Morgunblaðið - 27.09.2004, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TVÖ umferðaróhöpp hafa orðið á
Vesturlandsvegi til móts við Korp-
úlfsstaði um helgina þar sem öku-
menn hafa ekið á steinstólpa á veg-
inum sem þar eru vegna
framkvæmda við tvöföldun Vest-
urlandsvegar. Steinstólparnir loka
veginum og eiga að vísa ökumönn-
um inn á hlykk sem gerður hefur
verið á veginn vegna fram-
kvæmdanna. Bifreiðar skemmdust
talvert en ökumenn eru í báðum til-
vikum grunaðir um ölvun við akst-
ur. Urðu óhöppin snemma á laug-
ardags- og sunnudagsmorgun.
Báðir ökumenn voru á leið frá
Mosfellsbæ til Reykjavíkur er
óhöppin áttu sér stað.
Umferðarstofa mun kanna að-
stæður á staðnum í kjölfar óhapp-
anna og einnig mun Vegagerðin í
dag skoða svæðið með tilliti til veg-
merkinga vegna framkvæmdanna.
Samkvæmt upplýsingum frá fram-
kvæmdaaðilanum, Jarðvélum ehf.,
er vinnusvæðið merkt samkvæmt
leiðbeiningarriti Vegagerðarinnar.
Nokkur hundruð metrum áður en
að framkvæmunum kemur, bæði ef
keyrt er til og frá Reykjavík er var-
að við þeim, að sögn fram-
kvæmdaaðilans, og þéttast viðvör-
unarmerkin er nær dregur. Eru
einnig merki um breyttan hámarks-
hraða á vinnusvæðinu, þ.e. úr 90
km á klst. niður í 50 km á klst.
Þrengingar eru sérstaklega merkt-
ar með blikkljósum allan sólar-
hringinn.
Samkvæmt vettvangsathugun
Morgunblaðsins í gærkvöldi er
vinnusvæðið með um 1.000 m fyr-
irvara ef ekið er frá Reykjavík
áleiðis til Mosfellsbæjar. Öðru máli
gegnir ef ekið er í átt að Reykjavík
frá Mosfellsbæ. Þá sjást fyrst við-
vörunarmerki örfáum metrum áður
en að hlykknum á veginum kemur
en á þeirri leið áttu bæði umferð-
aróhöppin sér stað. Blikkljós eru á
steinstólpunum í báðar áttir.
Að sögn Hreins Haraldssonar,
framkvæmdastjóra hjá Vegagerð-
inni, hafa eftirlitsmenn frá Vega-
gerðinni, sem ber ábyrgð á merk-
ingum vegna vegaframkvæmda,
tekið út svæðið. Hann bendir á að
stundum geti merkingar færst úr
stað og því verði það skoðað sér-
staklega. Að hans sögn eru gerðar
kröfur um fullkomnustu vegmerk-
ingar sem almennt eru notaðar á
þessu svæði þar sem umferð-
arþungi á Vesturlandsvegi er mik-
ill. Ákveðnar reglur um vegmerk-
ingar fylgi öllum útboðum til
verktaka á vegum Vegagerð-
arinnar. „Merkingar þarna eru al-
veg í samræmi við það. Þeir sem
þarna eru að vinna hafa fylgt því
sem þeir áttu að gera,“ segir
Hreinn. Birgir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri umferðasviðs hjá
Umferðarstofu, segir slæmar veg-
merkingar við framkvæmdir viðvar-
andi vandamál sem þó hafi verið
tekið fastari tökum undanfarin
misseri. Hann segir erfitt að setja
sérstakar reglur sem fram-
kvæmdaraðilar verði að fara eftir
þar sem aðstæður séu misjafnar.
Birgir segir að besta leiðin til að
vekja athygli á framkvæmdum sé
með ljósamerkingum og það þurfi
að gerast með góðum fyrirvara áð-
ur en komið er að framkvæmd-
arstað.
Tveir hafa keyrt á steinstólpa á Vesturlandsvegi
Morgunblaðið/Kristinn
Steinstólparnir sem bifreiðarnar tvær óku á um helgina eru með blikkljósum. Sé ekið úr Mosfellsbæ í áttina til
Reykjavíkur er varað við breytingu á legu Vesturlandsvegar aðeins fáum metrum áður en komið er þar að.
Vegagerð og Um-
ferðarstofa munu
skoða aðstæður
ÁSMUNDUR Magnússon, tækni-
fræðingur hjá Jarðvélum ehf., sem
vinnur að framkvæmdum við tvö-
földun Vesturlandvegar, bendir á
að ökumenn taki afar sjaldan tillit
til lækkunar á hámarkshraða
vegna vegaframkvæmda. Hann
segir ökumenn oft vera að keyra á
um 100 km hraða á svæðum þar
sem hámarkshraði hefur verið
lækkaður í 50 km. „Á meðan eru
mennirnir okkar að vinna tvo
metra frá,“ segir Ásmundur. Hann
segir að þegar Jarðvélar voru við
vinnu á Stekkjarbakka nýverið hafi
stundum þurft að kalla til lögreglu
til að aðstoða við að halda ökuhraða
í skefjum.
Lítið tillit
tekið til lækk-
unar á há-
markshraða
HILDUR María Hilmarsdóttir, fjór-
tán ára nemi í Foldaskóla í Reykja-
vík, hlaut fyrstu verðlaun í ritgerð-
arsamkeppni Félags um eflingu
verk- og tæknifræðimenntunar.
Sunna Örlygsdóttir, sextán ára ný-
nemi við Menntaskólann í Reykja-
vík, hlaut önnur verðlaun. Alls 37
ritgerðir bárust í keppnina. For-
maður dómnefndarinnarnar var
Matthías Johannessen. Úrslitin
voru kunngjörð við hátíðlega at-
höfn í Þjóðminjasafninu á föstudag.
Hildur María segist hafa orðið
mjög hissa þegar henni var til-
kynnt að hún hefði orðið hlutskörp-
ust. „Ritgerðin fjallar um stelpu,
sem er að labba úti og sér hluti og
fer að hugsa hvernig þeir eru
stærðfræðilega séð. Til dæmis sér
hún sólina og fer að hugsa hvernig
hún geti mælt ummál hennar og
flatarmál með stærðfræðiformúl-
um.“
Hildur María segist hafa séð
samkeppnina auglýsta í Morgun-
blaðinu í sumar og ákveðið til gam-
ans að taka þátt. „Ég er talin frek-
ar góð í stærðfræði,“ segir hún
ennfremur aðspurð um áhuga sinn
á faginu. Hún segist ekki aðeins
stunda stærðfræðinám í Foldaskóla
heldur einnig í fjarnám í stærð-
fræði við Fjölbrautaskólann í Ár-
múla. Þegar hún er spurð hvort
hún stefni jafnvel að því að verða
stærðfræðingur í framtíðinni segir
hún. „Það er aldrei að vita.“
Tækifæri til að læra meira
Sunna, sem lenti í öðru sæti, seg-
ist eins og Hildur María, hafa orðið
hissa en um leið ánægð þegar
henni var tilkynnt um úrslitin. „Ég
skrifaði m.a. um það hvað er sam-
eiginlegt með stærðfræði og list-
um. Ég tók tónlistina sem dæmi, og
fjallaði um tónstigann og gull-
insniðið og eitthvað fleira,“ út-
skýrir hún.
Aðspurð segist hún vera að læra
á píanó en þegar hún er spurð
hvort hún hafi mikinn áhuga á
stærðfræði segir hún: „Í hreinskilni
sagt nei!“ Hún segir þó að ritgerð-
arsamkeppnin hafi boðið upp á
tækifæri til að læra meira um
stærðfræði og listir. „Ég tek auk
þess þátt í öllum svona keppnum,“
útskýrir hún.
Hildur María hlaut fartölvu í
boði EJS í verðlaun og Sunna fékk
prentara í verðlaun. Stærðfræðing-
urinn heimskunni dr. Timothy
Gowers afhenti þeim auk þess við-
urkenningarskjal fyrir árangurinn.
Hildur María Hilmarsdóttir sigraði í ritgerðarsamkeppni
Morgunblaðið/Sverrir
Við afhendingu verðlaunanna. Ásgeir Ásgeirsson frá EJS, Matthías Johannessen, formaður dómnefndar, Sunna
Örlygsdóttir vinningshafi, Timothy Gowers stærðfræðingur, Hildur María Hilmarsdóttir vinningshafi og Bjarni
Bessason, formaður Félags um eflingu verk- og tæknifræðimenntunar. Athöfnin fór fram í Þjóðmenningarhúsi.
Fjallar um stelpu sem sér
hluti í stærðfræðilegu ljósi