Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
SIV Friðleifsdóttir, sem lætur af
embætti umhverfisráðherra 15.
september, segir mikilvægt að
Framsóknarflokkurinn nýti sér þau
tækifæri sem felist í að taka við for-
ystu í ríkisstjórn. Hún segir í viðtali
við Morgunblaðið í dag að þó hún
hefði viljað að niðurstaðan varðandi
ráðherravalið yrði önnur, þá muni
hún hlíta henni. Framsóknarmenn
eigi að gera allt sem þeir geta til að
snúa bökum saman og efla Fram-
sóknarflokkinn við þessar aðstæð-
ur.
Siv segir að bakslag hafi orðið í
jafnréttisbaráttunni og að ólgan
meðal framsóknarkvenna risti mjög
djúpt í flokknum. „Konur vilja snúa
þessari atburðarás í að efla Fram-
sóknarflokkinn og starf kvenna inn-
an hans. Við viljum snúa bökum
saman, konur og karlar, til að
styrkja flokkinn. Það er mjög mik-
ilvægt að það ríki eining í flokknum
um það verkefni,“ segir hún. Segist
hún fagna ummælum Halldórs Ás-
grímssonar, formanns flokksins,
um að efla þurfi starf kvenna í
flokknum.
Siv segir í viðtalinu að tillaga for-
manns flokksins um að henni yrði
gert að víkja úr ríkisstjórn hafi ekki
komið sér í opna skjöldu en hún
hafi komið hennar nánustu sam-
herjum á óvart. Hún segist ætla að
snúa sér af fullum krafti að störfum
á Alþingi og að flokksstarfinu eftir
að hún lætur af embætti ráðherra.
Mikilvægt sé að efla Framsóknar-
flokkinn og fylgja fram þeirri
stefnu sem hann standi fyrir.
Auðvelt að vinna með öðrum
forystumönnum af heilindum
„Á þessari braut vil ég vinna
ásamt öðrum forystumönnum
flokksins og mun eiga auðvelt með
að gera það af fullum heilindum
sem fyrr,“ segir Siv. Spurð hvort
hún muni sækjast eftir ráðherra-
embætti þegar næst verði stokkað
upp í ráðherrahópnum segist Siv
vera í stjórnmálum til að hafa áhrif.
„Að sjálfsögðu hljóta mínir kraftar
sem annarra í þingflokknum að
koma til greina við næstu upp-
stokkun. Aðalatriðið er að skipa
sem öflugasta sveit. Ég finn að
fjöldi flokksmanna telur að við
þurfum að viðhalda breiddinni. Það
er hins vegar alveg óljóst í dag
hvernig þetta verður,“ segir hún.
Siv Friðleifsdóttir segir ólgu meðal framsóknarkvenna rista djúpt
Mikilvægt að framsóknar-
menn snúi bökum saman
Ég mun/10–11
ÁHEYRNARPRÓF fyrir Idol-stjörnuleit hóf-
ust á Hótel Loftleiðum í gærmorgun og strax
um níuleytið hafði myndarleg biðröð mynd-
ast fyrir utan hótelið.
Keppendur lentu í hvassviðri og rigningu
og höfðu nokkrir vaskir skátar tekið að sér
að hella upp á kakó og gefa keppendum sem
stóðu úti í kuldanum. Að sögn eins þeirra
skiptu kakóbollarnir sem gefnir höfðu verið
hundruðum fljótlega eftir að húsið var opnað
og ljóst að tilvonandi poppstjörnur þjóð-
arinnar tóku ekki áhættuna að láta sér verða
kalt og missa röddina.
Alls bárust um 1.200 skráningar í Reykja-
vík í ár og 400 skráningar af landsbyggðinni,
að sögn Vigdísar Jóhannsdóttur, markaðs-
fulltrúa hjá Stöð 2, auk þess sem talsvert er
um að fólk skrái sig til leiks á staðnum.
Vigdís segir aðstandendur keppninnar bú-
ast við sterkari keppendum í ár en í fyrra,
enda hafi landsmenn nú fylgst með Idolinu
einu sinni og séð hve mikill metnaður er
lagður í keppnina.
Áheyrnarpróf fyrir Idol verða haldin í
Vestmannaeyjum, á Ísafirði, Akureyri og Eg-
ilsstöðum og gefst því fleiri landsmönnum
færi á að spreyta sig en í fyrra.
Röðin fyrir utan Loftleiðahótelið í gær var
fjölskrúðug og ljóst að einhverjir höfðu kom-
ið beint af næturlífi borgarinnar og voru
hvergi bangnir við sönginn. Aðrir keppendur
sem Morgunblaðið ræddi við voru þó flestir
nývaknaðir og höfðu verið að æfa sig, sumir
kvöldið áður, en aðrir í bílnum á leiðinni.
Búast við sterkari
keppendum en í fyrra
Keppendur æfðu sig í salnum á Hótel Loftleiðum áður
en þeir fóru fyrir dómnefndina.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
EINU gildir fyrir leikhúsáhuga-
manneskjuna Ólöfu Ingu Halldórs-
dóttur þótt uppselt sé á frumsýn-
ingar, sem hún kappkostar að sjá.
Öfugt við flesta aðra hefur hún sitt
eigið sæti og er hæstánægð með að
hjólastóllinn er henni í þessu tilliti
engin fyrirstaða, nema síður sé.
„Það er ekkert mál fyrir mig að fá
miða á frumsýningar því ég tek með
mér sætið. Ég tylli mér bara við
endann á bekknum eða hvar sem
er,“ segir hún í viðtali í Tímariti
Morgunblaðsins í dag.
Ólöf Inga hefur verið hreyfihöml-
uð frá fæðingu; með Cerebral Palsy
eða CP, sem útleggst sem heilalöm-
un á íslensku, og er bundin við hjóla-
stól. Hún lætur ekki hindranir
stöðva sig og útskrifaðist með glæsi-
brag frá Kennaraháskóla Íslands á
liðnu vori. Í náminu sat hún við sama
borð og aðrir, en viðurkennir að hafa
þurft að yfirstíga margar hindranir
og kannski farið aðrar leiðir að settu
marki. Hún hóf kennslu í Rimaskóla
í haust og stefnir á lögfræði í fram-
tíðinni. Hún elskar ljóðlist, er eldheit
leikhúsáhugamanneskja og finnst
gott að fara ein á sýningar. „Þetta er
besta leiðin fyrir mig til að ná al-
gjörri afslöppun,“ segir hún.
Tekur með
sér sæti á
frumsýningar
FRÆGÐARSÓL Dísar, sem Birna Anna
Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir og Silja
Hauksdóttir kynntu til sögunnar í sam-
nefndri bók árið 2000, á eftir að rísa næsta
föstudag þegar hún birtist í fyrsta skipti á
hvíta tjaldinu í Laugarásbíói, Regnboganum
og Smárabíói. Þessa geðþekku, en á stundum
ráðvilltu Reykjavíkurmær, leikur Álfrún
Helga Örnólfsdóttir undir leikstjórn Silju,
sem ásamt Birnu Önnu og Oddnýju er jafn-
framt höfundur handrits.
Verkefnið fékk vilyrði fyrir styrkveitingu
frá Kvikmyndasjóði árið 2002 og segir Silja
þær stöllur hafa endurskrifað handritið svona
tíu til fimmtán sinnum á tveimur árum. Tökur
hófust svo fyrir tæpu ári og lauk þeim á sex
vikum. Framleiðandi myndarinnar er Baltas-
ar Kormákur og fyrirtæki hans, Sögn.
Þetta er í fyrsta skipti sem Silja leikstýrir
kvikmynd og í Tímariti Morgunblaðsins í dag
segir hún það hafa hjálpað sér að hafa gengið
með söguna svona lengi í maganum. Silja og
Álfrún Helga hafa báðar reynslu af kvik-
myndaleik, en Silja lék í Draumadísum og
Fíaskó og Álfrún Helga í Svo á jörðu sem á
himni þegar hún var aðeins tíu ára og nokkr-
um öðrum síðan.
Nett tilvistarkreppa
Myndin fjallar um leit Dísar að sjálfri sér –
eða netta tilvistarkreppu eins og Silja segir:
„Það er ákveðin leit í henni og hún er að
kljást við að skilgreina sjálfa sig á eigin for-
sendum, ekki út frá öðrum heldur sjálfri sér,
og ekki út frá því hvernig maður ímyndar sér
að aðrir sjái mann.“ Leikstjórinn og leik-
konan eru sammála um að svolítil Dís leynist
með okkur flestum og að það sé hverri mann-
eskju hollt að taka sjálfa sig reglulega til end-
urskoðunar.
„Þrátt fyrir að ég sé nú orðin fimm árum
eldri en Dís er ég ennþá að ganga í gegnum
svona skeið eins og hún er að gera í myndinni,
og kem örugglega til með að gera alla ævi. En
það er líka bara fínt, því þá veit maður alla-
vega að maður stendur ekki í stað,“ segir
Silja, sem kveðst ekki sjá fyrir sér Dís 2. Hins
vegar langi sig til að gera aðra bíómynd.
Löng meðganga hjálpaði leikstjóranum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona og Silja
Hauksdóttir, leikstjóri myndarinnar um Dís.
♦♦♦
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði í ræðu sinni á ársþingi
Sambands sveitarfélaga á Norður-
landi vestra á föstudag að vegna auk-
inna skatttekna hins opinbera mætti
vænta þess að hagur sveitarfélag-
anna muni vænkast frá því sem verið
hefur. „Nú er ljóst að skatttekjur
hins opinbera eru að aukast, einkum
vegna mikilla framkvæmda á Aust-
urlandi. Af þeim sökum má vænta
þess að hagur sveitarfélagnna vænk-
ist einnig frá því sem verið hefur,“
sagði Árni.
Hagur sveitar-
félaga batnar
Framlög/6