24 stundir - 30.11.2007, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir
Sýningin Undrabörn eftir
bandaríska ljósmyndarann Mary
Ellen Mark stendur yfir í Mynda-
sal Þjóðminjasafns Íslands. Þar
getur að líta myndir af fötluðum
nemendum í Öskjuhlíðarskóla,
Safamýrarskóla og Lyngási sem
teknar voru á síðasta ári. Næst-
komandi sunnudag, þann 2. des-
ember klukkan 15, verður Mar-
grét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður á staðnum og
segir gestum frá verkefninu.
Einnig verður sýnd heimild-
arkvikmyndin Alexander eftir
Martin Bell, en hún er 40 mín-
útna löng og fjallar um líf eins
nemanda í Öskjuhlíðarskóla, en
myndin hefur verið sýnd daglega
í fyrirlestrarsal safnsins á milli
klukkan 13 og 17 á meðan sýn-
ingin Undrabörn hefur staðið yf-
ir.
Mary Ellen er þekkt fyrir
myndir þar sem horfst er í augu
við raunveruleikann og hefur
myndað heimilislaus ungmenni í
Seattle, starf líknarstofnunar
móður Teresu í Kalkútta og
vændishús í Mumbai svo fátt eitt
sé nefnt. Þegar hún kom til Ís-
lands árið 2006 heillaðist hún
mjög af því starfi sem unnið er
með fötluðum börnum á Íslandi.
Í kjölfarið leitaði Þjóðminjasafn
Íslands eftir samstarfi við Mary
Ellen Mark um að ljósmynda líf
fatlaðra barna á Íslandi.
Þjóðminjavörður Mar-
grét Hallgrímsdóttir verð-
ur með leiðsögn um sýn-
inguna Undrabörn á
sunnudaginn.
Þjóðminjavörður fræðir gesti um Undrabörn
Myndir af undrabörnum
Eitt merkasta verk Kjarvals í kúbískum stíl, Hvíta-
sunnudagur, er komið til landsins og verður nú sýnt
í fyrsta skipti á sýningu á Kjarvalsstöðum. Sýningin
verður opnuð á sunnudaginn, 2. desember, og
stendur út mánuðinn.
Málverkið kom í leitirnar í Danmörku í febrúar síð-
astliðnum en þess hafði verið leitað lengi. Kjarval
málaði Hvítasunnudag þegar hann hafði nýlokið
námi við Konunglegu dönsku listaakademíuna árið
1917. Það vakti mikla athygli í íslenskum fjöl-
miðlum þegar verkið fannst og mikil eftirvænting
ríkti þegar ljóst var að það ætti að bjóða það upp á
uppboði. Mikil leynd hvíldi yfir kaupanda verksins
og margir bundu vonir við það að þessi mikilvægi
hlekkur í listasögu Kjarvals rataði til Íslands. Nú er
komið í ljós að þar var Landsbankinn að verki og
hefur hann boðið Listasafni Reykjavíkur að taka
það til sýningar fyrir almenning.
Hvítasunnudagur verður í öndvegi í austursal Kjar-
valsstaða auk fleiri verka sem Landsbankinn keypti
á síðasta ári þegar hann fagnaði 120 ára afmæli sínu.
Um er að ræða meðal annars kolateikningar frá
1924-25 eftir Kjarval, sem fundust uppi á háalofti
gamla Stýrimannaskólans í Reykjavík sumarið 1994.
Auk Kjarvalsverkanna verða til sýnis verk eftir fleiri
listamenn á borð við Finn Jónsson, Gunnlaug
Scheving, Ásgrím Jónsson, Nínu Tryggvadóttur,
Guðrúnu Einarsdóttur, Eggert Pétursson, Jón B.
Ransú og fleiri.
Hvítasunnudagur kominn
Hvítasunnudagur Eitt merkasta
verk Kjarvals í kúbískum stíl
kemur fyrir sjónir almennings.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Sýningin „Flickr, flakk og heljar-
stökk“ verður opnuð í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur á morgun en eins
og nafnið gefur til kynna er á henni
safn ljósmynda af ljósmynda-net-
samfélaginu flickr.com. Á sýning-
unni verða um 220 myndir eftir 95
manns, bæði atvinnu- og áhuga-
ljósmyndara. „Við bjuggum til
okkar eigin flickr-síðu síðastliðið
sumar þar sem við buðum fólki að
senda okkur myndir fyrir þessa
sýningu. Við höfðum opið fyrir
sendingar í tvo mánuði og fengum
ótrúlega mikil viðbrögð og það var
mjög erfitt að velja úr þeim fjöl-
mörgu góðu myndum sem við
fengum,“ segir Jóhanna Guðrún
Árnadóttir, sýningarstjóri.
Áhugaverður vettvangur
Flickr.com er afar áhugavert
netsamfélag að sögn Jóhönnu og
því full ástæða til að halda sýn-
ingu á ljósmyndum þaðan.
„Flickr er dálítið eins og myspace,
svona staður þar sem fólk með
svipuð áhugamál kemur saman,
skoðar myndir hvað hjá öðru og
ber saman bækur sínar. Notend-
urnir koma víða að. Sumir eru
þaulvanir atvinnuljósmyndarar
og aðrir eru kannski að þreifa sig
áfram í áhugaljósmyndun,“ bend-
ir hún á. „Það er líka ekki langt
síðan fáir áttu stafrænar mynda-
vélar en nú eru þær mjög algeng
eign. Það hefur orðið ótrúlega
mikil gróska í áhuga- og atvinnu-
ljósmyndun á þessum tíma og
flickr á sinn þátt í því.“
Sex flokkar
Myndunum á sýningunni er
skipt niður í sex flokka, en það eru
Daglegt líf, Portrett, Svart/hvítt,
Tíska, Tónlist og Umhverfi. Að
sögn Jóhönnu var leitast við að
hafa sem fjölbreyttastar myndir í
öllum flokkum. „Þannig eru ekki
bara fossa- eða sólarlagsmyndir í
umhverfisflokknum,“ segir hún.
„Annars var hluti af myndunum
í svarthvíta flokknum sýndur á ís-
lenskri menningarhátíð í Prag síð-
astliðinn október.“ Nánar má lesa
um þá hátíð á islandskypruvan.cz.
Sýningin verður opnuð á morg-
un, laugardaginn 1. desember
klukkan 16.
Fjölbreytileg sýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Myndir eftir 95
ljósmyndara
Á flickr.com koma saman
ljósmyndarar úr öllum
áttum, setja inn myndir
og ræða sín á milli. Á
morgun verður opnuð
sýningin „Flickr flakk og
heljarstökk“ í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur
með völdum myndum frá
íslenskum ljósmyndurum
á flickr.
Myndin Harry Potter
helgi eftir Gunnar Sal-
varsson Ein af mynd-
unum á sýningunni.
➤ Myndunum er raðað upp eftirflokkum og í sumum tilfellum
eru valdar athugasemdir af
flickr prentaðar út og hengd-
ar upp með þeim.
➤ Hún stendur yfir fram í miðj-an febrúar.
SÝNINGIN
MENNING
menning@24stundir.is a
Það hefur orðið ótrúlega mikil gróska í
áhuga- og atvinnuljósmyndun á þessum
tíma og flickr á sinn þátt í því.
Leiðarvísir
User Manual
Um þig, manninn,
konuna eða börnin.
Loksins!
Stjörnuspekistöðin
Síðumúli 29
553 70 75
www.stjornuspeki.is
!
" #$%&%'(
)*+, -.
, -. +
+
)* #/
!)*
)--
0 *0
.
1 -
- /-/
-. 2* */ 2
*/
//
3
4
5 / /6! /