Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Súpersól til Salou 9. september og 16. september frá kr. 39.995 Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spáni, einungis um 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur og fólk á öllum aldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður Spánar, gott úrval veitingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega kílómeterslöng aðgrunn, gullin strönd. Bókaðu núna og festu þér Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brottför færðu svo að vita hvar þú gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggja vikna dvöl. Verð kr. 49.890 á mann M.v. 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000 á mann. Verð kr. 39.995 á mann M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000 á mann. Bjartsýni skal viðhöfð ogbannað er að láta í ljós nei-kvæðar skoðanir,“ sagði íboðsbréfi frá landbún- aðarráðuneytinu vegna uppskeruhá- tíðar í Selárdal í Arnarfirði sem hald- in var á föstudag. Það var svo sem engin sérstök ástæða til svartsýni því verið var að fagna viðgerðum á hús- um og listaverkum Samúels Jóns- sonar en verk hans hafa legið undir skemmdum um áratugaskeið. Fleiri framfaramál eru á döfinni í dalnum. Selárdalur er afskekktur og þang- að liggur grófur malarvegur en samt koma þangað sífellt fleiri til að skoða hinn sérstæða listaverkaheim Sam- úels, listamannsins með barns- hjartað. Er talið að 3–4.000 manns hafi komið þangað í sumar. Þar er líka nóg að sjá. Ljónagos- brunnur, álft með tvo unga á baki og sækýr eru meðal þeirra furðudýra sem eru á ferli. Af miklum stórhug reisti Samúel listasafn yfir önnur verk sín og heila kirkju yfir altaristöflu sem sókn- arnefndin vildi ekki í sóknarkirkjuna, enda var þar fyrir 200 ára gömul tafla og merkileg. Frá því Samúel lést árið 1969 hafa verk hans og hús smám saman grotn- að niður og mörg verka hans eru reyndar að eilífu glötuð. Hefði Ólafur Gíslason, í Neðribæ í Selárdal, ekki haldið húsunum við eftir mætti og fyrir sinn eigin reikning, væri enn minna til en raun ber vitni. Þá var ár- ið 1998 stofnað áhugamannafélag um endurreisn listaverka Samúels Jóns- sonar og undir forystu Ólafs Hanni- balssonar tókst að safna nokkru fé til viðgerða. Mun félagið áfram sjá um viðhald á listaverkum Samúels. „Ótrúlegir arkitekta- hæfileikar“ Eftir tiltölulega stuttan undirbún- ingstíma, alls ekki lengri en tvö ár, ákvað landbúnaðarráðuneytið að leggja fé til verkefnisins og í sum- arbyrjun var hafist handa. Á uppskeruhátíðinni sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra að ráðuneytið hefði beinlínis talið sér skylt að bæta úr málum. „Hér var listamaðurinn með barnshjartað, hann Samúel sem hafði ótrúlega arki- tektahæfileika eins og við sjáum. Og hér höfum við minningar eftir hann sem engir hafa treyst sér til að laga fyrr en nú,“ sagði Guðni. Sett var þak, nýir gluggar, gólf og hurðir á listasafnið. Þak á kirkjunni var endurnýjað, gert við steypu- skemmdir, kirkjuturninn endurnýj- aður og steyptur í trefjaplast og sett kirkjuloft. Þá var brotajárn og annað rusl hreinsað úr dalnum. Ekki er búið að ákveða hvort íbúðarhús Samúels verður gert upp. Áætlað er að viðgerðir á húsum hafi kostað um þrjár milljónir, hreinsun á brotajárni og jarðvinna um tvær milljónir en alls muni verk- efnið ekki kosta meira en sjö millj- ónir. Ástæðan fyrir því að landbúnaðar- ráðuneytið tók upp á því að gera við hús í Selárdal er sú að Brautarholt, bær Samúels, stendur á ríkisjörð og húsin því á forræði ráðuneytisins. Sigurður Þráinsson, yfirmaður jarðadeildar í ráðuneytinu, benti á að staðan í Selárdal væri ekkert eins- dæmi. Víða um land stæðu yfirgefin hús á jörðum, m.a. á ríkisjörðum, og þá hlytu að vakna spurningar um hvort eða hvernig ætti að varðveita þau. Ákvörðun ráðherra um að láta taka til hendinni í dalnum væri sann- kallað tilraunaverkefni. Markmiðið væri að gerðir væru samningar um að fólk, helst með ræt- ur í dalnum, leigði þar jarðir og end- urreisti jafnvel gömul hús. Nokkrar lóðir, 1–2 hektarar að stærð, hafa ver- ið afmarkaðar og í Landbúnaðarhá- skólanum á Hvanneyri er unnið að því að deiliskipuleggja svæðið í sam- ráði við Vesturbyggð. Ætlunin er að úthlutun á lóðum geti hafist næsta sumar. Næst í Flatey á Skjálfanda Þar með lýkur verkefnum ráðu- neytisins í dalnum. Þá vonast ráðu- neytismenn eftir því að Ferða- málaráð taki að sér að reisa salernisaðstöðu í dalnum enda straumur ferðamanna sífellt að aukast. Sigurður segir að lukkist verkefnið í Selárdalnum sé hugsanlegt að hægt verðiað beita sömu aðferðum annars staðar. „Raunar hefur landbún- aðarráðherra nú þegar velt fyrir sér hvort ráðast skuli í hliðstætt verkefni í Flatey á Skjálfanda,“ sagði hann en þar á ríkið nokkur mannvirki í lélegu ásigkomulagi. Safn um Gísla á Uppsölum Brautarholt og bærinn Selárdalur eru ekki einu þjóðþekktu bæirnir í Selárdal því þar er líka bærinn Upp- salir sem einbúinn Gísli Gíslason var kenndur við. Íbúðarhúsið mun vera í ágætu ástandi og lítið þarf til að gera það heimsóknarhæft. Hugmyndir eru uppi um að gera við húsið og útbúa þar lítið safn um Gísla. Væri þar komin enn ein ástæðan til að heimsækja dalinn. Viðgerðum lokið á listasafni og kirkju Samúels Jónssonar í Selárdal Listaverkaheimur Samúels laðar að Listasafnið fékk nýtt þak og sömuleiðis kirkjan. Ljónagosbrunnurinn er næstum eins og nýr og Leifur heppni sem fyrr keikur á stalli. Morgunblaðið/Rúnar Pálmason„Hér var listamaðurinn með barns- hjartað, hann Samúel sem hafði ótrúlega arkitektahæfileika eins og við sjáum,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. FYRIRMYNDINA að ljónagos- brunninum í Selárdal er að finna í hinni frægu virkisborg Mára, Al- hambra á Spáni. Þar eru ljónin reyndar tólf en í Selárdalnum lét Samúel Jónsson duga að reisa sex. Þýski myndhöggvarinn Gerhard König, sem hefur unnið að við- gerðum á gosbrunninum telur hugs- anlegt að ástæðan fyrir því að ljóna- hópurinn í Selárdalnum er ekki stærri sé sú að Samúel sá aðeins spænska ljónagosbrunninn á póst- kortum. Þar sem gosbrunnurinn er kringlóttur hafi aðeins um helm- ingur ljónanna sést. Þess vegna hafi Samúel aðeins haft sex ljón við sinn gosbrunn. „Ég veit þetta auðvitað ekki. Þetta er leyndarmál Samúels,“ sagði hann. Gerhard er myndhöggvari og listakennari frá Svartaskógi í Þýskalandi. Hann kom til Íslands ár- ið 1997 og eftir að hafa séð myndir af verkum Samúels gerði hann sér ferð í Selárdalinn. „Þegar ég sá í hvers kyns hörmungarástandi verk- in hans voru ákvað ég að ég yrði að gera eitthvað,“ sagði hann. Gerhard náði sambandi við Ólaf Hannibals- son sem fer fyrir áhugamannafélagi um endurreisn listaverka Samúels og það varð úr að næsta sumar kom Gerhard aftur til landsins og gerði við fyrsta ljónið. Gosbrunnurinn var þá í afleitu ástandi. Þrjú ljónanna höfðu fallið um koll og sum týnt eyrum, fótleggj- um eða loppum. Líkt og mörg önnur verk listamannsins var gosbrunn- urinn nefnilega unninn af meiri vilja en verkþekkingu og kannski var listamaðurinn einnig í tímahraki. Ljónin voru því illa varin fyrir tímans tönn. Það rennir stoðum undir kenn- inguna um tímahrakið að Gerhard segir augljóst að Samúel hafi nostrað mest við ljónið sem hann gerði fyrst því það hefur bæði dugað best og er auk þess það svipfegursta. Þarfnast það minnstrar viðgerðar. Slakar undirstöður Viðgerðir Gerhards virðast fag- mannlega unnar en til þess að verkið yrði sem best úr garði gert gerði hann ítarlegar teikningar af ástandi verkanna og hvernig gert var við þau. Hann segir að helsta meinsemd gosbrunnsins hafi verið slakar und- irstöður sem urðu til þess að ljónin tóku að síga og skekkjast og því mynduðust sprungur í bol og fótum. Ekki dugði því annað en að lyfta ljón- unum upp og styrkja grunninn. Var það ærið verk enda vegur hvert ljón um 500 kíló. Gerhard bætti við járn- bindingu og endurnýjaði múrhúðina. Tók verkið þrjár vikur og mátti þýski myndhöggvarinn hafa sig allan við. „Mér finnst áhrifaríkt að hugsa til þess að Samúel byrjaði á þessum verkum þegar hann var 65 ára. Hugsaðu þér bara hverju gamall maður getur komið í verk,“ sagði Gerhard. Hann hefur dyttað að fleiri verk- um Samúels, m.a. sett nýjan haus á álftarunga sem hvílir sig á baki móð- ur sinnar og gert við litlu ferköntuðu tjörnina sem hún svamlar í. Hann stefnir að því að fara aftur í Selárdal- inn næsta sumar og klára verkið. Næsta sumar verður því vænt- anlega hægt að láta vatnið streyma aftur um ljónagosbrunninn. Til þess þarf ekki flókinn búnað. Til að láta vatn streyma út um gin ljónanna jós Samúel vatni með fötu upp í brunn- inn og fyrir það rukkaði hann gesti um nokkrar krónur, stundum tvær krónur og fimmtíu. Hugsanlega er hér komin kjörin fjáröflunarleið fyrir áhugamanna- félagið um endurreisn listaverka Samúels Jónssonar. „Leyndarmál Samúels“ „Hugsaðu þér bara hverju gamall maður getur komið í verk,“ sagði Ger- hard König og átti þar við Samúel en ekki sjálfan sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.