Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 29 mundi ef Íbúðalánasjóður veitti bönkunum ekki lengur það aðhald, sem hann greinilega er nú. Það á eftir að koma í ljós, hvernig sú þróun verður en enginn vafi leikur á því að við erum á réttri braut í húsnæðismálum. Með því, sem gerzt hefur að undanförnu, hefur þessum tveimur grunnþáttum nútímasamfélags, hús- næðismálum og lífeyrismálum, verið komið í svo gott horf að betur verður tæpast gert nema með enn lækkandi vöxtum. Umbætur í vel- ferðarkerfinu Lífeyriskerfið sem slíkt er ekki lengur mikið í almennri um- ræðu. Ástæðan er sú, að það virkar. Hins vegar er fyrirkomulag stjórna lífeyrissjóðanna enn umdeilt. Það er arfur liðinnar tíðar og tímabært að breyta því. Peningarnir, sem eru í sjóðunum eru eign sjóð- félaga og þeir eiga sjálfir að kjósa fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóðanna eins og Morgunblaðið hefur áður bent á. Líklegt má telja, að eftir þær breytingar, sem orðnar eru í húsnæðislánakerfinu verði húsnæðismál minna til umræðu en verið hefur vegna þess einfaldlega að fólk líti svo á, að þau máli hafi verið leyst. Það kann þó að breytast ef vaxtabreytingar til hækkunar á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum leiða til verulegrar hækk- unar á vöxtum á ný. En eitt leiðir af öðru. Um leið og friður er að skapazt um þessa tvo meginþætti í samfélagi okkar, húsnæðismál og lífeyrismál, eykst þrýstingur á að leysa önnur mál og það á sér- staklega við um heilbrigðiskerfið og velferð- arkerfið. Heilbrigðiskerfinu hefur verið veitt gríðar- lega sterkt kostnaðaraðhald á undanförnum ár- um og sjálfsagt hefur ekki veitt af . Eftir sem áður er sú spurning áleitin, hvort of langt hafi verið gengið. Það þarf engar skoðanakannanir til þess að fullyrða, að fólk vilji eiga aðgang að góðri heil- brigðisþjónustu ef á þarf að halda. Og í meg- inatriðum er sú góða þjónusta til staðar. Hins vegar er stöðugur ófriður í kringum heilbrigð- iskerfið til skaða og mikilvægt að finna leið til þess, að Landspítali – háskólasjúkrahús sé ekki í stöðugum fréttum vegna þess, að spít- alinn haldi sig ekki innan marka fjárveitinga, hvort sem það er vegna of lágra fjárveitinga eða af öðrum ástæðum. Það þarf að leita leiða til þess að ná fram sambærilegri byltingu í rekstri heilbrigðiskerfisins og tekizt hefur á vettvangi húsnæðismála. Þegar á heildina er litið er velferðarkerfið í viðunandi horfi. Þó eru í því göt, sem þarf að fylla upp í eins og sjá má af blaðagreinum fólks úr hópi aldraðra, sem birtast m.a. hér í Morg- unblaðinu. Í því sambandi má ekki gleyma því, að þótt lífeyriskerfið sé í góðum farvegi er það fólk, sem nú er á áttræðisaldri að fá greiðslur úr lífeyrissjóðum, sem að einhverju leyti mark- ast af því, að óðaverðbólgan brenndi á báli líf- eyrissparnað fyrir 1980. Þess vegna er þessi kynslóð líklega sú síðasta, sem býr við mjög skertar lífeyrisgreiðslur miðað við það, sem framtíðarkynslóðir geta búizt við. Viss málefni aldraðra eru augljóslega óleyst. Hið sama á við um öryrkja. Þótt margt hafi áunnizt í málefnum öryrkja á undanförnum ár- um er þó margt sem betur mætti fara. Að- stæður öryrkja eru mjög mismunandi. Senni- lega ræður aðstaða í húsnæðismálum úrslitum. En það er tímabært að fara rækilega ofan í málefni öryrkja og leita leiða til þess að laga það, sem mestri óánægju veldur í þeirra röð- um. Einstæðir foreldrar, sem eru fyrst og fremst einstæðar mæður, eru þjóðfélagshópur, sem gefa þarf meiri gaum. Það eitt að leikskóla- ganga verði ókeypis eins og önnur skólaganga fram að háskólastigi mundi breyta miklu um lífskjör og aðstæður einstæðra foreldra. Það eru ekki lengur nokkur rök fyrir því, að fólk greiði umtalsverðar greiðslur fyrir veru barna sinna í leikskólum. Þessu á að breyta. Umræður um fátækt á Íslandi hafa stundum farið í sérkennilegan farveg sennilega vegna þess hversu afstætt fátæktarhugtakið er. Í samanburði við fátækt í Afríkulöndum er ekki fátækt á Íslandi. En þegar lífskjör fólks hér heima fyrir eru borin saman er ljóst að ákveð- inn hópur fólks, sem m.a. kemur úr þeim þjóð- félagshópum aldraðra, öryrkja og einstæðra foreldra, sem hér hafa verið gerðir að umtals- efni býr við svo lítil efni og erfiðar aðstæður að kalla má fátækt á íslenzka vísu. Við höfum efni á að útrýma þeirri fátækt. Áherzla undanfarinna ára í þjóðfélagsum- ræðum hefur verið á viðskipta- og atvinnulífi, breytingar í fjármálakerfi, einkavæðingu o.s.frv. Á þessum sviðum hefur orðið gjör- breyting, sem treyst hefur afkomugrundvöll þjóðarbúsins. Nú er tímabært að breyta þess- um áherzlum. Við þurfum að gera átak í þeim þáttum heil- brigðisþjónustu og velferðarkerfis, sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. Jafnframt er kominn tími til að ræða hvernig hægt er að fjármagna það grózkumikla menningarlíf, sem hér hefur vaxið úr grasi en byggist enn að of miklu leyti á snöpum listamannanna sjálfra, sem ganga með hatt í hönd á milli stórfyr- irtækja og leita eftir fjárhagslegum stuðningi. Það má merkja þreytu í hópi þeirra, sem hafa haldið þessari starfsemi uppi. Ekki er ástæða til að ætla, að þessi verkefni þurfi að kalla á pólitísk átök. Á milli stjórn- málaflokkanna er enginn grundvallarmunur í afstöðu til þess hvernig byggja á upp heilbrigð- iskerfið og velferðarkerfið. Ágreiningur getur verið um útfærslu en tæplega um grundvöllinn sjálfan eins og var í eina tíð. Það er jafnvel að skapast meiri skilningur á því, að innan heil- brigðiskerfisins er vel hægt að gera ráð fyrir einkareknum valkostum í einhverjum mæli. Sá mikli árangur, sem við höfum náð í upp- byggingu lífeyriskerfis og húsnæðismála á að verða okkur hvatning til þess að taka til hendi á þeim sviðum, sem hér hafa verið nefnd. Morgunblaðið/Ómar Stykkishólmshöfn. Við Íslendingar erum nú að nálgast húsnæðislánakerfi, sem lengi hefur ver- ið við lýði í nálægum löndum. Það er ein- hver mesta bylting í þjóðfélagsmálum á Íslandi frá lýðveld- isstofnun. Laugardagur 28. ágúst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.