Morgunblaðið - 24.12.2004, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2004 45
FRÉTTIR
Breska sendiráðið, Reykjavík
Styrkir til náms
Breska sendiráðið býður íslenskum náms-
mönnum að sækja um „Chevening" styrki til
framhaldsnáms við breska háskóla skólaárið
2005/2006.
Umsækjendur þurfa annað hvort að hafa tryggt
sér skólavist eða hyggja á framhalds-
nám við breskan háskóla á tímabilinu.
Styrkirnir eru eingöngu veittir til greiðslu á skó-
lagjöldum.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar
um styrkina, sem sumir eru veittir í samvinnu
við Kaupþing Búnaðarbanka og lyfjafyrirtækið
GlaxoSmithKline á Íslandi, má nálgast á vefsíðu
Breska sendiráðsins; www.britishembassy.is
eða í Breska sendiráðinu, Laufásvegi 31, 101
Reykjavík, sími 550 5100 virka daga frá kl. 9.00—
12.00. Eyðublöðin fást einnig send í pósti.
Umsóknum ber að skila í sendiráðið ekki síðar
en 31. janúar 2005. Umsóknir, sem berast eftir
Styrkir
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Fagurhólsmýri, einb. ásamt lóðaréttindum, fnr. 218-2081, þingl.
eig. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður
Austurlands, miðvikudaginn 29. desember 2004 kl. 14:00.
Tjarnarbrú 20, 0101, þingl. eig. Benedikta Theódórs, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf., útibú, Lánasjóður landbú-
naðarins og sýslumaðurinn á Höfn Hornafirði, miðvikudaginn 29.
desember 2004 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
23. desember 2004.
Nauðungarsala
RAGNAR Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Teymis, afhenti ný-
lega Guðnýju Sigurðardóttur,
gjaldkera Neistans, og Margréti M.
Ragnarsdóttur, formanni Neistans,
jólakortastyrk. Fjárhæðin jafn-
gildir þeim kostnaði sem Teymi
hefði annars haft af að senda við-
skiptavinum sínum og velunnurum
jólakveðju.
Með þessu vill Teymi styrkja
starfsemi Neistans í að hlúa að
hjartveikum börnum og aðstand-
endum þeirra.
Neistinn hefur það hlutverk að
hlúa að hjartveikum börnum, fjöl-
skyldum þeirra og aðstandendum.
Starfsemi Neistans snýst einnig um
að auka fræðslu og þekkingu á
hjartasjúkdómum barna. Á vef
Neistans, www.teymi.is , er að
finna frekari upplýsingar um félag-
ið og starfsemi þess.
Á myndinni eru frá hægri Ragn-
ar Marteinsson, framkvæmdastjóri
Teymis, Guðný Sigurðardóttir,
gjaldkeri Neistans, og Margrét M.
Ragnarsdóttir, formaður Neistans.
Teymi styrkir
Neistann