24 stundir - 30.11.2007, Page 64
24stundir RitstjórnSími: 510 3700ritstjorn@24stundir.isAuglýsingarSími: 510 3700auglysingar@24stundir.is
Alex Ferguson sem þjálfað hefur ógrynni af
bestu knattspyrnumönnum heims segir
Portúgalann Cristiano Ronaldo þann besta
sem hjá sér hafi verið.
Ronaldo bestur
«50
MEÐELLÝ
Tinna Hrafnsdóttir leikkonaþarf aldeilis ekki dýra hluti til
að komast í hátíðarskap: „Ég er
mikið jólabarn í mér og hef alla tíð
verið. Það ríkir alltaf mikil jóla-
stemning á mínu heimili. Við bú-
um alltaf til krans og erum voða
dugleg að baka. Það er hefð hjá
okkur Dóa að fara í langa bíltúra í
desember að skoða jólaskreyt-
ingar. Sumir leggja rosalegan
metnað í ljósin og alveg eftir bók-
inni. Svo eru aðrir sem fara sína
persónulegu leið og það er virki-
lega sjarmerandi. Ég kemst alltaf í
svo mikið jólaskap þegar ég
skoða jólaskreytingar.“
Þórunn Erna Clausen leikkonastendur heldur betur í ströngu
fram að jólum því hún fer með eitt
af aðalhlutverkunum í aðventu-
leikritinu Leitin að jólunum sem
er frumsýnt á morgun þriðja árið í
röð í Þjóðleikhúsinu. „Það sem er
skemmtilegt við sýninguna er að
börnin fá að taka virkan þátt í
henni. Þau fara út um allt húsið
með okkur og eru aðaluppistaðan
í sýningunni. Ekki væri hægt að
gera þetta án þeirra. Við erum
fimm leikarar ásamt tveimur tón-
listarmönnum. Í fyrra seldist upp á
sýninguna á örskömmum tíma en
hún er eingöngu sýnd þessar fjór-
ar aðventuhelgar.
Áttu góð ráð fyrir pör sem viljabaka saman smákökur fyrir
jólin? spyr ég kyntröllið Jóa Fel.
„Ég myndi leyfa manninum að
velja uppskriftirnar sem honum
þykja bestar og konunni að búa
þær til. Svo þarf að búa til kúl-
urnar og það geta þau gert í sam-
einingu. Á meðan kökurnar bak-
ast er um að gera að leyfa
manninum að segja konunni frá
því hvernig mamma hans bakaði
fyrir hann því þá kemur upp þessi
góða tilfinning frá því þegar hann
var yngri.“
Tölvuleikjaverðkönnun
Vilhelms Smára og Úlfs
Thoroddsen hjá leikja-
síðunni Gameover.is
leiddi í ljós að dýrustu
tölvuleikir landsins
fást í verslunum BT.
Sex vel valdir tölvu-
leikir í verslunum BT
kosta allt að 8.000
krónum meira en þeir
gera í versl-
unum Elko.
Dýrir leikir í BT
«56
Helgi og Hjálmar eru komnir í samkeppni við
Þorgrím Þráinsson. Sjálfshjálparbók þeirra
kemur út í dag. Hún miðar að því sama og
bók Þorgríms, að gera konur hamingjusamar.
Keppa við Þorgrím
«62
Lestu meira á mbl.is/svidsljos
SPRON Fjölskylduvild er vildarþjónusta sem hentar
fjölskyldunni í hvaða mynd sem hún er og er án endurgjalds.
Í fjölskylduvildinni getur fjölskyldan notið fjárhagslegs ávinnings
í formi endurgreiðslu og fríðinda.
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri
í síma 550 1400 eða á www.spron.is.
Skráðu fjölskylduna á spron.is fyrir áramót
og þú gætir tryggt henni endurgreiðslu þessa árs!
Fjölskyldan í ótal myndum
„Við erum stór og samheldin fjölskylda“
„Við erum lítil og ánægð fjölsky
lda“
„Ég er mín eigin fjölskylda“
Fær fjölskylda þín endurgreiðslu?
Endurgreiðsla og fríðindi sem munar um!
• Endurgreiðsla á hluta af greiddum vöxtum
vegna skuldabréfa, íbúðarlána, erlendra lána,
yfirdrátta og víxla
• Sérkjör á tryggingum hjá VÍS
• 50% endurgreiðsla af debetkortaárgjöldum
• Vegleg inngöngugjöf, möguleiki á tómstunda-
styrkjum og margt fleira
Hæsta endurgreiðsla á einstakling
í SPRON Fjölskylduvild fyrir árið 2006 nam 68.672 kr.!
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við