24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 28

24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is Í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ stendur yfir sýning á úrvali skart- gripa eftir Ásdísi Thoroddsen gull- smið. „Hún hafði gott formskyn og í verkum hennar má greina mjög ríka efniskennd þar sem hún teflir saman grófu og fínu,“ segja dætur Ásdísar, Guðbjörg, Halldóra og Ás- dís. „Hún notaði efni í smíðisgrip- ina sem höfðu ekki verið notuð áð- ur, eins og bláskel, hvalbein, roð, fuglsklær. Það er mikil sköpun í verkum hennar enda var hún frumkvöðull á sínu sviði.“ Þegar dæturnar eru spurðar hvað hafi heillað móður þeirra við gullsmíði svara þær: „Hún ætlaði í keramík en það sem henni fannst heillandi við gullsmíði var hin mikla silfurhefð á Íslandi. Hún var dóttir járnsmiðs og þegar við spurðum hana af hverju hún, kona, hefði ákveðið að fara í gullsmíði þá sagði hún að hún hefði fengið eldskírnina átta ára þegar hún greip tvo fallega rauða bolta á steðjanum hjá pabba. Þeir voru vit- anlega glóandi.“ „Bara húsmóðir“ „Árum saman hefur fólk spurt: Af hverju fáum við ekki að sjá neitt eftir mömmu ykkar? Þess vegna fögnum við mjög þessari sýningu Hönnun- arsafnsins,“ segja dætur Ásdísar. Á sýningunni eru um 50 skartgripir frá öllum tímabilum á starfsævi Ásdísar. Á sínum tíma sýndi hún verk sín er- lendis, þar á meðal í París og Münc- hen. Hún var þó aldrei sérlega af- kastamikill listamaður sem skýrist af því að hún var húsmóðir með stórt heimili, á tíma þegar ábyrgð á heim- ilishaldi var hjá konunum. Heilsu- leysi dró einnig mjög úr afköstum hennar. Dætur hennar segja að hún hafi eitt sinn sagt við þær: Menn halda að ég framleiði mikið en ég er bara húsmóðir.“ Fylgdi sjónrænni köllun Í bók sem Hönnunarsafnið hef- ur gefið út um móður þeirra skrifa þær um hana og segja á einum stað: „Maður furðar sig á því hvaðan mömmu kom smekkurinn; óbrigðult lita- og formskynið og vissan sem einkenndi ekki bara smíðisgripi heldur alla umhverfis- sköpun hennar. Hún var á undan sinni tíð, það var eins og hún hefði þreifianga inn í kviku tímans… Stundum lenti hún í útistöðum vegna framúrstefnu sinnar eins og þegar húsmæður í Barmahlíð mót- mæltu eitursmörtum strigagardín- um í stórum glugga og hugðu þær lækka hverfið í verði. En hún lét slíkt aldrei á sig fá, bræddi kerlur, en fylgdi sjónrænni köllun sinni.“ Ásdís, Halldóra og Guðbjörg „Árum saman hefur fólk spurt: Af hverju fáum við ekki að sjá neitt eftir mömmu ykkar? Þess vegna fögnum við mjög þessari sýningu Hönnunarsafnsins.“ Sýning á skartgripum Ásdísar Thoroddsen Á undan sinni tíð ➤ Ásdís Thoroddsen fæddist ár-ið 1920 og lést árið 1992. ➤ Í tilefni af sýningunni hefurverið gefið út kynningarrit með fjölda ljósmynda, ýmiss konar heimildum og úttekt á skartgripahönnun Ásdísar eftir Aðalstein Ingólfsson. ➤ Sýningin stendur til 16. des-ember. KONANSkartgripir Ásdísar Thor- oddsen eru á sýningu í Hönnunarsafni Íslands. Ásdís var gullsmiður sem var á undan sinni samtíð. Á þessum degi árið 1667 fæddist í Dublin Jonathan Swift, höfundur Ferða Gúllivers. Bókin kom út árið 1726 og naut strax mikilla vinsælda. Talið er að það hafi tekið Swift sex ár að skrifa bókina. Hann ætlaði henni að vera háðsádeila enda hafði Swift takmarkaða trú á mannkyninu. Bókin er hins vegar svo frumleg og skemmtileg að börn hafa ekki haft síður ánægju af henni en fullorðnir. Swift varð í lifanda lífi þekktur fyrir háðsádeiluskrif sín, þar sem hann hæddist bæði að ríki, kirkju og menningarástandi. Margt er á huldu um einkalíf Swifts en kona sem hann kallaði Stellu virtist eiga hug hans allan og vel má vera að þau hafi gengið leynilega í hjónaband. Síðustu ár Swifts einkenndust af einmanaleika og hann óttaðist mjög að verða geðveikur. Hann lést árið 1745. Fæðing Swifts MENNINGARMOLINN Tríó Reykjavíkur heldur tón- leika í Hafnarborg, menning- ar og listastofnun Hafn- arfjarðar, sunnudaginn 2. des. kl.20 og bera þeir yfirskriftina Klassík við kertaljós. Þessir tónleikar eru helgaðir minningu sellósnillingsins og hljómsveitarstjórans Mstislav Rostropovits en hann lést í apríl sl. áttræður að aldri. Flytjendur á þessum tón- leikum eru Gunnar Kvaran sellóleikari og Peter Máté pí- anóleikari. Á efnisskránni verða sónata op. 38 eftir Brahms, Vocalise eftir Rach- maninoff og sónata op. 40 eft- ir Shostakovits. Klassík við kertaljós Gunnar Kvaran Ragnar Th. Sigurðsson opnar sýn- ingu í ljós- myndagall- eríinu Fótógrafí, Skólavörðu- stíg 4, laugardaginn 1. desem- ber frá klukkan 12 til 18. Sýn- ingin stendur til 4. janúar. Sýningin nefnist Litir jarðar. Myndirnar eru allar teknar síðastliðið haust og sýna blæ- brigði íslenskra villijurta í nærmynd. Ragnar Th. er með reyndari ljósmyndurum á Ís- landi. Hann hefur gefið út fjölda bóka, meðal annars í samstarfi við Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlisfræð- ing. Litir jarðar AFMÆLI Í DAG Winston Churchill forsætisráðherra, 1874 Mark Twain rithöfundur, 1835 KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Fólk segir að allt snúist um lífið en ég vil frekar lesa. Logan Pearsall Smith 24stundir/Sverrir Hálsmen 1978, silfur og agat. eymundsson.is Mikið úrval af erlendum bókum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.