24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 33
24stundir FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 33
Verslunin Yfir 46 var opnuð ný-
verið að Borgarbraut 55 í Borg-
arnesi en eins og nafnið gefur til
kynna selur hún fatnað fyrir konur
sem nota stærri stærðir. Að sögn
Sigrúnar Sigurðardóttur, sem á
verslunina ásamt Inger Helgadótt-
ur, hafa viðtökurnar verið mjög
góðar. „Þetta hefur verið frábært í
einu orði sagt og við erum að fá
fólk frá Norðurlandi, Snæfellsnesi,
Reykjavík, af Hólmavík og Akra-
nesi enda má segja að við séum
mjög miðsvæðis. Fólk fer þá
kannski og fær sér kaffi á Land-
námssetrinu í leiðinni til að gera
meira úr ferðinni.“
Gamall draumur að rætast
Í Yfir 46 má fá föt sem Sigrún og
Inger flytja inn frá Ungverjalandi,
Danmörku og Frakklandi.
„Franska línan okkar rýkur út. Ég
er nýbúin að taka upp nýjar vörur
og það er þegar farið að spyrjast út
að hún sé komin aftur. Þetta eru
mjög falleg föt enda hefur hönn-
uðurinn hannað föt á stórar konur
í fimmtán ár. Við látum sérsauma
fyrir okkur föt í Ungverjalandi og
þá helst föt sem okkur finnst vanta
hér á markaðinn,“ segir Sigrún og
bætir við að með opnun verslunar-
innar sé gamall draumur þeirra
beggja að rætast. „Það hefur verið
ótrúlega gaman frá opnun versl-
unarinnar.“
Franskar kápur og jólakjólar
Aðspurð hvort jólaverslunin sé
hafin segir Sigrún að það sé hún
svo sannarlega. „Herðaslár hafa
verið mjög vinsælar hjá okkur og
hafa hreinlega rokið út. Við erum
líka með franskar kápur sem eru
rosalega vinsælar auk skemmti-
legra regnkápa sem hafa vakið at-
hygli. Svo má ekki gleyma fallegu
sparikjólunum okkar sem rjúka
út.“
Falleg föt í stórum stærðum
KYNNING
Yfir 46 Ný verslun fyrir
konur í stórum stærðum.
www.plusminus.is
S u ð u r l a n d s b r a u t 4
SJÓNMÆLINGAR
sími 517 0317
plusminus@plusminus.is
Upplifið
Sjáið
Njótið
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Mercedes-Benz A-Class sameinar
þægindi, lipurð og glæsileika.
Bíll fyrir þá sem velja gæðin.
BERÐU HÖFUÐIÐ HÁTT
Takmarkað magn Mercedes-Benz A-Class er til afgreiðslu strax á góðu verði.
Innifalin eru vetrardekk og Íslandspakki.