24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 04.01.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Erlendar rannsóknir benda til að ódæmigerðar átraskanir gætu ver- ið að aukast, þá líklega sem hluti af lífsstíl, að nota óeðlilegar megr- unaraðferðir til að stjórna þyngd. Spurning hvenær það verður át- röskunarsjúkdómur,“ segir Guð- laug Þorsteinsdóttir sem fer fyrir þverfaglegu teymi sem vinnur með átröskunarsjúklingum á geð- deild Landspítalans. „Konur eru almennt uppteknar af megrun og þyngd, en misjafnt hvað þær ganga langt í megrunaraðferð- um,“ bætir hún við. Guðlaug nefnir að sjúkdómurinn ræni sjúklinga getu sinni. „Þeir sem hafa átröskun verða oft utanveltu og upplifa mikinn kvíða og jafn- vel þunglyndi. Allur tíminn fer í að hafa áhyggjur af mataræði og útliti og þyngd, á kostnað þess að taka eðlilegan þátt í lífinu. Þeir einangrast oft og missa úr fé- lagslegum þroska og sjálfsmyndin verður slök. Þetta er í raun ekkert líf, eins og að hverfa inn í annan heim, eins og Ásrún Eva orðaði það í bók sinni „Horfin í heim át- röskunar“.“ Hættulegar vinkonur Ógnvænleg stækkun samfélaga á netinu sem hvetja til lystarstols og lotugræðgi hefur vakið athygli að undanförnu. Í netsamfélög- unum MySpace og Facebook hafa svokallaðir „pro-ana/mia“ hópar eða „með-lystarstoli/lotugræðgi“ hópar sem hvetja til átrösk- unarsjúkdóma stofnað svæði. Síð- urnar eru eins og stuðningsfélags- skapur, stúlkurnar bera saman reynslu sína, hvetja hver aðra og gefa hver annarri „góð ráð“, nema stuðningurinn snýst um að halda átröskuninni gangandi í stað þess að berjast á móti. Á síðunum er oftar en ekki yfirlýsing um að át- röskun sé lífsstíll og sjúdómurinn settur fram sem tískubóla. Guðlaug segist ekki hafa heyrt af íslenskum síðum enn sem komið er og því samsinnir Alma hjá Forma samtökunum og segir íslenskar stelpur para sig saman og leita í þær erlendu. „Pro-ana-síður eru stórhættu- legar, og fyrir þá sem eru í áhættu að þróa átröskun og sjá átröskun sem lausn á sínum vanda, getur þetta orðið eins og fíkn að velta sér upp úr þessu,“ segir Guðlaug. Alma segir sömu sögu og segir glæpsamlegt að hvetja til fíknar sem leiði til dauða. „Þær stelpur sem hafa tekið um það meðvitaða ákvörðun að lystarstol sé lífsstíll og hvetja aðra til hans á að taka með valdi og svipta öllum al- mennum réttindum svo sem sjálf- ræði. Þeirra vegna og annarra vegna. Þær sem halda úti þessum vefsíðum eru mikið veikar og ala á ótta annarra veikra stelpna til að haldast í hendur í dauðastríðinu.“ Er fræðsla skaðleg? Alma og Edda hjá Forma sam- tökunum sinna ráðgjöf til þeirra er stríða við átröskunarsjúkdóma. „Við bendum á leiðir til úrlausn- ar. Bendum á hvert hægt er að leita eftir hjálp. Hjá sálfræðingum og geðlæknum er unnið gott starf sem mætti þó vera öflugara, við erum skammt komin í forvörnum og meðferðarúrræðum hér á landi,“ segir Alma. „Það er mikið hér á Íslandi um að fólk segi fræðslu um átraskanir skaðlega. Að fræðslan sjálf leiði jafnvel til átraskana. Þetta heyrir maður hvergi erlendis. Ég held að það þurfi að kæfa þetta viðhorf, fræðslan snýr að tilfinningum og líðan barna og samfélagið sem við lifum í er þannig að mikilvægt er að sofna ekki á verðinum.“ Ódæmigerðar átraskanir færast í vöxt Fjöldi kvenna glímir við átraskanir Guðlaug Þorsteinsdóttir geðlæknir og Alma Geir- dal hjá Forma samtök- unum ræða um átrask- anir, pro-ana eða með-átröskunum áróður og ódæmigerðar átrask- anir sem ræna getu og lífsgleði ungs fólks. „Konur eru almennt uppteknar af þyngd“ „En misjafnt er hversu langt þær ganga í megrunar- aðferðum.“ Proana vefsíður „Þær sem halda úti þessum vefsíðum eru mikið veikar og ala á ótta ann- arra stelpna.“ Auglýsingasíminn er 510 3744 stundir Rope Yoga Rope Yoga Rope Yoga Rope Yoga ROPE YOGA 8 vikna námskeið hefjast 14. janúar Skráning í síma 891-7190 eða á www.sigga.is Kennari: Sigríður Guðjohnsen www.sigga.is Fagralund við Furugrund í Kópavogi Polarolían fæst í: apótekum, Þín verlsun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum og Melabúð Polarolje Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarma starfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Pólarolía góð fyrir líkamann Í nýlegri doktorsrannsókn Lin- nAnne Bjelland Brun-borg kom í ljós að selolía sem var gefin í gegnum sondu beint niður í skeifu-görn linar liðverki og dregur úr liðbólgum og hefur að auki jákvæð áhrif á þarmabólgu. Fæða áVesturlöndum inniheldurhlutfallslega mikið magn af omega 6 fitusýrum í samanburði við omega 3fitusýrur. Þetta getur orsakað ójafnvægi í líkamanum, sem að einhverju leyti getur útskýrt af hverju margt fólk þjáist af offitu og ýmsum lífsstílstengdum sjúkdó- mum eins og hjarta- og æðasjúk- dómum, sykursýki og krabbameini. Besta leiðin til greiða úr þessu ójafn- vægi er að auka neyslu á sjávarfangi sem almennt er auðugt af langkeðju omegafitusýru og samtímisað minnka neyslu ámatvörum sem eru ríkar af omegafitusýrum. Þarmabólga og liðverkir Rannsókn Brunborgsáselkjöti bendir tilað þaðsé bæði holl og öruggfæða.Selspikið er mjög ríkt aflangkeðju omega fitusýrumsem hefur áhrif á staðbundinhormónsem meðalannarseru mikilvæg fyrir bólgu-viðbrögð líkamans.Virknisel- olíunnar á bólguviðbrögðvar prófuð í klínískri tilrauná sjúklingum með liðverkiog IBD. IBD-sjúklingarhafa oft minnkandi starfs-getu og lífsgæði vegnasjúkdómsins og möguleikará lækningueru litlir. Lyfsem dragaúr liðverkjumgeta gertþarmabólgu- naverri. Brunborgsýndi meðtil- raunum að selolía semvar gefin í gegnum sondulinar liðbólgur og liðverkiog hefur að auki jákvæðáhrif á þarmabólgu.Aðneyta nægilegs sjávarfangsmeð omega fitusýru geturhaft fyrirbyggjandi áhrifþegar um þróun sjúkdómaeins og IBD og annarrabólgusjúkdóma, hjarta- ogæðasjúkdóma er að ræða.Selolía fæst í öllum helstuapótekum og heilsubúðumog ber nafnið Polarolje. Linar verki og minnkar bólgur A U G L Ý S I N G

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.