24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 34

24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir Ókeypis -heim til þín - kemur þér við Eftir Hildu H. Cortez hilda@24stundir.is „Jólin verða mjög „glamúrus“ hjá okkur. Það verður mikið um svart og fjólublátt,“ segir Arndís Bára Ingimarsdóttir, versl- unarstjóri Oasis. „Svo er alltaf mikið um gull og silfur fyrir jól.“ Að sögn Arndísar fer alltaf mikið af fínum kjólum fyrir há- tíðirnar. „Við erum með mikið af fínum kjólum úr silki og sat- íni sem eru mjög kvenlegir og svo eru áberandi fylgihlutir sem eru mikið teknir með til dæmis svörtu kjólunum.“ Kvenleg tíska Að sögn Arndísar er jólatískan í ár töluvert í anda Audrey Hepburn. „Kvenleikinn er alls- ráðandi og við erum með mikið af þröngum pilsum sem eru há í mittið. Eins hafa fjólubláar káp- ur verið að slá í gegn og svo er- um við að fá loðslár yfir kjólana og ermar í gylltu og svörtu. Steinar eru að koma mikið inn og eins glimmermix í peysunum. Uppháir leðurhanskar hafa einnig verið mjög vinsælir og lít- il veski eru tekin í stíl við kjól- ana.“ Klassískir litir Lilja Björk Guðjónsdóttir, að- stoðarverslunarstjóri í Zöru, Smáralind, segir svarta litinn verða mest áberandi um jólin. „Það er mest í svörtu, svoköll- uðum „off white“ og brúnum litum. Rauði liturinn var vinsæll en hann er aðeins að detta út en svarti liturinn verður áberandi, enda klassískur, og grár verður líka áberandi. Svo erum við ennþá með blöðrukjólana sem og pallíettu- kjóla og mikið af fallegum hné- síðum ullarkápum með háa kraga. Eins hafa stuttir víðir jakkar verið vinsælir. Við erum með mikið af fínum kjólum sem eru þó þannig að það er hægt að dressa sig upp og niður, þannig að þeir nýtast bet- ur. Þeim er bæði hægt að klæð- ast í vinnunni og úti á lífinu ef maður skellir á sig einhverju skarti, flottu belti og fer í háa hæla. Þá er dressið orðið mjög hátíðlegt. Annars fara árshátíðar- og áramótakjólarnir að rjúka út bráðum býst ég við. Fólk er kannski ekki alveg komið í þann gír ennþá en það gerist alltaf að glamúrinn verður vinsælli þegar nær dregur jólum og áramótum. Að sögn Lilju er mikið spurt um litlar töskur með hátíð- arkjólunum. „Í haust höfum við mikið selt af stórum töskum en nú eru margar farnar að spyrja um lítil, sæt veski undir höndina við fínu kjólana enda passar það betur með þeim en tuðrurnar.“ Kvenlegt og klassískt einkennir jólatískuna Jólakjóllinn í anda Audrey Hepburn Klassískir litir og kvenleg tíska í anda sjötta áratug- arins verða áberandi um jólin. Svart og fjólublátt eru vinsælustu litirnir og mikið selst af fínum ull- arkápum, áberandi fylgi- hlutum og litlum veskj- um. Arndís Bára Ingimarsdóttir Fínir kjólar seljast vel fyrir hátíðarnar. Lilja Björk Guðjónsdóttir Klassískir litir vinsælir. 24Stundir/Brynjar Gauti Hvort sem það er sanngjarnt eður ei þá er það staðreynd að við erum dæmd á nokkrum sek- úndum þegar við hittum nýtt fólk og sá dómur byggist helst á útliti okkar. Það er því mikilvægt að klæðast af öryggi og vera vel snyrtur. Hluti af því að vera sjálfsöruggur er viðhorfið og ör- yggið þarf ekki endilega að lýsa innri líðan. Hluti þess að líta vel út er að vera í fötum sem passa viðkomandi. Annað sem skiptir máli er að vera snyrtilegur því falleg föt skipta litlu máli ef einstakling- urinn er illa hirtur. Neglur Það er ekki nauðsynlegt að fara í handsnyrtingu vikulega en vel snyrtar neglur vekja athygli og sýna að viðkomandi er annt um útlit sitt. Hár Farið reglulega í klippingu því hárið segir mikið um útlit fólks. Ef hárið er litað reynið þá að gera það reglulega svo rótin sé ekki áberandi. Augabrúnir Það eru ekki allir sem kjósa að plokka á sér augabrúnirnar en samt sem áður er hægt að halda þeim vel snyrtum. Þeir sem plokka sig ættu að gera það reglulega því fallega litaðar og snyrtar augabrúnir ramma andlit- ið inn. Hugsaðu vel um sjálfa þig Vel hirt og sjálfsörugg Sjálfsörugg Að hugsa vel um sig er hluti þess að vera sjálfsöruggur. Ný sending af glæsilegum samkvæmisfatnaði Laugavegi 63 • S: 551 4422 Henna hárvörurnar eru unnar úr náttúrulegum jurtum sem vinna með hárinu þegar það er litað. Hárið glansar af heilbrigði Fastur háralitur hylur 100% grá hár. 18 fallegir litir og strípulitur 100% náttúrulegur litur sem endist í 2-3 mánuði. 7 fallegir litir Sjampó og næring sem viðheldur og frískar háralitinn hvort sem hann er náttúrulegur eða litaður. Án parabens og lauryl sulfat. Útsölustaðir: Lyfja, Heilsuhúsið, Apótekið, Heilsuhornið Akureyri, Fræið Fjarðarkaupum, Lyfjaval, Maður lifandi, Apótek Vesturlands Akranesi, og verslanir Nóatúns Long Lasting Colour Colour Powder www.xena.is GLÆSIBÆ S: 553 7060 MJÓDDINNI S: 557 1291 S PA R I - S PA R I S K Ó R & V E S K I no1 no2 no3 no4 no5 no6 Dr.Hauschka Náttúrulegar snyrtivörur Rósakrem fyrir þurra og viðkvæma húð Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber hjálpa til við að varðveita rakann í húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og veitir henni sérstaka vernd. Rósakremið inniheldur einungis hrein náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar lækningajurtir. Það er án allra kemiskra rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á einnig við um allar aðrar vörur frá Dr.Hauschka. Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16, Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni, Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi og Heilsuhornið Akureyri. dreifing: Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga sími 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.