24 stundir - 30.11.2007, Síða 30

24 stundir - 30.11.2007, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Berglind Magnúsdóttir, Bella, hefur nýlokið námi í bandarískum förð- unarskóla í sjálfri Hollywood, MKC Beauty Academy. Námið tók ein- ungis þrjá mánuði en að sögn Bellu var meira en nóg að gera þessa þrjá mánuði. „Það var ekki bara förðun sem var kennd í skólanum heldur lærði ég líka allt um förðun í myndatökum, í sjónvarpi, á palli og svo framvegis. Það var líka fjallað um markaðssetningu á sjálfum sér, sjálfstyrkingu, hvernig maður á að koma fram, fatnað í myndatökum og margt fleira,“ segir Bella sem er menntuð hárgreiðslukona. „Mig hef- ur alltaf langað að læra förðun enda gott að hafa með hárgreiðslunni.“ Skyndiákvörðun Þetta var hálfgerð skyndiákvörðun hjá Bellu að skrá sig í námið en ákvörðun sem hún sér svo sann- arlega ekki eftir. „Ég sá umfjöllun um skólann á Netinu, langaði að breyta til og tveimur mánuðum síðar var ég farin út. Ég henti mér algjörlega í djúpu laugina, hafði ekki komið til Los Angeles og þekkti ekki neitt. Samt sem áður var ég ekki stressuð heldur fannst mér þetta bara spennandi. Ég hugsaði með mér að ég kæmi þá heim aftur ef þetta gengi ekki upp. En þetta var rosalega gaman og mjög mikil upplifun. Ég var með yndislegum stelpum í bekk og hef kynnst fullt af fólki.“ Strembinn skóli Aðspurð segir Bella að námið hafi gefið henni mikið og opnað huga hennar. „Það sem stendur helst upp úr er síðasta myndatak- an en hún var fyrir möppu sem við nemendurnir fengum. Þá fengum við að vinna með alvöru módelum í heila viku sem var mjög lærdómsríkt. Við þurftum að vera með fullt af módelum, farða þær, greiða þeim, setja þær í föt og svo framvegis. Þetta gefur manni tilfinningu fyrir því hvernig bransinn er sem mér fannst mjög skemmtilegt. Starfs- fólkið í skólanum eru allt ein- staklingar sem hafa verið lengi í bransanum og þau gáfu okkur raunsæja sýn á hvernig þetta allt saman sé. Námið í heild sinni var spenn- andi og rosalega krefjandi. Þetta var náttúrlega strembinn skóli en það borgar sig. Skólinn var til fimm á daginn en við vorum oft eftir á daginn eða að gera verk- efni á kvöldin. Um helgar und- irbjuggum við okkur fyrir myndatökur,“ segir Bella sem hlakkar til framtíðarinnar. „Ég ætla að hella mér út í þennan bransa, að farða og greiða fyrir myndatökur eða sjónvarp. Ég er þegar komin í nokkur verkefni hér heima og það er því skemmti- legur tími framundan.“ Í förðunarskóla í Hollywood með litlum fyrirvara Skyndiákvörðun sem borgaði sig ➤ Skólann stofnaði förð-unarfræðingurinn og rithöf- undurinn Margaret Kimura. ➤ Skólinn er í Hollywood í Kali-forníu. ➤ Skólinn er ætlaður þeim semvilja að aukið nám í förðun verði til þess að þeir slái í gegn í tísku, kvikmyndum, sjónvarpi, á pallinum eða í blöðum. MKC BEAUTY ACADEMYBella er nýútskrifuð úr MKC Beauty Academy sem er förðunarskóli í Hollywood. Námið var strembið en vel þess virði að mati Bellu sem ætlar að farða fyrir myndatök- ur og sjónvarp. Berglind Magnúsdóttir „Námið í heild sinni var spennandi og rosalega krefjandi. Þetta var náttúrlega strembinn skóli en það borgar sig. “ 24stundir/Ómar Áberandi Augnmálningin er áberandi en varirnar ljósar. Glæsileg Dökk augnmálning og fjólubláar varir draga fram töffarann.. Í tísku Nautnafullar varir og áberandi augu og útkoman er skemmtileg. Hamraborg 7 • Kópavogi • Sími 564 1451 www.modurast.is Ferrari barnabílstólarnir fást í Móðurást Vörurnar fást í verslunum Hagkaupa, Fjarðarkaup og Samkaup - Úrval um allt land

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.