24 stundir - 30.11.2007, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir
Þeir sem naga neglurnar að
staðaldri eiga oft í stökustu vand-
ræðum með að venja sig af þeim
leiða ávana. Sumir hafa reynt allt
frá því að dýfa fingrunum reglu-
lega í tabasco-sósu til þess að
setja á sig sérstakt naglalakk sem
gerir það að verkum að óbragð
kemur í munninn séu neglurnar
nagaðar.
Fyrsta meðferðarstofnunin
Naglanagarar þurfa þó ekki að
örvænta lengur vegna þess að nú
hefur meðferðarstofnun sem sér-
hæfir sig í þessu vandamáli verið
komið á laggirnar í Hollandi.
Stofnunin var opnuð í haust og
er sú fyrsta sinnar tegundar í
heiminum. Alain-Raymond van
Abbe, yfirlæknir stofnunarinnar,
segir að hann hafi ásamt sam-
starfsmönnum sínum þróað að-
ferð sem gerir naglanag ómögu-
legt. „Þetta er í fyrsta skipti sem
fólk getur raunverulega leitað sér
hjálpar við þessum vanda. Við
búumst við viðskiptavinum alls
staðar að úr heiminum enda
ótrúlegur fjöldi fólks sem á við
þetta að stríða.“
Fullkominn árangur
Van Abbe segir að forprófanir
sem gerðar voru á meðferðar-
forminu hafi leitt í ljós nánast
fullkominn árangur, en í 98% til-
vika hætti fólk að naga neglurnar.
„Mjög fáir hafa enn sem komið
er fallið í sama farið eftir með-
ferðina og ég býst ekki við að það
gerist.“
Að sögn Van Abbe naga um 2
milljónir Hollendinga neglurnar
að staðaldri en rannsóknir hafa
sýnt fram á að 15% fullorðinna,
33% barna og 45% unglinga nagi
neglurnar. Í meðferðinni er sér-
stöku tæki komið fyrir á höndum
nagarans sem kemur í veg fyrir
að hægt sé að naga neglurnar. Á
sama tíma hlýtur hann samtals-
meðferð og við útskrift ætti
vandinn að vera úr sögunni.
Meðferðarheimilið við naglanagi í Hollandi
Meðferð við
naglanagi
24 stundir/Golli
Naglanag Nú er loksins hægt að
fá almennilega hjálp við að hætta
að naga neglur.
Tískufyrirtækið Burberry verður í
þriðja sinn styrktaraðili sýningar í
The National Portrait Gallery í
London. Á sýningunni, Vanity Fa-
ir Portraits, sem verður opnuð í
febrúar næstkomandi, verður að
finna gamlar ljósmyndir og mynd-
ir úr tímaritum af fræga fólkinu. Á
sýningunni verður meðal annars
að finna myndir eftir ljósmynd-
arana Cecil Beaton, Helmut New-
ton og Annie Leibovitz.
Burberry styrkir listasýningu
Madonna hefur ákveðið að taka
höndum saman við Gucci og
mun stjórna góðgerðarkvöldverði
á vegum tískurisans í febrúar á
næsta ári. Samkoman er hluti af
opnun stærstu Gucci-verslunar í
heimi í New York og rennur allur
ágóði til UNICEF. Leikkonurnar
Demi Moore, Gwyneth Paltrow
og Salma Hayek munu verða
Madonnu innan handar í hlut-
verki gestgjafans.
Góðgerðarkvöld-
verður Gucci
Fyrirsætan og þáttastjórnandinn
Tyra Banks segir að fyrirsætu-
bransinn hafi eyðilagt á henni
hárið og hún þurfi að ganga með
hárkollur vegna skaðans. „Mér
finnst afar óþægilegt að fara á
stefnumót vegna þess að ég er svo
hrædd um að þeir sem ég hitti
taki eftir þessu. Ég eyði þess
vegna aldrei nótt með neinum
þar sem ég vil ekki þurfa að taka
niður kolluna.“
Fyrirsætustörfin
eyðilögðu hárið
Um jólin á að láta sér líða vel og
er því um að gera að velja sér klæði
eftir því án þess þó að fara í jóla-
köttinn. Þægilegar flíkur sem
þrengja hvergi að, góðir skór og
flottir fylgihlutir eru allt sem þarf.
Skemmtilegir kjólar þurfa ekki að
vera óþægilegir og eins er um að
gera að vera búinn að ganga háu
hælana til áður en farið er á þeim í
jólaboðin.
Lágbotna skór
Fíngerðir, lágbotna ball-
erínuskór geta farið vel við jóla-
kjólinn en þá er hægt að fá í ýms-
um útfærslum. Engu að síður er
alltaf gaman að klæðast háhæl-
uðum skóm en þá er um að gera að
vera með aðra þægilegri í veskinu
og skipta um þegar kreppir að.
Fjaðrir
Geta gert heildarútlitið ótrúlega
skemmtilegt. Notið fjaðrir sem
hárskraut eða nælur eða búið til
ykkar eigin úr litum sem passa vel
við dressið en fjaðrirnar má einnig
festa á hárband og nota í hárið.
Fylgihlutir
Áberandi fylgihlutir fara best við
stílhreinan fatnað og klikka aldrei
með svarta litnum. Stór gyllt arm-
bönd eða áberandi hálsmen geta
gert ótrúlega mikið og skapa hátíð-
legan blæ. Fallegur toppur með
pallíettum, glimmer eða öðru
áberandi skrauti er flottastur við
þröngar svartar buxur eða kvenlegt
þröngt pils. Látlaus farði hentar vel
með slíku dressi.
Förðun
Leyfðu þér meira í förðun um
jólin og áramótin en gættu þess að
vera ekki með of áberandi farða
eins og litríka augnskugga við
mjög áberandi föt. Slíkt er fallegra
með stílhreinni klæðum.
Nordic-Phoro/Getty
Láttu þér líða vel í jóladressinu
Jólafötin Festu kaup á
þægilegum fötum um jólin.
Þröngir kjólar geta verið þreytandi um jólin
Fjaðrir Eru flottar við jóladressið.
Yfir 46
Glæsilegur fatnaður fyrir
fallegar konur i yfirstærðum
Glæsileg hönnun
Stærðir frá 46