Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 21
FYRST í stað er maður frekar ró-
legur, reynir að finna góðan veiði-
stað og byrjar að kasta. Svo verður
maður var við fisk og þá eykst
spennan. Allt í einu er hann á, adr-
enalínið æðir um líkamann, fæturn-
ir byrja að titra og glíman við fyrsta
lax ævinnar er hafin. Þrátt fyrir
reynsluleysið tekst að landa um 6
punda fallegum nýgengum laxi með
aðstoð konunnar. Gleðin er mikil, en
bragðið af veiðiugganum er ekki
eins gott. Fiskurinn reynist algjört
lostæti með bræddu sméri um
kvöldið.
Þetta ævintýri upplifði Hjörtur
Gíslason ásamt konu sinni Helgu
Þórarinsdóttur nýlega, en þau voru
þá að veiðum í Selá í Álftafirði
eystra, ásamt Maríu Gísladóttur,
Ara Þorsteinssyni, Fanneyju Þór-
hallsdóttur og Axel Jónssyni.
Selá er sennilega eitt bezt varð-
veitta laxveiðileyndarmál landsins.
Hún hefur ekki verið í skipulegri
útleigu, en jarðeigendur hafa eitt-
hvað nýtt sér hana, og engum seið-
um hefur verið sleppt í hana. Nú
hefur veiðifélagið Sporðtak tekið
ána á leigu til 10 ára, en að því
standa þeir Hornfirðingarnir Birkir
Birgisson, Guðjón Pétur Jónsson og
Ólafur Vilhjálmsson.
Selá er dragá sem rennur um
Starmýrardal og út í Álftafjörð, rétt
austan við Þvottárskriður, á mörk-
um Austur-Skaftafellssýslu og Suð-
ur-Múlasýslu. Áin lætur lítið yfir
sér þegar ekið er yfir hana á þjóð-
vegi eitt, en litlu ofar rennur hún í
afar fögru umhverfi. Hún er um það
bil 18 kílómetra löng, en fiskigeng
um 9 kílómetra og eru í henni 20
þokkalegir veiðistaðir. Selá er fyrst
og fremst laxveiðiá, en sjóbirtingur
veiðist í einhverjum mæli á ósa-
svæðinu á haustin.
50 laxar
Selá er síðsumarsá og eins og
aðrar dragár mikið háð úrkomu.
Ekkert veiðihús er við ána og þarf
jeppa eða fjórhjóladrifna bíla til að
komast að henni. Eingöngu er leyft
að veiða á flugu og eru stangir
tvær. Drepa má tvo laxa á stöng á
dag.
Þurrkarnir í sumar hafa komið
niður á ánni. Þess vegna hefur ekki
mikið verið sótt í ána, en engu að
síður hafa veiðzt ríflega 50 laxar og
35 verið sleppt aftur.
Fyrrnefndur hópur var við veiðar
í ánni sjötta og sjöunda ágúst. Þá
hafði rignt nokkuð áður og var mik-
ið af fiski í ánni. Á föstudeginum
fengust tveir fallegir nýgengnir lax-
ar, fimm til sex pund. En um miðj-
an daginn opnuðust himnarnir og
úrfellið var slíkt að áin bólgnaði upp
á ótrúlega skömmum tíma, um 20
sentímetra eða meira.
Daginn eftir var rjómablíða, logn
og sólskin, en mikið vatn í ánni og
mikið af fiski. Þrír laxar fengust þá
og var sá stærsti um 14 pund og
þurfti Hjörtur að glíma lengi við
hann áður en hann náði að draga
flikkið á land, enda einn og háflaus.
Það er greinilega óhætt að leggja
leið sína í Selá. Hópurinn naut
beggja daganna til fulls, þó Helga
missti maríulaxinn sinn við bakk-
ann, þegar aðstoðarmennirnir voru
of seinir á vettvang með háfinn.
Umhverfið er mjög fallegt og víða
góðir veiðistaðir, meðal annars í
mjög fallegu gljúfri efst í ánni og
flúðum og hyljum nokkru neðar.
Það eru í raun þrjú aðalsvæði í ánni
og þarf að keyra á milli þeirra. Nú,
þegar þetta leyndarmál hefur verið
afhjúpað, má búast við töluverðri
sókn í ána.
Leyndarmál afhjúpað
fyrir austan
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Hjörtur
Helga Þórarinsdóttir og Fanney Þórhalldsóttir hampa hér fallegum 14
punda fiski sem veiddist í Selá í Álftafirði eystra ekki alls fyrir löngu.
Morgunblaðið/Helga
Veiðiugginn bitinn af maríulax-
inum. Hirti fannst laxinn betri soð-
inn með bræddu sméri.
Rannsóknasjóður
Umsóknarfrestur 1. október 2004
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Stjórn Rannsóknasjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum með umsóknarfresti 1. október 2004
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir á
Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga,
rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður
veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli
faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda
rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu.
Í stefnu Vísinda- og tækniráðs frá 18. desember 2003 er lögð áhersla á að
Rannsóknasjóður styðji í auknum mæli stærri verkefni og stuðli að myndun
fjölmennari rannsóknarhópa og þekkingarklasa. Ráðið leggur sömuleiðis áherslu á
að sjóðurinn veiti ungum vísindamönnum tækifæri til að hasla sér völl á Íslandi og
taka þátt í frekari uppbyggingu á vísindalegri og tæknilegri þekkingu.
Umsóknarfrestur nýrra umsókna í Rannsóknasjóð er til 1. október 2004.
Þrjár tegundir styrkja bjóðast:
a) Öndvegisstyrkir
b) Verkefnisstyrkir
c) Rannsóknarstöðustyrkir
Ítarlegri upplýsingar um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu
Rannís, www.rannis.is
Athygli er vakin á því að styrkþegar með framhaldsverkefni hafa frest til 1.
nóvember að skila áfangaskýrslum.
Hugrækt og slökun. Fyrir þá sem vilja
ná betri stjórn á streitu og álagi.
Fyrirlestrar, verkefni, léttar streitulosandi
æfingar, öndunartækni, slökun,
líkamsbeiting, mataræði og lífsgæði.
Fimmtudaga kl. 20.00 námskeiðið hefst
16. september
Byrjendanámskeið í jóga. Undirstöður
jógaiðkunar, öndun, stöður og slökun.
Mán./fim. kl. 18.30 hefst 6.sept
Framhaldsjóga. Fyrir þá sem lokið hafa
byrjendanámskeiði. Mán/fim kl. 17.25
Skráning á joga@joga.is
og í síma 544-2104
jafnvægi, einbeiting
og styrkur
Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík.
www.joga.is SvalaHalldóra
Bíldshöfða 14 • Sími 587 6644
Starcraft
pallhús
Eigum nú nokkur glæný ríkulega útbúin Starcraft pallhús
á ameríska bíla. Eigum einnig Sportstar pallhús
á tilboðsverði, aðeins 840.000 kr. (fyrir minni pallbíla).