24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 8

24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 8
Miðlungsstaða íslenskra nem- enda meðal þjóða Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) í svokallaðri Písakönnun, kemur menntamálaráðherra ekki á óvart. Ísland er næst á eftir Króatíu samkvæmt nýjustu niðurstöðum PÍSA um frammistöðu fimm- tán ára unglinga í skólum OECD-landa. Finnland skorar hæst, er í efsta sæti í könn- uninni sem í þetta sinn snýr að nátt- úrufræði, stærð- fræði og lestri. Ís- land er næst á eftir Króatíu, í hópi þeirra landa sem teljast undir með- allagi. Svíþjóð og Danmörk koma betur út, en Nor- egur er neðan við Ísland á listanum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að vissulega sé Ísland ekki að hækka sig, en ekki að lækka heldur nema þá óveru- lega. Íslendingar hafi dýrustu skóla í heimi og góðar aðstæður að öllu leyti. En niðurstöðurnar segir ráð- herra vera staðfestingu á því að einmitt nú sé gott að leggja fram ný frumvörp til breytinga á öllu skóla- kerfinu. Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is Óraunhæft er að hægt sé að koma algerlega í veg fyrir fíkniefnasmygl til landsins. Þetta er mat flestra sem fjalla um málefnið og kemur það fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisend- urskoðunar um ráðstafanir gegn innflutningi ólöglegra fíkniefna til Íslands. Að meðaltali stöðvuðu tollayfir- völd eina smygltilraun þriðja hvern dag á árunum 2003 til 2006. Alls voru 493 til- raunir til smygls á fíkni- efnum stöðvaðar á tímabilinu. Lagt var hald á nálega 180 kíló af kannabis- efnum, amfeta- míni og kókaíni auk umtalsverðs magns annarra efna í þessum til- raunum. Ríkis- endurskoðun hef- ur reiknað út að einungis árið 2006 hafi götuvirði hald- lagðra fíkniefni num- ið tæpum fimm millj- örðum króna. Það jafngildir um 16 þúsund krónum á hvern Íslending. Vilja heildstæða stefnu Karen Bragadóttir, forstöðu- maður tollasviðs hjá tollstjóranum í Reykjavík, segir tollayfirvöld mjög ánægð með skýrsluna. „Að ein- hverju leyti lúta þessar ábendingar að verkefnum sem við höfum verið að vinna að og erum að vinna að. Að öðru leyti er um hluti að ræða sem ýta við okkur og fá okkur til að vinna að þeim málum á næstunni. Sumt af þessu eru hlutir sem hafa verið lengi á dagskrá hjá okkur en við höfum því miður ekki komið í framkvæmd enn þá af ýmsum ástæðum.“ Karen segir að eitt af því sem kemur fram í skýrslunni sé vöntun á heildstæðri stefnu. „Ég hef fulla trú á því að slík stefnumótun verði unnin í framhaldi af þessari úttekt því það hlýtur að vera okkar hlut- verk sem stjórnvalds að fara eftir ábendingum Ríkisendurskoðunar, ekki síst í ljósi þess að við erum þeim sammála.“ Karen segir að embættið leiti auðvitað alltaf nýrra leiða til að gera betur og nýta fjármuni og mannafla eins vel og hægt er. „Við erum að skoða það núna að efla skoðunar- og leitaraðstöðuna okk- ar á hafnarsvæðunum. Við erum því sífellt að finna leiðir til að bæta starfið. Þessi úttekt sýnir að við er- um á réttri leið en við getum gert betur og ég er sannfærð um að það gerist.“ HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Stöðva smygl þriðja hvern dag  Tollayfirvöld leggja hald á meira af fíkniefnum hér en víðast hvar annars staðar  Ríkisendurskoðun telur að enn megi gera betur Tollskoðun Tollayfirvöld hafa náð umtalsverðum árangri í baráttunni gegn fíkniefnasmygli. ➤ Lagt er til að öryggisgæslaverði hert á tollvörusvæðum auk þess sem bakgrunnur þeirra sem þar vinna verði hugsanlega kannaður. ➤ Einnig er því velt upp hvortmiðlægt embætti væri betur til þess fallið að framkvæma stefnu í tollamálum. STJÓRNSÝSLUÚTTEKT 8 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga efast um ávinninginn af því að færa forræði hjúkrunarheimila frá heilbrigðisráðuneyti til félagsmála- ráðuneytis. Í greinargerð með frumvarpi um flutninginn er bent á að öldrun sé ekki sjúkdómur, en hún kalli hins vegar á almenna öldrunar- og umönnunarþjónustu. Veikara fólk á stofnunum Félag íslenskra hjúkrunarfræð- ingar segir á móti að öldrun fylgi oft margvíslsegur heilsubrestur og gamalt fólk hafi oft fjölbreytta sjúkdóma. Þetta fólk þurfi ekki að- eins umönnun og öldrunarþjónstu heldur faglega hjúkrun. Félagið bendir á að stjórnvöld stefni að því að gera gömlu fólki mögulegt að búa heima hjá sér eins lengi og kostur er. Gangi það eftir verði fólk sem vistast á hjúkrunarheimilum framtíðarinnar ennþá veikara en þeir sem þar eru nú. Þörf fyrir hjúkrun muni aukast. Flóknari stjórnsýsla Félagið varar við áætlunum um að skipta daggjöldum aldraðra í tvennt, annar svegar fyrir heil- brigðisþáttinn og hins vegar allt annað. Elsa B. Friðfinnsdóttir, for- maður Félags hjúkrunarfræðinga, telur ekki líkur á að frumvarpið einfaldi stjórnsýslu. Sú staða hjúkr- unarheimila að heyra undir tvö ráðuneyti verði frekar flóknari fyrir starfsfólk og vistmenn. Fagleg afturför Hjúkrunarfræðingar segja einn- ig í umsögn um frumvarpið að þeir telji hættu á að slegið verði af fag- legum kröfum sem þýði afturför og þjónustuskerðingu. Félagið minnir á að öldrunarhjúkrun er sérstakt fagsvið innan hjúkrunarfræðinnar. Fjöldi hjúkrunarfræðinga hafi úr- slitaáhrif á rekstrarkostnað heim- ilanna og afdrif sjúklinga. Ellin er ekki sjúkdómur en vistmenn hjúkrunarheimila verða ennþá veikari í framtíðinni en þeir sem dvelja þar nú Varað við flutningi öldrunarmála milli ráðuneyta SKRÁÐU ÞIG NÚNA Þú færð nánari upplýsingar um Vildarpunkta Glitnis á www.glitnir.is WWW.GLITNIR.IS MORÐIÐ Á LAUGALÆK DULARFYLLSTA MORÐGÁTA 20. ALDAR Hver var morðingi Gunnars Tryggvasonar leigubílstjóra? Hvers vegna var hann myrtur? Hvað fór úrskeiðis við rannsóknina? ÆSISPENNANDI FRÁSÖGN AF EINU EINKENNILEGASTA MORÐMÁLI 20. ALDAR. SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is Ráðherra sér tækifæri í könnun Erum slakir meðalnámsmenn Jóhann R. Benediktsson, lög- reglu- og tollstjóri á Suðurnesjum, segir margt í skýrslu Ríkisendur- skoðunar um fíkniefnainnflutning vera gagnlegt. „Það er vissulega ekki fram- kvæmanlegt að koma algerlega í veg fyrir fíkniefnasmygl hingað til lands. Ég tel þó að þessi skýrsla sýni með afgerandi hætti að yfirvöld vinna mjög gott starf. Tollgæslan og lögreglan á Íslandi virðast mér samkvæmt skýrslunni standa sig mjög vel. Allar tillögur sem hjálpa okkur í baráttunni við þá sem reyna að smygla hingað til lands eru hins vegar vel þegnar.“ Jóhann segir hins vegar að alltaf sé hægt að gera betur. „Ástandið eins og það er í dag er engan veginn viðunandi. Aðgengi ungmenna að fíkniefnum er allt of mikið þrátt fyrir góðan árangur tollayfirvalda. Árangurinn hér er hlutfallslega betri en hjá öðrum ríkjum, það má ljóslega sjá af þessari skýrslu.“ Mikið haft fyrir Jóhann segir að hátt verð fíkni- efna hér á landi bendi til þess að menn þurfi að hafa mikið fyrir því að koma efnum hingað til lands. „Við höfum hins vegar þungar áhyggjur af því að lítið virðist ganga að slá á eftirspurnina. Þess vegna finnst mér sú vitundarvakn- ing sem mér finnst ég greina í sam- félaginu vera afar gleðileg. Þetta er flókið samfélagslegt vandamál og ég fagna því hversu augu margra eru að opnast fyrir því að það verða allir að leggjast á árarnar í þessari baráttu.“ freyr@24stundir.is Vonlaust að stoppa allt smygl Gleðilegt Jóhann Benediktsson fagnar vitundarvakningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.