24 stundir - 30.11.2007, Side 46

24 stundir - 30.11.2007, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir MENNINGBÆKUR menning@24stundir.is a Ef síðustu þrjú ár eru skoðuð sést að einungis þriðjungur þýddra skáldsagna er eftir konur. Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Kiljur njóta sívaxandi vinsælda á Íslandi og við erum því vongóð um að bækur Handtöskuseríunnar muni falla í kramið. Við erum bjartsýn,“ segir forleggjarinn Sif Sigmarsdóttir. Stílbrot er fjöl- skyldufyrirtæki sem starfrækt hef- ur verið í tvö ár í þeim tilgangi að gefa út þýddar skáldsögur. Hingað til hefur áherslan verið lögð á harð- spjaldaútgáfur um jól en nú hefur fyrirtækið snúið sér að kiljunum Leynd yfir listanum „Við stefnum að því að gera nýj- ar og nýlegar erlendar skáldsögur eftir konur aðgengilegar lesendum á íslensku og verða bækurnar gefn- ar út í kiljuformi fjórum sinnum á ári,“ segir Sif. „Nálgast má bæk- urnar í verslunum auk þess sem hægt er að gerast áskrifandi að rit- röðinni á slóðinni www.handtosku- serian.is,“ segir Sif og bætir við að til að skapa eftirvæntingu verði leynd yfir útgáfulistanum, nema hvað fjölbreytnin mun ráða ríkj- um. „Á næstunni er von á sænskum krimma, frönskum smásögum og hver veit nema einstaka skvísubók slæðist með. En núna byrjum við á Jane Austen leshringnum sem Ölv- ir Gíslason og Eva Hrönn Stefáns- dóttir þýða.“ Efst í Eymundsson Sif segir að þegar verið var að skipuleggja útgáfu Handtöskuserí- unnar hafi komið í ljós að af þeim þýddu skáldsögum sem gefnar eru út á íslensku eru töluvert fleiri titlar eftir karlmenn en konur. „Ef síðustu þrjú ár eru skoðuð sést að einungis þriðjungur þýddra skáldsagna er eftir konur. Það koma því að jafnaði út helmingi fleiri þýddar skáldsögur eftir karl- menn á hverju ári en eftir konur. Þessu viljum við breyta og bæta úr. Ég tel vanta fleiri bækur eftir kon- ur. Af viðtökunum sem Hand- töskuserían hefur fengið tel ég það heldur ekki ólíklegt,“ segir Sif og bendir á að bókin Jane Austen les- hringurinn sé nú komin á lista yfir mest seldu kiljurnar skv. lista Ey- mundsson. Dramadrottning í afneitun En þótt ærinn starfi sé að gefa út bækur kemur Sif Sigmarsdóttir víðar við fyrir þessi jól. Á vegum Máls og menningar kemur út eftir hana unglingabókin Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu sem er sjálfstætt framhald bókarinnar Ég er ekki dramadrottning sem kom út um jólin í fyrra. Sú hlaut mjög góðar viðtökur lesenda jafnt sem gagnrýnenda og reyndist ein mest selda unglingabók ársins 2006. Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu segir frá raunum ung- lingsstúlkunnar Emblu Þorvarðar- dóttur sem lendir í ýmsum drama- tískum ævintýrum. „Ég hef gjarnan verið spurð að því af lesendum hvort Embla þessi sé byggð á sjálfri mér,“ segir Sif sem kveður svo ekki vera. „Ég er nefnilega ekki drama- drottning,“ fullyrðir hún. Sif bætir þó við, að þeir sem þekki hana mótmæli gjarnan þeirri yfirlýsingu og noti það hvar sagan um dramadrottninguna varð til gegn henni. „Dramadrottningin varð til þar sem ég stóð öskrandi og æpandi uppi á eldhúskolli en þang- að hafði ég stokkið vegna þess að lítil könguló hljóp um eldhúsgólf- ið. Það er því kannski eðli drama- drottninga að lifa í afneitun.“ Ekki lengur harðspjöld „Kiljur njóta sívaxandi vinsælda á Íslandi,“ segir Sif Sigmarsdóttir. Sif Sigmarsdóttir er forleggjari Handtöskuseríunnar Kiljur eftir konur Fagurbókmenntir, glæpa- sögur, smásögur og skáldverk eru meðal þess sem er á útgáfulista Handtöskuseríunnar. Jane Austen leshring- urinn eftir metsöluhöf- undinn Karen Joy Fowler er fyrsta bókin. ➤ Von er á sænskum krimma,frönskum smásögum og hver veit nema einstaka skvísubók slæðist með. HANDTÖSKUSERÍAN Út er komin ljóðabókin „Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mín- um!“ eftir skáldið unga Eirík Örn Norðdahl. Af því tilefni hefur verið opnuð síðan fonix.spekingar.com. Þar er hægt að sjá upplestra úr ljóðum úr einræðisherraseríunni, skoða þrjú myndljóð - þar af tvö sem hafa ver- ið endurútsett fyrir vefinn, auk þess sem lesa má nokkur ljóð úr hinum ólíku hlutum bókarinnar, meðal annars eftirfarandi ljóð: 2X2. vers Bára, er molnarofaná koparfarf- aðri eyðimörk. Andvari, er geysistinnanum haf- djúpslitað hey.Blómstur, er sálaðist. Mín sjálfsvera kastaði grjóti að mjallarljósu steinþili,ok grjótið skríkti „Þjónn, það er Fönix í ösku- bakkanum mínum“ fæst í öllum helstu bókaverslunum landsins en þeir sem keyptu eintök í forsölu geta nálgast þau í verslun Smekk- leysu við Laugaveg. Ný ljóðabók Eiríks Arnar Norðdahl Fönix í öskubakka Bókaútgáfan Dimma hefur gefið út Ljóð eftir Óskar Árna Óskarsson með völdum ljóðum úr fyrri bók- um höfundar. Bókinni fylgir tón- skreytt geislaplata með lestri skáldsins við undirleik Sunnu Gunnlaugsdóttur, sem leikur sína eigin tónlist á píanó. Einnig er komin út bókin Ljóð eftir Sigurð Pálsson með tónlist eft- ir Jóel Pálsson. Um er að ræða tvo ljóðaflokka, Árstíðarsólir og Sumir dagar Sumardagar, en ljóðin komu fyrst út í bókunum Ljóð vega salt og Ljóð vega menn. Þeirri bók fylgir einnig geislaplata með lestri skáldsins þar sem Jóel Pálsson leik- ur eigin tónlist á saxófón, klarínett, kontrabassaklarínett og raftól. Áður hefur Dimma gefið út í sömu ritröð ljóð Gyrðis Elíassonar með tónskreytingum Kristins Árnasonar, ljóð Ingibjargar Har- aldsdóttur með tónskreytingum Tómasar R. Einarssonar, ljóð Að- alsteins Ásbergs Sigurðssonar með tónskreytingum Sigurðar Flosa- sonar og fleiri. Tvær ljóðabækur frá Dimmu Tónskreytt ljóð FRÍTT Í BÍÓ P IP A R • S ÍA • 7 2 4 0 4 Gáfaðar græjur Nýju HP Photosmarttækin tala saman, milliliðalaust. Engin tölva! Þú einfaldlega tengir myndavélina beint í prentarann eða stingur minniskortinu í hann og prentar út myndirnar þínar. SÖLU- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR: TV Samhæfni - Reykjanesbæ, Akranesi, Borgarnesi • TRS - Selfossi Eyjatölvur - Vestmannaeyjum • Verslun Opinna kerfa - Reykjavík SÖLUAÐILAR: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar - Húsavík • Hátíðni - Höfn • Kaupfélag Skagfirðinga - Sauðárkróki • Netheimar - Ísafirði • A4 • Start tölvuverslun - Kópavogi • Tölvutækni - Kópavogi • Office 1 • Munus - Hafnarfirði • Snerta Ísland - Vogum

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.