24 stundir - 04.01.2008, Page 2

24 stundir - 04.01.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 13 Amsterdam 0 Ankara -1 Barcelona 8 Berlín -4 Chicago 1 Dublin 3 Frankfurt 1 Glasgow 2 Halifax -2 Hamborg -3 Helsinki -3 Kaupmannahöfn -3 London 3 Madrid 9 Mílanó 0 Montreal -24 München 0 New York -9 Nuuk -14 Orlando -1 Osló -3 Palma 21 París 3 Prag -4 Stokkhólmur -3 Þórshöfn 7 Austlægar áttir og birtir til, en dálítil rigning eða slydda suðaustanlands og fer heldur kólnandi. VEÐRIÐ Í DAG 5 4 8 5 7 Kólnandi veður Austan- og norðaustanátt, 8-15 m/s, en lægir suðvestanlands síðdegis. Rigning eða slydda, en úrkomulítið vestantil. Hiti 0 til 5 stig. VEÐRIÐ Á MORGUN 4 4 5 4 3 Rigning eða slydda Sigríður Gröndal, innkaupastjóri sérvöru hjá Hag- kaupum, segir mjög mikið að gera á útsölum þessa dagana, jafnvel þótt jólaverslun hafi verið mikil. „Fólk er mest að kaupa fatnað og skó, jafnvel á alla fjölskyld- una. Það er mjög mikið að gera núna, sérstaklega í Kringlunni og Smáralind þar sem stærstu búðirnar okkar eru,“ segir hún og bætir við að örtröð hafi skap- ast í Kringlunni í gær. Jólaverslun í ár var 19% meiri en í fyrra ef marka má notkun greiðslukorta frá 15. nóvember og til áramóta. Að sögn Önnu Ingu Grímsdóttur, fjármálastjóra Val- itor, var 15-16% aukning í kortaverslun allt árið en svo jókst hún enn frekar í desember. Anna segir kortaveltu oft mjög mikla frá miðjum desember og fram í miðjan janúar það tímabil spannar bæði lok jólaverslunar og upphaf útsala. Hún segir ekki eins nákvæmlega fylgst með sölunni á útsölunum eins og fyrir jólin. „En það er svo furðulegt að þótt sal- an sé svona mikil fyrir jólin eru alltaf einhverjir til- búnir að versla á útsölum.“ Anna segist búast við því að verslun róist heldur á þessu ári en bætir því við að febrúar og mars séu yf- irleitt rólegustu mánuðirnir á árinu, þá jafnar fólk sig eftir jólin og fer að huga að sumarfríum. fifa@24stundir.is Örtröð á útsölum þrátt fyrir metsölu fyrir jólin Ekki búist við aukinni verslun Útsölur Það er ljóst að margir ætla að gera góð kaup þrátt fyrir að jólaverslun hafi verið mikil. Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum að ferðast ekki til Kenýa vegna óeirða þar eftir kosningarnar 27. desember. Ís- lendingar sem dvelja í Kenýa eða nákomnir ættingjar þeirra geta verið í sambandi við ráðuneytið á skrifstofutíma og utan þess tíma við neyðarþjónustu. Utanrík- isráðuneytið og sendiráð Íslands í Pretóríu fylgjast með ástandinu. Ekki fara til Kenýa Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is „Hefðum við fengið betri upplýs- ingar hefðum við getað breytt mið- anum, en okkur var bara seinkað um hálftíma í senn. Á endanum varð það of seint,“ segir Eva Gísla- dóttir. Hún varð eins og fjöldi ann- arra farþega af ferð frá París til Keflavíkur 30. desember síðastlið- inn vegna þess að skortur var á út- hvíldum áhöfnum hjá Flugleiðum. Veður hamlaði flugumferð frá Keflavík fyrir hádegi þann dag. Bergþór Bjarnason, sem einnig flaug til Parísar þann dag, tekur undir með Evu og segir upplýs- ingagjöf til farþega hafa verið ónóga. Þá segir hann framkomu starfsmanna þjónustuborðs hafa verið til skammar, þeir hafi verið dónalegir og lögreglan verið kölluð til vegna farþega sem var heldur æstur en engin þörf hafi verið á því. „Ísland er nú ekki svo mikið lög- regluríki að fólk megi ekki segja skoðun sína,“ segir hann. Matarvagn í höfuðið Hann er ósáttur við kvörtunar- þjónustu fyrirtækisins, hann hafi áður sent athugasemdir þangað en engin svör fengið. „Það var kona með mér í þessu flugi sem varð fyr- ir því að flugvél lenti í loftgati í fyrra. Hún fékk matarvagn í höf- uðið og hefur verið slæm í höfðinu síðan. Hún hefur margsent kvört- unarbréf en aldrei fengið svar.“ Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingastjóri Icelandair, segir það al- þekkt að áhafnir flugvéla renni út á tíma þegar óveður hamlar flugi. Við því sé ekkert að gera. Hann segir fyrirtækið ekki bótaskylt en leitast sé við að koma fólki á áfangastað eins fljótt og unnt er. Hann segir að í aðstæðum sem þessum séu upplýsingar oft af skornum skammti. Ævinlega sé reynt að svara kvörtunum eins vel og kostur er en fyrirtækið sé stórt og fjöldi farþega gífurlegur. „Þar af leiðandi koma reglulega kvartanir, sumar réttmætar en oft er fólk að reyna að verða sér úti um eitthvað sem það á ekki rétt á.“ ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Löggan send á reiða farþega  Starfsfólk Icelandair sakað um dónaskap  Kvörtunum ósvarað Beðið eftir flugi Fólkið á myndinni tengist ekki fréttinni. ➤ Flugmálastjórn gefur út regl-ur um réttindi flugfarþega. ➤ Þegar flugrekandi ber ábyrgðá töf farþega getur farþegi átt kröfu á bótum fyrir sér- hvert tjón er leiðir af töf. ➤ Þetta á ekki við um tafirvegna veðurs. ÁBYRGÐ FLUGFÉLAGS Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Pilturinn sem saknað var frá því á nýársnótt fannst látinn í Elliðavogi rétt við smábáta- höfn Snarfara. Umfangsmikil leit að piltinum hafði staðið yfir frá því á þriðjudagskvöld. Á annað hundrað manns tóku þátt í leitinni. Leitað var á sjó og landi. Pilturinn sem lést hét Jakob Hrafn Höskuldsson, til heim- ilis í Bröndukvísl 14 í Reykja- vík. Jakob Hrafn var fæddur 1. desember 1988. bee Lenti í sjónum 19 ára piltur látinn „Ég hef ekki feng- ið nein rök fyrir þessari ákvörðun og mér finnst, þar sem ég vinn þarna sem að- stoðarorku- málastjóri, brýnt að vita það af hverju hann fékk stöðuna því ég verð þarna áfram,“ segir Ragn- heiður Inga Þórarinsdóttir að- stoðarorkumálastjóri um þá ákvörðun iðnaðarráðherra að skipa Guðna A. Jóhannesson í stöðu orkumálastjóra, en hún sótti einnig um starfið. Ragnheið- ur Inga hefur óskað formlega eft- ir rökstuðningi frá ráðherra. ejg Vill rökstuðning frá ráðherra Iðgjaldsgrunnur kaskótrygginga hækkar um 15 prósent, rúðutrygg- ingar jafnmikið. Vörður tryggingar hf., sem hækkar gjöldin frá fyrsta janúar, segir nauðsynlegt að hækka kaskó vegna mjög slæmrar af- komu. Framrúðutryggingin sem áður var nær nú yfir allar rúður í bílnum og er það uppgefin ástæða fyrir hækkun á þeim lið. Iðgjald húseigendatrygginga hækkar um átta prósent og iðgjald lög- boðinna brunatrygginga húseigna hækkar um fimmtán prósent. Tryggingafélagið segir báðar þessar hækkanir vera vegna lélegrar af- komu trygginganna. Tryggingar hækka mikið í verði „Ráðherra hafa borist formlegar beiðnir um rökstuðning vegna ráðningar Þorsteins Davíðssonar frá tveimur af þeim fjórum um- sækjendum sem höfðu rétt til þess að óska eftir honum,“ segir Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Hann segir rökstuðnings ráðherra að vænta fyrir 10. janúar. ejg Tveir hafa ósk- að rökstuðnings Stjórnvöld á Srí Lanka hafa sagt upp vopnahléssamningi sem hefur verið í gildi við Tamíl-tígra síðustu sex ár. Mun samningurinn renna sitt skeið á enda 16. janúar næst- komandi. Lýkur þá vopnahlés- eftirliti Norðurlandaþjóðanna, SLMM. Níu Íslendingar hafa sinnt vopnahléseftirliti á Srí Lanka á veg- um íslensku friðargæslunnar. Að auki eru norskir friðargæsluliðar í SLMM. Segir í fréttatilkynningu utanrík- isráðuneytisins að íslensk stjórn- völd óttist að riftun vopnahléssam- komulagsins verði til þess að auka enn hörmungar íbúa landsins. Blaðamaður 24 stunda náði sambandi við Piu Hansson, fjöl- miðlafulltrúa SLMM, en hún vísaði fyrirspurnum til utanríkisráðu- neytis. Ekki náðist í ráðherra áður en blaðið fór í prentun. aij Friðargæsluliðar snúa heim frá Srí Lanka Vopnahléi lýkur Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skrifstofuna undir 1 þaki

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.