Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 9
Sími 594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.vík
Fjöldi lita og gerða
Marley þakrennur
Sjáum einnig um uppsetningu
Lið-a-mót
FRÁ
Extra sterkt
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Nr. 1 í Ameríku
-fyrir útlitið
ANNA Lísa Guðmundsdóttir var
rekstrarstjóri í sauðfjársmölun eða
svokallaður fjallkóngur Reykvíkinga
árið 1995 og er því með fyrstu konum
sem sinnt hafa því
starfi á landinu. Í
Morgunblaðinu á
miðvikudag var
greint frá því að
Lilja Loftsdóttir,
bóndi á Brúnum í
Gnúpverjahreppi,
verður í haust
fjallkóngur þar í
sveit en hingað til
hafa karlmenn
sinnt þessu starfi
nær eingöngu.
Afrétturinn sem Anna Lísa hafði
umsjón með er sameiginlegur með
Kópavogsbúum og nær yfir neðri
hluta Hellisheiðar. „Ég átti kindur í
mörg ár eða frá því ég var sjö ára og
var búin að smala síðan ég var
krakki,“ segir Anna Lísa spurð um
ástæður þess að henni var falið starf
fjallkóngs á sínum tíma. „Ég leysti
síðan fjallkónginn, sem hafði sinnt
starfinu, af eitt árið.“
En hvernig gekk smölunin haustið
1995 þegar Anna Lísa var fjallkóng-
ur? „Þetta gekk eiginlega ekkert
svakalega vel,“ rifjar Anna Lísa
hlæjandi upp. „Það var brjálað veður
og ég held ég hafi aldrei lent í öðru
eins. Það var svo sem ekki mikið mál
að skipuleggja [leitina] en öðru máli
gegndi um að halda utan um fólkið
og týna því ekki. Það skiluðu sér þó
allir niður, en blautir. Það var mikil
rigning og við sáum ekki neitt.“
Blautir smala-
menn í brjál-
uðu veðri
Anna Lísa
Guðmundsdóttir
Kona fjallkóngur
í Reykjavík árið 1995
„HVAÐA áhrif hefur fækkun banda-
rískra hermanna á öryggismál Evr-
ópu?“ heitir fyrirlestur sem Hans-
Ulrich Klose, þingmaður þýska Jafn-
aðarmannaflokksins (SPD) á
Bundestag í Berlín, flytur á sameig-
inlegum fundi Samtaka um vestræna
samvinnu (SVS) og Varðbergs, mið-
vikudaginn 1. september kl. 17.15, í
Skála á Hótel Sögu.
Hans-Ulrich Klose hefur setið í ut-
anríkismálanefnd þingsins um árabil
m.a. sem formaður árin 1998–2002.
Hann er fæddur 1937 í Breslau og
hefur verið virkur þátttakandi í
þýskum stjórnmálum síðan 1964.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki um varnar- og öryggismál sem
snerta heill Norður-Evrópu.
Áhrif fækkunar
bandarískra
hermanna
Öryggismál Evrópu
♦♦♦
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122