Morgunblaðið - 27.09.2004, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Brekka, LNR. 140945, ehl. gþ., Ísafjarðarbæ, þingl. eig. Eygló Krist-
jánsdóttir, Finnbogi Kristjánsson, Jóhannes Kristjánsson og Oddbj-
örn Stefánsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands og Lánasjóð-
ur landbúnaðarins, föstudaginn 1. október 2004 kl. 16:15.
Brimnesvegur 6, fnr. 0212-6337, Flateyri, þingl. eig. Malgorzata
Wlodarczyk, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, föstudaginn 1. október
2004 kl. 13:30.
Fjarðargata 16, 0101, fnr. 212-5504, Þingeyri, þingl. eig. Kristín Auður
Elíasdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 1. október
2004 kl. 14:30.
Hafnarstræti 1, 0101, fnr. 212-5561, Þingeyri, þingl. eig. Þórður Sig-
urðsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Ísafjarðarbær, föstu-
daginn 1. október 2004 kl. 14:45.
Hlíðargata 42, 0101, fnr. 212-5595, Þingeyri, þingl. eig. Jónína Kristín
Sigurðardóttir og Konráð Kristinn Konráðsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Ísafjarðarbær og Tryggingamiðstöðin hf., föstudag-
inn 1. október 2004 kl. 15:00.
Mjallargata 1, 0302, fnr. 212-0050, Ísafirði, þingl. eig. Jón Benóný
Hermannsson og Jenný Edda Jónasdóttir, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 1. október 2004 kl. 10:45.
Stakkanes 16, 0101, fnr. 212-0402, Ísafirði, þingl. eig. Magnús Jóns-
son og Málfríður Hjaltadóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirð-
inga, föstudaginn 1. október 2004 kl. 11:45.
Túngata 21, 0301, fnr. 212-0787, Ísafirði, þingl. eig. Guðmundur
Matthías Guðmannsson og Marta Pálsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 1. október 2004 kl. 11:15.
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
23. september 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif-
stofu embættisins í Hafnarstræti 1, Ísafirði, sem hér segir
Auðbjörn ÍS-17, sk.skr.nr. 1888, ásamt öllum rekstrartækjum og
búnaði, þingl. eig. Andvaraútgerðin sf., gerðarbeiðandi Byggðastofn-
un, föstudaginn 1. október 2004 kl. 10:00.
Hrönn ÍS-74, sk.skr.nr. 0241, ásamt öllum rekstrartækjum, þingl.
eig. Nökkvi, gerðarbeiðandi Byggðastofnun, föstudaginn 1. október
2004 kl. 10:30.
Ólafur Hallgrímsson.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
23. september 2004.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu f.h.
fjármálaráðuneytisins óskar eftir tilboðum í:
Ráðgjöf vegna sölu
Landssíma Íslands hf.
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu undir-
býr nú sölu á hlutabréfum ríkisins í Landssíma
Íslands hf. Liður í þeim undirbúningi er að
móta og leggja tillögur fyrir ráðherranefnd um
einkavæðingu um hvernig að sölunni verður
staðið.
Framkvæmdanefndin leitar eftir þjónustu ráð-
gjafa vegna þeirra verkefna sem framundan
eru. Leitað er til innlendra og erlendra ráðgjafa
um tilboð. Útboðsgögn, þar sem fram koma
kröfur sem nefndin gerir til slíks ráðgjafa, liggja
fyrir hjá nefndinni. Útboðsgögn verða send
þeim sem hafa hug á að taka þátt í útboðsferl-
inu og eftir þeim óska. Tilboðum skal skila til
verkkaupa eigi síðar en kl. 16:00 mánudaginn
25. október 2004.
Nánari upplýsingar og útboðsgögn má nálgast
hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni í fjármálaráðu-
neytinu. Netfang: einkavaeding@fjr.stjr.is.
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu
27. september 2004.
TILKYNNINGAR
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/
2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Eyjafjarðarbraut eystri um Möðruvelli,
Eyjafjarðarsveit.
Þorskeldi, Salar Islandica, allt að 3000
tonn á ári, í sjókvíum í Fáskrúðsfirði.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 25. októ-
ber 2004.
Skipulagsstofnun. MÍMIR 6004092719 III
HEKLA 6004092719 IV
GIMLI 6004092719 I Fjhst.
I.O.O.F. 19 1859278 Fr
I.O.O.F. 10 1859278
NAUÐUNGARSALA
TUGIR þúsunda trúboða á vegum
mormónakirkjunnar Kirkju Jesú
Krists hinna síðari daga heilögu
stunda trúboð víðs vegar um heim-
inn ár hvert. Hér á Íslandi hefur
verið óslitið trúboð síðan 1975 og
eru að jafnaði á bilinu milli 6 og 10
trúboðar staddir á landinu í einu,
en samtals má áætla að 130–150
trúboðar hafi starfað hér síðustu
þrjá áratugi. Í hópi þeirra eru
Steve Andersen og Darron Allred,
sem dvöldu hér við trúboð í byrjun
níunda áratugarins, en nýverið
komu þeir aftur til Íslands í stutta
heimsókn. Báðir voru þeir innan
við tvítugt þegar þeir komu til
starfa hérlendis, en þeir segja
hefð fyrir því að strákar fari í
tveggja ára trúboð þegar þeir
verða nítján, en stúlkur þurfi hins
vegar að vera orðnar tuttugu og
eins árs. „Þeir sem fara í trúboð
þurfa í raun að setja líf sitt í bið-
stöðu í tvö ár, því þeir þurfa að
taka sér frí frá skóla, yfirgefa fjöl-
skyldur og jafnvel maka og hafna
eða slá á frest vinnutilboðum, allt
til þess að geta helgað sig því að
deila trú sinni með öðrum,“ segir
Steve, sem dvaldi hér á Íslandi á
árunum milli 1982–84 og sá síðan
um að þjálfa Darron sem kom til
landsins 1984 og dvaldi í tvö ár.
Aðspurðir hvað taki við að trú-
boði loknu segja þeir Steve og
Darron og fólk taki einfaldlega
upp þráðinn þar sem frá var horf-
ið. „Margir fara í nám, aðrir fara
beint út á vinnumarkaðinn og svo
koma menn sér auðvitað upp fjöl-
skyldu,“ segir Darron sem í dag
starfar sem ráðgjafi við Brigham
Young-háskólann í Utah, er giftur
og á sex dætur, en Steve, sem
einnig er giftur og á fjóra syni, á
og rekur í dag ein níu fyrirtæki og
er með rúmlega sex hundruð
manns í vinnu. Þeir Darron og
Steve leggja áherslu á að þó að
vissulega snúist trúboðið um að
miðla fagnaðarboðskap Krists þá
Hollt að sjá heiminn
með augum annarra
Morgunblaðið/Golli
„Með tilkomu vefjarins langar okkur til að stuðla að auknum samskiptum
milli þeirra tæplega 150 trúboða sem dvalið hafa hérlendis á síðustu þrjátíu
árum, því ég veit að þeim þykir eins og okkur afar vænt um Ísland og Ís-
lendinga eftir veru sína hér, enda ekki hægt að eyða tveimur árum ævi
sinnar á einhverjum stað án þess að tengjast honum sterkum tilfinninga-
böndum,“ segir Steve Andersen (t.h.) sem ásamt Darron Allred (t.v.) stund-
aði trúboð hér á landi fyrir rúmum tuttugu árum.
Ætla að koma
upp vef um trú-
boða sem starfað
hafa hér á landi
FÉLAGSFUNDUR var hald-
inn í Verkalýðsfélaginu Vöku í
Siglufirði laugardaginn 25.
september.
Fundurinn lýsir þungum
áhyggjum af hnignun atvinnu-
lífs í Siglufirði. Félagið telur að
oft hafi verið þörf á því að bæj-
arbúar taki höndum saman, en
nú sé það orðin brýn nauðsyn
að allir þeir sem vettlingi geta
valdið sameinist um að snúa
vörn í sókn. Félagið fagnar því
þeim hugmyndum sem fram
koma í fundargerð bæjarráðs
Siglufjarðar frá 8. sept. 8. lið
um ráðstefnu um atvinnumál
og fund með forsætisráðherra.
Einnig kemur fram í álykt-
uninni að Verkalýðsfélagið
Vaka telur það mjög alvarlegt
þegar fyrirtæki og stofnanir
nýta sér bágt atvinnuástand og
gera tilraunir til að færa kjör
starfsmanna sinna niður að eða
niður fyrir lágmarkskjör.
Siglufjörður
Áhyggjur
vegna
atvinnu-
ástands
ÍSLENSK málnefnd hefur
ákveðið að veita viðurkenningu
fyrir íslenska málnotkun í aug-
lýsingum.
Fyrir nokkrum áratugum
voru alþekkt einkunnarorðin „af
ávöxtunum skuluð þér þekkja
þá“ í auglýsingum frá verslun
þar sem m.a. fengust ávextir.
Óskað er eftir ábendingum
frá almenningi um góð einkunn-
arorð eða orðasambönd sem
notuð eru í nýjum og nýlegum
auglýsingum á prenti, í vefmiðl-
um, útvarpi eða sjónvarpi. Til
greina koma hvers kyns auglýs-
ingar þar sem möguleikar í ís-
lenskri málnotkun eru nýttir á
sérlega snjallan og smekklegan
hátt í einkunnarorðum eða orða-
samböndum.
Tekið er við ábendingum í Ís-
lenskri málstöð, Neshaga 16,
107 Reykjavík, netfang kari@is-
mal.hi.is. Frestur er til 31. októ-
ber 2004. Stefnt er að því að
veita viðurkenninguna 20. nóv-
ember á málræktarþingi Ís-
lenskrar málnefndar sem verð-
ur haldið undir merkjum dags
íslenskrar tungu, segir í frétta-
tilkynningu.
Viðurkenning
fyrir íslenskt
mál í auglýs-
ingum