Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 51
SPELLBOUND er óvænt og
skemmtileg tilbreyting úr heimild-
armyndageiranum, en hún fjallar
um keppni bandarískra unglinga í að
stafa erfið orð. Við fylgjumst með
því hvernig gáfnaljósin litlu eru þef-
uð uppi í skólakerfinu vítt og breitt
um landið og úr öllum stéttum þjóð-
félagsins. Í upphafi eru um 10 millj-
ón þáttakendur sem búið er að skera
niður í tæp 300 þegar á hólminn er
komið.
Að lokum er þeim smalað saman í
landskeppni í höfuðborginni og það
liggur ótrúleg spenna í loftinu sem
skilar sér til áhorfenda. Til að gera
viðfangsefnið áhugaverðara er búið
að kynna okkur fyrir tæpum tug
ólíkra þáttakenda og enn sundurleit-
ari foreldrum þeirra.
Kvikmyndagerðarmönnunum
tekst að skapa slík tengsl að áhorf-
andinn verður meðvirkur og sárast
að einungis einn á síðasta orðið.
Krakkarnir eru vitaskuld fluggáfuð
og vel að sér í ólíklegustu málaflokk-
um. Fjallbrött og hörð af sér og
vafalaust á þátttakan eftir að koma
þeim að góðu gagni þegar komið er
út í samkeppnina miklu sem við köll-
um alvöru lífsins.
60 BRESKIR vísindamenn hafa val-
ið Blade Runner, með Harrison
Ford í aðalhlutverki, bestu mynd
sem byggð er á vísindaskáldskap.
Ford fer þar með hlutverk fyrrver-
andi lögreglumanns sem eltir fjórar
viðskotaillar manngerðar „mann-
verur“. Í öðru sæti varð höfuðverk
Stanleys Kubricks, 2001: A Space
Odyssey, og í því þriðja urðu Star
Wars-myndir eitt og tvö, Star Wars
og The Empire Strikes Back.
Könnunina gerði breska blaðið
The Guardian. Í umsögnum vísinda-
mannanna kom m.a. fram að Blade
Runner hefði verið „langt á undan
sinni samtíð“ og einn gekk svo langt
að segja að myndin væri sú besta
sem gerð hefði verið. Umfjöllunar-
efni myndarinnar, um uppruna
mannsins og hvað skilgreini hann,
séu sígildar spurningar sem spurt
hafi verið á einstæðan hátt.
Kvikmyndir | Vísindamenn velja bestu vísindaskáldsögurnar
Harrison Ford í hlutverki sínu í
Blade Runner.
Blade Runner best
1. Blade Runner (1982)
2. 2001: A Space Odyssey
(1968)
3. Star Wars (1977)/The Empire
Strikes Back (1980)
4. Alien (1979)
5. Solaris (1972)
6. The Terminator (1984)/T2:
Judgement Day (1991)
7. The Day the Earth Stood Still
(1951)
8. War of the Worlds (1953)
9. The Matrix (1999)
10. Close Encounters of the
Third Kind (1977)
Tíu bestu
myndirnar
KVIKMYNDIR byggðar á leik-
ritum standa og falla öðrum fremur
með texta og leik, engar brellur né
áhugaverðir tökustaðir til hjálpar.
Myndmálið skiptir miklu máli í
slíkum kvikmyndagerðum en töku-
vélunum er ekki beitt á eft-
irminnilegan hátt í The Shape of
Things. Leikararnir eru fjórir og
henta vel í hlutverkin en leikurinn,
líkt og textinn, ber of mikinn keim
af sviðinu.
Weisz leikur Evelyn, glæsilega
og lokkandi stúlku, nýútskrifaða úr
listaháskóla. Hún kynnist Adam
(Rudd), hlédrægum nemanda sem
gengur ámóta hægt að feta sig
áfram menntaveginn og í kvenna-
málum. Hann kynnist Evelyn á
listasafni þar sem hann starfar til
að drýgja námsstyrkinn og tekur
hún piltinn með leiftursókn. Byrjar
samstundis á að breyta honum með
megrunaraðgerðum, lýtalækn-
ingum og tískufatnaði úr ófram-
færnum larfaláka í töffara. Bestu
vinum hans, Phillip (Weller) og
verðandi eiginkonu hans Jenny
(Mol), líst ekki á blikuna.
Mest mæðir á Weisz sem hin
ákveðna byltingarkona sem tekur
yfir líf og limi Adams, útsmogin,
mælsk og leikur greinilega tveim
skjöldum frá upphafi. Tilgangurinn
í afar málglöðu verki er skemmti-
lega andstyggilegur, þó kemur ekki
mjög á óvart hvað vakir fyrir kerlu.
Phillip er hinn póllinn í verkinu,
ömurleg karlremba sem Weller af-
greiðir óaðfinnanlega en bæði hann
og Mols fást við mun ver mótaðar
persónur frá hendi LaBute. Rudd
er miðjumoðið, sakleysinginn sem
lætur gabbast og situr uppi með
sárt ennið og tvöfalt skipbrot.
Rudd skilar honum ágætlega og
gerir öðrum fremur losaralega sat-
íru um eilíft stríðið milli kynjanna,
áhugaverða.
Umskipt-
ingar
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Bandarískir indí
bíódagar
Leikstjóri: Neil LaBute. Aðalleikendur:
Rachel Weisz, Frederick Weller, Gret-
chen Mol, Paul Rudd. 95 mínútur. Banda-
ríkin. 2004.
YFIRBORÐIÐ (THE SHAPE OF THINGS)
Heimildarmynd. Leikstjóri: Jeff Blitz. 95
mínútur. Bandaríkin. 2002.
SPELLBOUND Sæbjörn Valdimarsson
Spellbound er óvænt heimildar-
mynd um pressuna sem sett er á
fluggáfuð börn.
AUÐUR
KRIPALU
ÁSTA
KRIPALU
ÁSTA A
KRIPALU
ÁSLAUG
KRIPALU
INGIBJÖRG
ASHTANGA
ÆGIR
NLP PLÚS
www.kramhusid.is
kramhusid@kramhusid.is
YOGA Í KRAMHÚSINU
14 YOGATÍMAR
Í VIKU HVERRI HJÁ
KENNURUM MEÐ
MIKLA REYNSLU
MORGUNTÍMAR - HÁDEGISTÍMAR - SÍÐDEGISTÍMAR
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 2 og 4. m/ísl.tali.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
Yfir 40 þúsund
gestir
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal.
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Enskt tal.
SV MBL
ÓÖH DV
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýra-spennumynd!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er kominn í bíó!
Yfir 20.000 gestir!
Yfir 20.000 gestir!
Ein besta ástarsaga allra tíma.
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Jason Bourne er kominn aftur og leitar
hefnda í frábærum hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin
átakaatriði.
„Myndir á borð við
þessar segja meira en
þúsund orð.“
HJ. MBL
CHRISTOPHER
WALKEN
BETTE
MIDLER
FATHE
HILL
CLENN
CLOSE
NICOLE
KINDMAN
MATTHEW
BRODERICK
„Drepfyndin“
Ó.Ö.H. DV
S.K., Skonrokk Ó.H.T Rás2
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal
EFTIR METSÖLUBÓK
NICHOLAS SPARKS
Þeir hefðu átt að láta hann í friði.