Morgunblaðið - 29.08.2004, Side 44

Morgunblaðið - 29.08.2004, Side 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Tungið er fullt og það vekur með þér bældar kenndir sem sennilega eiga rætur að rekja til barnæsku þinnar. Notaðu tækifærið til að læra eitthvað nýtt um sjálfa/n þig. Naut (20. apríl - 20. maí)  Tunglið er fullt og það gæti leitt til þess að þú lendir í deilum við vin þinn eða vinkonu. Þú þarft að gera það upp við þig hvort þú ætlir að gera það sem þig langar til eða það sem aðrir vilja að þú gerir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft enn á ný að ákveða hvort þú ætlar að láta kröfur vinnunnar eða þarfir heimilisins ganga fyrir. Þú getur huggað þig við það að togsteitan mun minnka um leið og tunglið. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er hætt við að ferðaáætlanir þínar gangi ekki upp. Það er eins og þú vitir ekki alveg í hvorn fótinn þú eigir að stíga. Þetta ætti að lagast á morgun. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú þarft að taka ákvörðun varðandi einhvers konar eignaskiptingu í dag. Mundu að það er ákveðið frelsi fólgið í því sleppa tökunum á hlutunum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er fullt tungl í merkinu þínu og því er hætt við spennu í samskiptum þínum við maka þinn eða náinn vin í dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að leggja þig alla/n fram í samskiptum þínum við samstarfsfólk þitt í dag. Ef þú hefur áhyggjur af heilsunni geturðu huggað þig við það að þær munu líklega hverfa fyrir lok vikunnar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er ekki alltaf nauðsynlegt að fá samþykki annarra fyrir því sem maður gerir. Stundum er einfaldlega ómögu- legt að gera öðrum til geðs. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er hætt við að skyldur þínar í vinnunni og á heimilinu stangist á í dag. Þú ættir að spyrja sjálfa/n þig að því hvort þú þurfir að endurmeta hlut- ina. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Farðu varlega í hverju því sem þú tek- ur þér fyrir hendur í dag. Tunglið er fullt og það er hætt við að það slái þig svolítið út af laginu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér mun sennilega finnast á hlut þinn gengið í dag. Mundu að það er ekkert óeðlilegt við það að standa með sjálfri/ sjálfum sér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er fullt tungl í merkinu þínu og það gerir þig óvenju tilfinninga- næma/n. Reyndu að halda ró þinni og bregðast ekki of harkalega við hlut- unum. Stjörnuspá Frances Drake Meyja Afmælisbörn dagsins: Hafa auðugt ímyndunarafl og mikla skipulags- og aðlögunarhæfni. Á kom- andi ári þurfa þau á aukinni einveru að halda til að læra eitthvað nýtt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.  6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 smjaður, 8 miðla málum, 9 baul, 10 nægi- legt, 11 mólendið, 13 gljái, 15 kjána, 18 korn, 21 guð, 22 ósveigjanlega, 23 hlífir, 24 heilluð. Lóðrétt | 2 standa gegn, 3 húsdýrið, 4 skarpskyggn, 5 ljúka, 6 fiskum, 7 jurt, 12 eyktamark, 14 meis, 15 eru föl, 16 kvenmanns- nafns, 17 vinna, 18 angi, 19 málmi, 20 líffæri. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 felds, 4 forði, 7 öflum, 8 læðan, 9 díl, 11 drag, 13 ærin, 14 áburð, 15 sumt, 17 aska, 20 fas, 22 ertur, 23 klökk, 24 lúrir, 25 pokar. Lóðrétt | 1 fjöld, 2 lalla, 3 sæmd, 4 féll, 5 róður, 6 innan, 10 íhuga, 12 gát, 13 æða, 15 svell, 16 mítur, 18 skökk, 19 ask- ur, 20 frár, 21 skip. Spingold-keppnin í New York. Norður ♠K97 ♥KG95 S/Allir ♦93 ♣ÁG87 Vestur Austur ♠D642 ♠G853 ♥-- ♥ÁD42 ♦ÁDG865 ♦1072 ♣652 ♣93 Suður ♠Á10 ♥108763 ♦K4 ♣KD104 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 hjarta 3 tíglar 4 tíglar * Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass * góð hækkun í fjögur hjörtu. „Ég vildi að ég hefði fundið vinnings- leiðina,“ skrifar Philip Alder um þetta spil frá Spingold-keppninni. Alder var í suður og fékk út smáan spaða gegn fjórum hjörtum. Hvernig líst lesendum á horfur sagnhafa? Alder naut þess ekki að sjá allar hendur, svo hann ákvað að spila strax trompi í öðrum slag. Hann fékk tígul í gegn og þar með var vörnin komin með fjóra slagi. „Kannski var ég fullfljótur á mér,“ játar Alder og stingur upp á því að sækja strax slag á spaða. Sem sagt: Spaðagosi austurs er drepinn með ás og spaðatíu svínað í öðrum slag. Þegar það heppnast, er farið inn í borð á lauf og tígli hent í spaðakóng. „En þetta er ekki nóg,“ segir Alder réttilega. „Nú er nauðsynlegt að spila tígli til að klippa á samgang varn- arinnar fyrir hugsanlega laufstungu.“ Skoðum málið. Ef sagnhafi spilar trompi úr borði, tekur austur slaginn og spilar laufi! Þegar austur kemst aft- ur inn á tromp, spilar hann tígli yfir á ás vesturs og fær stungu í laufi. Þetta er flókið spil, jafnvel á opnu borði, svo það er ástæðulaust fyrir Al- der að gráta glatað tækifæri. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Staðurogstund idag@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund á forsíðu mbl.is. Meira á mbl.is CHIRYU-borg í Japan og Kópavogsbær bjóða til sérstaks fjölskyldudags, í sam- vinnu við sendiráð Japans og Íslensk- japanska félagið, kl. 15–18 í dag. Dagskráin hefst í Salnum með japönskum þjóðdöns- um og tesiðaathöfn. Tesiðaathöfnin er leidd af einum af meisturum hins þekkta Urasenketeskóla. Síðar verður sýndur japanskur „bondans“ við trumbuslátt hinnar hefðbundu taiko-trommu. Gestum býðst að klæðast sumar-kimono eða yu- kata og taka þátt í dansinum undir leið- sögn dansaranna. Á meðan á dagskránni stendur munu gestir einnig eiga þess kost að læra japanskt pappírsbrot; origami, kynnast japanskri skrift og leturgerð, jap- önskum leikföngum sem og ikebana eða japönskum blómaskreytingum. Einnig verður ljósmyndasýning með myndum frá Chiryu og víðar í Japan. Tónlist Bæjarbíó | Hafnarfirði. Hljómsveitirnar múm og Slowblow halda tónleika kl. 20. Slowblow hefur leikinn og múm fylgir í kjölfarið. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sér- stakir Schumann-tónleikar í kl. 20.30. Flytjendur eru Gruppo Atlantico; Hlíf Sig- urjónsdóttir fiðluleikari, Robert La Rue sellóleikari og Adrienne Kim píanóleikari ásamt Sigurlaugu Eðvaldsdóttur fiðluleik- ara og Guðrúnu Þórarinsdóttur lágfiðlu- leikara. Tónverk eftir Robert Schumann. Flutt verður sónata fyrir fiðlu og píanó op. 105 í a-moll, Fünf Stücke im Volkston op. 102 fyrir selló og píanó og Píanókvint- ett op. 44 í Es-dúr. Myndlist Norræna húsið | Samsýningunni 7-Sýn úr Norðri lýkur í dag. Það eru 7 norrænar listakonur sem standa að sýningunni. Sýningin heldur svo til Danmerkur og síð- an áfram til hinna Norðurlandanna. Opið kl. 12–17 alla daga, nema mánudaga. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sýningunni Nýr veruleikar, finnsk samtíma- ljósmyndun, lýkur í dag. Aðgangur er ókeypis. Opið virka daga kl. 12–19, um helgar kl. 13–17. Listasafn Íslands | Sumarsýningunni Um- hverfi og náttúra lýkur í dag. Á sýning- unni má sjá verk eftir íslenska myndlist- armenn í eigu safnsins, sem vísa til náttúru og umhverfis í víðum skilningi. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhúsi. Finn- ur Arnar myndlistarmaður segja frá ferli sínum og verkum kl. 15 í listamannsspjalli við Ólaf Gíslason í tengslum við innsetn- ingu sína í safninu. Kling og Bang gallerí | Sýningunni Sheep Plug bandarísku listamanna Jason Rhoa- des og Paul McCarthy lýkur í dag. Einnig lýkur sýningu Steingríms Eyfjörðs, After- image Kling & Bang gallerí Laugavegi 23, opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18. Leiklist Sólheimar | Grímsnesi. Þær Björk Jak- obsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Guðrún Ásmunds- dóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir flytja eintölin úr 5 stelpur.com kl. 20 í íþrótta- leikhúsinu. Ágóði sýningarinnar rennur til Leikfélags Sólheima. Kvikmyndir Háskólabíó | Kvikmyndahátíðin Bandarískir Indí-Bíódagar stendur til 6. september. Kl. 16: Super Size me, My first mister. Kl. 18: Coffee & Cigarettes. Sav- ed!, Capturing the Friedmans. Kl. 20: Sup- er Size me, Coffee & Cigarettes. Kl. 22: Saved!, My first mister. Kl. 23: The Shape of things. Félagsstarf Ásgarður | Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Gjábakki | Fannborg 8. Fimmtudaginn 2. september verður starfsemin fram til ára- móta kynnt, frá kl. 14–16. M.a. kynna Söngvinir, kór aldraðra, Nafnlausi leikhóp- urinn, Félag eldri borgara í Kópavogi og Gjábakki fyrirhugaða starfsemi sína. Dag- skráin verður afhent 6. til 10. sept. Furugerði 1 | Vetrarstarfið byrjar 1. sept. Bókband hefst 1.sept, smíðar og út- skurður 2. sept., leikfimin er byrjuð og er á mánudögum og miðvikudögum, handa- vinna hefst 9. sept. og er á mánud. og fimmtud., frjáls spilamennska er á þriðju- dögum. Upplýsingar á staðnum. Norðurbrún 1 | Á þriðjudag hefst myndlist og smíðar kl. 9–12. Vesturgata 7 | Leikfimi er þegar byrjuð verður á mánudögum kl.11 og fimmtudög- um kl. 13. Myndmennt byrjar miðvikudag- inn 1. september. Postulínsmálun byrjar þriðjudaginn 7. september. Enskukennsla byrjar þriðjudaginn 14. september. Tréút- skurður byrjar miðvikudaginn 15. sept- ember. Skráning hafin. Kirkjustarf Háteigskirkja | Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Grafarvogskirkja | Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Þorlákskirkja | TTT-starf í kvöld sunnu- dag kl. 19.30. Fríkirkjan Kefas | Samkoma kl. 20. Helga R. Ármannsdóttir talar. Fréttir Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum mánudaga kl. 13–17. Úthlutun á vörum þriðjudaga kl. 14–17. Netfang dalros@isl- andia.is. Fundir Kristniboðsfélag karla | Fundur verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60, á morgun, mánudag kl. 20. Skúli Svav- arsson hefur biblíulestur. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Brúðkaup | Gefin voru saman í hjóna- band af sr. Hjálmari Jónssyni þau Ásta Björg Stefánsdóttir og Bergur Már Bernburg. Heimili þeirra er á Italiens- vej 76 í Kaupmannahöfn. Rúbínbrúðkaup | Í dag, 29. ágúst, eiga 40 ára hjúskaparafmæli hjónin Jó- hanna Jónsdóttir skrifstofumaður og Sveinn Kristinsson blaðamaður, Þóru- felli 16, Reykjavík. Þau eru að heiman. Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. Morgunblaðið/Jim Smart Japanskir dagar í Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.