Morgunblaðið - 29.08.2004, Blaðsíða 45
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2004 45
Dagana 30. ágúst til 1. september verð-ur Norræna vinnuverndarþingiðhaldið í fimmtugasta sinn. Þetta áriðer þingið haldið á Íslandi, nánar til-
tekið á Nordica Hotel og munu 150 þátttak-
endur sitja það, þar af eru 130 frá hinum Norð-
urlöndunum. Félagsmálaráðherra, Árni
Magnússon, setur þingið á morgun, mánudag
kl. 9 en því lýkur á hádegi á miðvikudag. Víðir
Kristjánsson er formaður undirbúningsnefndar.
Hvað verður til umfjöllunar á þinginu?
„Á þinginu verða kynntar nýjustu niðurstöður
rannsókna á Norðurlöndunum á sviði vinnu-
verndar og kynnt á hvern hátt vinnueftirlitin
vinna að því að framfylgja lögum og reglum um
vinnuvernd með t.d. eftirliti og átaksverkefnum.
Vinnuvernd er mjög breitt svið. Í fyrstu var
aðallega fjallað á þingunum um efni og hættur
samfara notkun þeirra, síðan kom læknisfræðin
inn með m.a. niðurstöðum úr faraldsfræðirann-
sóknum og síðan hefur þetta breikkað meira og
meira og spannar í raun allt vinnuverndar-
sviðið, efnanotkun, inniloft, líkamsbeitingu,
læknis- og sálfélagsfræðilega þætti, svo dæmi
séu tekin.
Í ár var sérstaklega óskað eftir niðurstöðum
úr rannsóknum eða umfjöllun um ofnæmi,
erfðafræði, erfðatækni, vinnuumhverfi og heilsu
innflytjenda og „gestastarfsmanna“, óvenju-
legan vinnutíma, t.d. vaktavinnu, og áhrif hans
á heilsuna, rafrænt eftirlit með vinnunni eða
starfsfólki, heilbrigði í vinnu og heilbrigðara at-
vinnulíf, ofbeldi í vinnunni, áhættumat og sam-
hæfingu vinnu og fjölskyldulífs.
Hverjir munu halda þarna erindi?
„Þingið er skipulagt í tvær samhliða fyr-
irlestraraðir sem skiptast síðan eftir efn-
isflokkum auk sameiginlegra fyrirlestra og
einnig eru sérstakar veggspjaldakynningar.
Fluttir verða um 60 fyrirlestrar og þess vegna
er af mörgu að taka.
Svo ég nefni fáeina þá mun Mikko Härmä,
prófessor við finnsku rannsóknarstofnunina um
vinnuvernd, flyta opnunarfyrirlestur þingsins
um áhrif óvenjulegs vinnutíma á heilsu starfs-
manna en hann er leiðandi vísindamaður í heim-
inum á þessu sviði. Þorlákur Helgason frá
Kennaraháskóla Íslands fjallar um einelti á
vinnustöðum, Ole Olsen frá rannsóknarstofn-
uninni um vinnuuvernd í Danmörku fjallar um
jákvæðu hliðar þess að hafa vinnu, Ebba
Wergeland, yfirlæknir hjá norska vinnueftirlit-
inu, kemst að þeirri niðurstöðu að léleg vinnu-
aðstaða komi ekki fram í aukinni fjarveru frá
vinnu og Helena Taskinen frá finnsku rann-
sóknarstofnunni fjallar um uppbyggingu fyr-
irtækjaheilsuverndar í Eistlandi. Þetta er þó
aðeins brot af því sem þingið hefur upp á að
bjóða.“
Norræna vinnuverndarþingið |Nýjustu niðurstöður rannsókna á sviði vinnuverndar
Vinnuvernd er breitt svið
Víðir Kristjánsson er
fæddur í Bíldudal árið
1951. Hann varð stúd-
ent frá Mennta-
skólanum á Akureyri
árið 1971 og lauk mast-
ersnámi í lífrænni efna-
fræði frá Háskólanum í
Lundi árið 1981. Víðir
hefur frá árinu 1983
starfað sem sérfræð-
ingur um efnafræði og
mengunarmál hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Sambýliskona Víðis er Aðalbjörg Helgadóttir,
framhaldskólakennari við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ og leiðsögumaður. Börn þeirra eru:
Vala Björk, háskólanemi og flugfreyja; Vera, í
sambúð með Frey Þóraðarsyni og eiga þau
dótturina Helenu; loks Viktor, nemandi í
Digranesskóla.
Staðan kom upp í A-flokki mótsins í
Pardubice sem lauk fyrir nokkru í
Tékklandi. Vladimir Potkin (2.523)
hafði hvítt gegn Andreas Tzermiadia-
nos (2.452). 27. Dh6+! og svartur gafst
upp enda illt í efni eftir 27. … Kxh6 28.
exf8=D+ Kh5 29. g4+.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. 0–0 Bg7
5. c3 Rf6 6. He1 0–0 7. h3 Re8 8. d4
cxd4 9. cxd4 Rc7 10. Bxc6 bxc6 11. Rc3
a5 12. Be3 Hb8 13. Dd2 Rb5 14. Bh6
Rxc3 15. Bxg7 Kxg7 16. Dxc3 Kg8 17.
Had1 Db6 18. b3 d6 19. Hc1 Bd7 20. e5
Dd8 21. De3 Kg7 22. Df4 Be6 23. Hxc6
Hb6 24. d5 Bxd5 25. exd6 Bxc6 26.
dxe7 Dd7
Hvítur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
MIRALE
Grensásvegi 8
sími: 517 1020
Opið:
mán.- föstud.11-18
laugard. 11-15
Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina
umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt
af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst.
ÞÝSKUNÁMSKEIÐ
GOETHE ZENTRUM
www.goethe.is
551 6061
Nýir heilsugæslulæknar
Nýir læknar koma til starfa á Heilsugæslunni Salahverfi
sem hér segir:
Rannveig Pálsdóttir - 1. september
Skúli Gunnarsson - 15. október
Þeir sem óska að njóta þjónustu þessara lækna og annarra
lækna Heilsugæslunnar geta skráð sig á Heilsugæslunni
Salahverfi, Salavegi 2, Kópavogi, alla virka daga kl. 8–17. Sími
590 3900.
Með kveðju starfsfólk Heilsugæslunnar Salahverfi
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810 kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember