24 stundir - 30.11.2007, Side 1

24 stundir - 30.11.2007, Side 1
24stundirföstudagur30. nóvember 2007230. tölublað 3. árgangur Berglind Magnúsdóttir tók sig til og dreif sig til Hollywood til að læra förðun. Hana langar að farða fyrir sjónvarp og kvikmyndir en áður hafði hún lært hárgreiðslu. Förðun í Hollywood TÍSKA»30 Örn Árnason ætlar að rifja upp gamla revíutíma ásamt söngkonunni Soffíu Karlsdóttur í Iðnó um helgina. Saman munu þau blása lífi í rev- íulögin sem mörgum eru gleymd. Revíulög aftur í Iðnó HELGIN»48 5 2 1 2 3 GENGI GJALDMIÐLA GENGISVÍSITALA 119,89 ÚRVALSVÍSITALA 6.895,56 SALA % USD 61,55 -0,39 GBP 126,95 -0,82 DKK 12,20 -0,29 JPY 0,56 0,04 EUR 90,98 -0,28 -0,49 1,2 NÁNAR 4 VEÐRIÐ Í DAG 14 45% munur á jólakortunum NEYTENDAVAKTIN Menntamálaráðherra segir Sið- mennt misskilja ef félagið heldur að kristin gildi eigi að víkja úr grunnskólum. Það sé fásinna, kristin gildi séu hluti af íslensku samfélagi. „Við eigum ekki að vera feimin við þau.“ Fásinna að kristnin víki úr skólunum »2 Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Um 1.200 manns að minnsta kosti búa í óleyfilegum herbergjum og íbúðum í atvinnuhúsnæði á höf- uðborgarsvæðinu samkvæmt kort- lagningu slökkviliðs svæðisins í febrúar. Varlega áætlað hefur íbúum og búsetueiningum fjölgað um 115 prósent frá síðustu úttekt sem gerð var 2003. ,,Þetta er eins og á kreppuárun- um. Það má segja að það hafi tekið áratugi að koma fólki upp úr sagga- fullum kjöllurum og ofan af köld- um háaloftum og skapa breiðum fjölda viðeigandi húsnæði. Nú býr fjöldi fólks við algjörlega óviðun- andi aðstæður þótt húsnæðið sé öðruvísi nú en kaldur kjallari á Grettisgötu. Það er eins og við höf- um spólað 50 ár aftur í tímann,“ segir Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnasviðs slökkviliðsins. Brunavörnum er víða ábótavant en hendur slökkviliðsins hafa verið bundnar og eru í raun enn, að mati stofnunarinnar. Hendur slökkviliðs bundnar ,,Árið 2003 stóðum við frammi fyrir því að geta ekki gert kröfu um úrbætur þar sem um var að ræða ólöglega notkun á húsnæði. Ef við hefðum gert það sem ein af stofn- unum sveitarfélaganna þá hefðum við í raun verið að fallast á ólöglega notkun. Við kröfðum hins vegar eigendur um að láta af ólöglegri notkun húsnæðisins,“ segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri. Embættið sat þó uppi með fjölda mála sem ekki var hægt að fylgja eft- ir. Síðastliðið vor var ákveðið að heimila skráningu lögheimilis í starfsmannabústað. Jafnframt var gerð breyting á lögum um bruna- varnir og sett inn bráðabirgða- ákvæði sem heimilaði slökkviliðs- stjóra að gera kröfu um úrbætur þótt notkun húsnæðisins stangaðist á við skipulag. Viðkomandi áttu þó að fá að vera óáreittir í húsnæðinu út árið 2008. Bjarni Kjartansson segir Skipu- lagsstofnun ríkisins, sem heyrir undir umhverfisráðuneytið, hafa komist að þeirri niðurstöðu að bráðabirgðaákvæðið stangaðist á við ákvæði í lögum um skipulags- og byggingamál. ,,Við treystum okkur ekki til að beita þessum úrræðum að svo stöddu. Þetta bítur í halann á sér.“ En slökkviliðið telur sig ekki geta horft upp á ástandið lengur. Í næstu viku ætlar það að hefja skoðun á húsnæðinu sem var kortlagt í febr- úar og fer skoðunin fram í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld. ,,Þeim húsum sem eru með það slæmar eldvarnir að við teljum ekki forsvar- anlegt að búa í verðum við einfald- lega að loka. Síðan verða sveitar- félög að gera upp við sig hvað gera skuli þegar húsnæði kallar á aðgerð- ir,“ segir Bjarni og tekur um leið fram að sveitarfélögin séu sammála um að taka verði á málinu. Aftur til kreppuáranna  Minnst 1.200 manns í ólöglegu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu  Slökkviliðið getur ekki horft upp á ástandið lengur og hyggst loka brunagildrum  Lagaákvæði stangast á MEÐ BÖRN Í BRUNAGILDRUM»6 ➤ Á sumum stöðum gáfu for-ráðamenn húsnæðis slökkvi- liðinu upp fjölda íbúa. Upp- lýsingar fengust einnig frá öðrum staðkunnugum. ➤ Ef ekki fengust upplýsingarvar áætlað að 2 íbúar væru í hverri íbúð en 1 í hverju sjálf- stæðu íbúðarherbergi. ÓLEYFILEGAR ÍBÚÐIR Ólöglegt húsnæði Samkvæmt könnun slökkviliðsins bjuggu tveir útlendingar í þessu húsnæði í febr- úar. Svona var umhorfs þar í gær, innan dyra og utan. 24stundir/Frikki Ávítuð fyrir laufhreinsun Borgarstjórn Cardiff í Wales hefur beðið konu afsökunar á hegðun borgarstarfsmanns. Betty Davies, 88 ára, ákvað á dögunum að sópa laufblöðum af veröndinni út á götuna fyrir framan húsið sitt. „Þegar ég kom aftur inn barði götusóp- ari að dyrum hjá mér og til- kynnti mér að ég kynni að fá sekt fyrir að sópa.“ Í yfirlýs- ingu borgarstjórnar segir að ekki tíðkist að sekta fólk fyrir að sópa laufum á götur. aij Tvöföldun Suðurlandsvegar verður boðin út næsta haust og fram- kvæmdir munu hefjast í kjölfarið. Vegagerðin reiknar með að lág- marki níu mánuðum í skipulags- vinnu og umhverfismat fyrir útboðið. Suðurlandsvegur í útboð á næsta ári »4

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.