Qaeda
hefði safnað sumum af gögnunum á
árunum 2000-2001. Hann bætti við að
svo virtist sem nokkrum þeirra hefði
verið breytt síðar með tilliti til nýrra
upplýsinga, síðast í janúar á þessu ári.
Hann staðfesti að ekki væri vitað
hvort liðsmenn al-Qaeda væru enn í
Bandaríkjunum að fylgjast með
byggingunum sem nefndar voru sem
hugsanleg skotmörk. Hann lagði hins
vegar áherslu á að al-Qaeda skipu-
legði hryðjuverk með margra ára
fyrirvara og óhjákvæmilegt hefði ver-
ið að auka öryggisviðbúnaðinn.
Frances Townsend, heimavarna-
ráðgjafi Bandaríkjaforseta, neitaði
því að viðvörunin hefði verið gefin út í
því skyni að styrkja stöðu George W.
Bush forseta fyrir kosningarnar í
nóvember.
Nokkrir atkvæðamiklir demókrat-
ar hafa leitt getum að því að viðvör-
unin hafi verið gefin út um helgina til
að koma John Kerry af forsíðum blað-
anna eftir að hann var formlega val-
inn forsetaefni demókrata á flokks-
þingi þeirra í vikunni sem leið, að því
er fram kemur á fréttavef BBC.
„Þetta tengdist ekki flokksþingi
demókrata á nokkurn hátt,“ sagði
Townsend um þessar vangaveltur.
Heimildarmaður The Washington
Post sagði að einum gagnanna virtist
hafa verið breytt í janúar í ár en ekki
væri vitað hvort liðsmenn al-Qaeda
hefðu aflað upplýsinganna, sem bætt
var við, með því að njósna um bygg-
ingarnar. Þeir kynnu að hafa fengið
upplýsingarnar á netinu eða með öðr-
um hætti, til að mynda með því að lesa
bæklinga um byggingarnar fimm –
kauphöllina og aðalbyggingu Citi-
group í New York, byggingar Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóða-
bankans í Washington og höfuð-
stöðvar Prudential Financial í New-
ark í New Jersey.
Bandarískir embættismenn lögðu
áherslu á að jafnvel þótt upplýsing-
arnar væru þriggja eða fjögurra ára
gamlar réttlættu þær aukinn öryggis-
viðbúnað í borgunum þremur, eink-
um í ljósi þess að í sumar komu fram
vísbendingar um að al-Qaeda fyrir-
hugaði hryðjuverk í Bandaríkjunum
til að trufla kosningarnar í nóvember.
Í gögnunum, sem fundust í Pak-
istan, voru meðal annars upplýsingar
um fjölda vegfarenda við byggingarn-
ar fimm og hvers konar sprengiefni
myndi valda mestum skemmdum á
byggingunum.
Gögn al-Qaeda voru allt
að fjögurra ára gömul
The Washington Post, AP.
Ekki er vitað hvort njósnað var um
byggingarnar eftir 11. sept. 2001
KONA í Bangladesh hlúir að dóttur sinni á
sjúkrahúsi í Dhaka í gær. Um 660 manns hafa
látist og þúsundir þjást af niðurgangi í kjölfar
einhverra verstu flóða sem orðið hafa í landinu í
sex ár. Einnig hafa greinst fjölmörg lungna-
bólgutilvik. Milljónir manna hafa misst heimili
sín. Allt að tveir þriðju landsins fóru undir vatn,
en flóðin munu nú í rénun. Að sögn ráðamanna
munu allt að 30 milljónir landsmanna þurfa á
matvælaaðstoð að halda næstu fimm mánuði.
Reuters
Milljónir heimilislausar
BANDARÍKJAHER skýrði frá því í gær að afg-
anskir og bandarískir hermenn hefðu fellt allt að
50 skæruliða í hörðum bardaga í Afganistan, ná-
lægt landamærunum að Pakistan, í fyrradag.
Að minnsta kosti einn afganskur hermaður féll
og þrír særðust í Khost-héraði, sem var áður vígi
liðsmanna al-Qaeda. Er þetta einn harðasti bar-
dagi sem blossað hefur upp í Afganistan frá falli
stjórnar talibana sem studdi al-Qaeda.
Talsmaður Bandaríkjahers sagði að ekki væri
vitað með vissu hversu margir féllu en flugmenn,
sem flugu yfir átakasvæðið, áætluðu að 40-50
skæruliðar lægju í valnum.
Bardaginn hófst aðfaranótt mánudags þegar
um 50 skæruliðar réðust á landamærastöð. Yfir
100 afganskir og bandarískir hermenn börðust við
skæruliðana fram á kvöld.
Yfirvöld í Pakistan sögðu í gær að alls hefðu að
minnsta kosti átján meintir liðsmenn al-Qaeda
verið handteknir í landinu á síðustu dögum, ná-
lægt landamærunum að Afganistan.
Allt að 50 féllu
í Afganistan
Kabúl, Íslamabad. AP, AFP.
DANSKI herinn rannsakar nú ásakanir um að
nokkrir danskir hermenn hafi misþyrmt íröskum
föngum í þeirra umsjá, en Danir hafa um fimm
hundruð manna herlið í Suður-Írak. Embættis-
menn staðfestu þetta í gær en áður hafði Ekstra
Bladet greint frá því í frétt í fyrradag að einn yfir-
maður væri grunaður um að hafa beitt fanga harð-
ræði.
„Rannsóknin snýst um fleiri en einn einstakling,
sem gert var að halda aftur til Danmerkur,“ sagði
Hans-Christian Mathiesen hershöfðingi en Ekstra
Bladet greindi frá því í gær að um hefði verið að
ræða reyndan yfirmann sem hefði sérhæft sig í því
að yfirheyra fanga í umsjá hersins.
Er hermaðurinn sakaður um að hafa neitað
íröskum föngum um vatn og neytt þá til að sitja í
óþægilegum stellingum í langan tíma, að því er
Mathisen sagði í gær. Munu nokkrir aðrir her-
menn einnig verða yfirheyrðir í tengslum við rann-
sóknina en fram hefur komið að allnokkrir danskir
hermenn kvörtuðu við yfirmenn sína undan hegð-
un þess sem stýrði yfirheyrslunni yfir Írökunum.
Mathisen vildi hins vegar ekki tjá sig í gær um
frétt Politiken þess efnis að umræddur yfirmaður
hefði „beitt skotvopni“, en frekari upplýsingar um
þann þátt rannsóknarinnar lágu ekki fyrir.
Danskir
hermenn sæta
rannsókn
Sagðir hafa beitt íraska
fanga harðræði
Kaupmannahöfn. AP, AFP.
♦♦♦