Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 37
Eftir langa og
stranga glímu við
óvæginn sjúkdóm er
starfsbróðir okkar
þingmanna, Árni
Ragnar Árnason, allur. Hann tókst
á við veikindi sín af miklum dugn-
aði og á opinskáan hátt og vann þar
marga sigra þótt hann hlyti að tapa
úrslitaorustunni eins og allt var í
pottinn búið. Hugur okkar sem
með honum störfuðum á Alþingi
nokkuð á annan áratug er nú hjá
hans nánustu og eftir stendur
minningin um góðan dreng.
Leiðir okkar Árna lágu saman
þegar hann var kjörinn þingmaður
Reykjaneskjördæmis 1991 og við
tókum m.a. sæti í sömu þingnefnd,
sjávarútvegsnefnd, og stundum
reyndar saman í fleiri en einni. Um
tíma vorum við hlið við hlið í for-
ustu sjávarútvegsnefndar, ég for-
maður en stjórnarandstæðingur og
hann varaformaður, forustumaður
stjórnarliða og helsti tengiliður við
flokksbróður sinn ráðherrann.
Þessar aðstæður og ýmis verkefni
sem leysa þurfti leiddu sjálfkrafa
til þess að við höfðum talsvert sam-
an að sælda og urðum ágætlega
kunnugir. Er aðeins gott eitt af
þeim kynnum og samskiptum öll-
um að segja. Árni Ragnar var sér-
lega traustur samstarfsmaður,
áhugasamur um þau mál sem glímt
var við hverju sinni og allt stóð
ÁRNI RAGNAR
ÁRNASON
✝ Árni RagnarÁrnason alþing-
ismaður fæddist á
Ísafirði 4. ágúst
1941. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
16. ágúst síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju
25. ágúst.
eins og stafur á bók
sem samið var um.
Árni var vel að sér um
málefni sjávarútvegs-
ins og var enda í eðli
sínu fróðleiksfús og
vildi kynna sér hlut-
ina. Þetta kom ekki
síst vel í ljós í ýmsum
vettvangsferðum og
heimsóknum sem við
skipulögðum saman
og fórum í sem nefnd-
armenn í sjávarút-
vegsnefnd.
Árni var einnig
áhugasamur um al-
þjóðamál og er mér sérstaklega
minnistætt hve vel hann hafði sett
sig inn í málefni Palestínu og þá yf-
irveguðu afstöðu sem hann hafði til
deilumálanna þar. Við vorum einn-
ig lengi saman í utanríkismála-
nefnd og fjarri því að vera oft sam-
mála en ekki minnist ég annars en
okkur hafi tekist sæmilega að bera
virðingu hvor fyrir annars skoð-
unum.
Ég vil að leiðarlokum þakka
þessum gengna starfsbróður fyrir
kynnin og samstarfið. Ég votta eft-
irlifandi eiginkonu hans og að-
standendum öllum samúð mína og
fjölskyldu minnar um leið og ég
kem á framfæri samúðarkveðjum
okkar allra í þingflokki Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs.
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs.
Árni Ragnar móðurbróðir minn
var hluti samheldinnar og góðrar
fjölskyldu. Það var stutt á milli
heimila hans og systranna og við
krakkarnir vorum sem heima á
hverju þeirra.
Nokkur atriði eru mér efst í
huga nú við brotthvarf frænda
míns.
Í einu áhugamála hans áttum við
okkar tíma saman. Hann fékk mig
ungan sem kylfusvein með sér á
golfvöllinn. Ég naut þess mjög að
vera með honum í heimi sem þá var
mér framandi. Síðar kom í ljós að
þetta var mér gott veganesti, ekki
síður varðandi umgengni og hátta-
lag en íþróttina sjálfa.
Um tíma áttum við frændi sam-
eiginlegt hagsmunamál. Ég var ný-
kominn með bílpróf og átti ekki bíl.
Hann átti bíl en hafði ekki sérstaka
ánægju af að þrífa bíla. Þetta var
auðvelt; ég þreif og bónaði og fékk
bílinn lánaðan í staðinn. E.t.v. voru
þrifin ekki aðalatriðið eftir á að
hyggja, heldur það að frændi
treysti mér alltaf fyrir bílunum sín-
um.
Eftir að frændi settist á þing var
gaman að fylgjast með honum og
ræða þau mál er honum voru hug-
leiknust. Á seinni árum áttum við
stórt sameiginlegt áhugamál; orku-
mál. Hann sinnti þeim málaflokki
af áhuga á þingi auk þess sem hann
sat lengi í stjórn Hitaveitu Suð-
urnesja. Á þessum sama tíma hef
ég starfað við orkumál og við höfð-
um því ætíð um nóg að tala er við
hittumst. Hann var að öðrum ólöst-
uðum sinna kollega hvað best að
sér á þessu sviði og var óhemju
duglegur að setja sig inn í málin.
Elsku Gulla, Guðrún, Hildur,
Björn, Árni, tengdabörn og barna-
börn; Guð veri með ykkur á þess-
um tímum trega og sorgar.
Ég vil þakka þér frændi fyrir
samveruna í rúma fjóra áratugi og
þakka þér fyrir þær leiðbeiningar
og fræðslu sem þú veittir mér á
yngri árum. Ég sakna samverunn-
ar og umræðu um sameiginleg
hugðarefni. Enn meira sakna ég
þeirrar framtíðar sem við ætluðum
að feta saman, en nú skilur leiðir
um sinn. Við finnum áreiðanlega
stað og stund til að taka upp þráð-
inn aftur þar sem nú er frá horfið.
Vertu sæll, frændi, far þú í friði.
Ásgeir Margeirsson.
Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓHANN BERGUR SVEINSSON
fyrrv. heilbrigðisfulltrúi,
Þverholti 7,
Keflavík,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 24. ágúst, verður jarðsettur frá
Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 1. september kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins,
sími 543 3724, og Þroskahjálp á Suðurnesjum.
Júlía Sigurgeirsdóttir,
Sigurgeir Svanur Jóhannsson,
Guðfinna Bryndís Jóhannsdóttir,
Kristinn Edgar Jóhannsson, Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir,
Jóhann Davíð Albertsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
frú FJÓLA VALDÍS BJARNADÓTTIR
húsmóðir,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju mánu-
daginn 30. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Freyja Sverrisdóttir, Helgi Eiríksson,
Kristín Valdís Sigurðardóttir, Bjarni Þór Guðmundsson,
Bjarni Sigurðsson, Kristín Bessa Harðardóttir,
Ingibjörg Erna Sigurðardóttir, Sveinbjörn Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
SVAVARS KARLSSONAR,
Esjuvöllum 10,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A-deildar
Sjúkrahúss Akraness.
Unnur Jónsdóttir,
Sigríður Svavarsdóttir, Haukur Hannesson,
Sigrún Svavarsdóttir, Jóhann Þórðarson,
Viðar Svavarsson, Fjóla Ásgeirsdóttir,
Jón Karl Svavarsson, Helga Sesselja Ásgeirsdóttir,
Jökull Freyr Svavarsson,
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar,
MARGRÉT ÞORGRÍMSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
áður til heimilis
í Drápuhlíð 43,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 31. ágúst kl. 13.30.
Guðrún Þóroddsdóttir,
Sigrún Þóroddsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURGEIR EIRÍKSSON,
Furugrund 36,
Kópavogi,
sem lést miðvikudaginn 18. ágúst sl., verður
jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn
31. ágúst kl. 13.30.
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Þórdís Sigurgeirsdóttir, Jónas Kristjánsson,
Vermundur Arnar Sigurgeirsson,
Gunnar Sigurgeirsson,
Arnar Geir Jónasson,
Hanna Rún Jónasdóttir.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
www.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði