24 stundir - 04.01.2008, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 24stundir
Hollt nasl og líkamshreyfing
Hvernig stendur þú þig?
Nú er komið nýtt ár og því fylgja gjarnan fögur fyrirheit um að borða hollari mat
og hreyfa sig meira. Hér eru nokkrir spurðir samviskuspurninga um heilsuna.
Sólveig Eiríksdóttir, ráðgjafi hjá Himneskri hollustu:
Mitt uppáhaldsuppáhald til að nasla í eru söl og þau er ég mjög
oft með í töskunni. Þau eru mjög prótínrík og full af andoxunar-
efnum, en um leið mjög orkugefandi og slá á alla sykurlöngun
og maður nær að rífa upp orkuna sem maður kannski gerði áð-
ur með því að fá sér súkkulaði. Það borða allir söl í minni fjöl-
skyldu, meira að segja kettirnir. Síðan finnst mér líka æðislegt
að afhýða lífrænar möndlur og leggja í bleyti í vatni og geyma
inni í ísskáp yfir nótt. Þær verða miklu sætari á þennan hátt og
næringarríkari.
Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari:
Ég borða alltof mikið af sykri og nammi og veit það vel. Þegar
ég ætla að vera einstaklega heilsusamlegur reyni ég að borða
hnetur. Vesenið er hins vegar hvað þær eru fitandi þannig að ég
fer eiginlega frekar bara aftur í súkkulaðið. Ég á mér eiginlega
ekkert heilsunasl þar sem ég stend mig mjög vel í því að borða
hollan mat yfir daginn eða þangað til klukkan slær sjö á kvöldin.
Þá fæ ég þessa sykurþörf og ég lifi ekki daginn af án þess að fá
kók og súkkulaði. Annars borða ég lítið af brösuðum mat, reyni
eftir fremsta megni að borða mikið af grænmeti og hrísgrjónum
og borða mjög mikið af sushi.
Marta María Jónasdóttir, rithöfundur og ritstjóri:
Að vera í formi er afstætt hugtak, einhver sagði að hringlaga
væri líka form. En til þess að lifa í jafnvægi og verða ekki of
skapvond þá mæti ég samviskusamlega til hans Billa í World
Class tvisvar í viku og hann lætur mig gera allskonar kúnstir.
Þess á milli fer ég í sund, þó ekki til að synda heldur til að hanga
í heita pottinum. Þess á milli þeytist ég um húsið með ryksug-
una og ferja innkaupapoka á milli húsa.
Guðrún Möller, eigandi Snyrtiakademíunnar.
Ég verð að viðurkenna að í augnablikinu geri ég ekki neitt til að
halda mér í formi, eða jú, ég á hund sem ég fer mikið út að
ganga með. En ég þarf virkilega að fara að koma mér upp ein-
hverju prógrammi þar sem maður er víst ekki 18 ára lengur. Mig
langar að finna mér skemmtilega líkamsrækt, ég er ofboðslega
góð við sjálfan mig og það þarf einhver að standa yfir mér og
láta mig gera hlutina. Mér finnst mjög gaman að dansa þannig
að ég væri alveg til í ef maður gæti blandað því einhvern veginn
saman við líkamsræktina.
Í nýju og glæsilegu húsnæði
Glæsibæjar verður brátt opnuð
heilsulind þar sem leggja saman
krafta sína Hreyfing og Blue Lagoon
Spa.
Í nýju heilsulindinni verður boðið
upp á ýmsar nýjungar og meðferðir
sem ekki hafa verið fáanlegar hér á
landi. Þar má helst nefna djúpa slök-
un í saltvatni. „Eftir 50 mínútna
slökun fæst sama hvíld og eftir 8
tíma svefn,“ segir Tinna Brynjólfs-
dóttir hjá Hreyfingu. „Þá verður
boðið upp á afar sérstök leirböð sem
eru einstök upplifun og skemmtilegt
fyrir góða vini eða pör að koma í
saman. Leirinn er borinn á líkam-
ann, þá er farið í þar til gerðan klefa
sem hitar leirinn. Í klefann komast
aðeins tvær manneskjur og eftir að
leirinn hefur náð virkni kviknar á
vatnsúða sem skolar honum burtu.
Einstök upplifun,“ bætir Tinna við.
Pottar og gufuböð
„Á skjólgóðu útivistarsvæði
verða heitir pottar og gufuböð þar
sem njóta má síðdegissólarinnar í
góðum félagsskap.
Öll umgjörð verður stór-
glæsileg,“ segir Tinna og nefnir að
fyrirtækin tvö séu komin í útrás
mikla og heilsulindir af sama tagi
og sú í Glæsibæ muni verða víða
um heim. „Öll umgjörð er til fyr-
irmyndar,“ segir Tinna ennfremur
og nefnir heilsusamlegan veit-
ingastað sem bjóði upp á holla og
staðgóða rétti, snyrtistofu og þjón-
ustu af miklum gæðum.
Hreyfing og Blue Lagoon opna heilsulind
Leirböð og djúpslökun
Pottar og gufuböð
Heilsulindin nýja verður
útbúin góðum pottum á
skjólgóðu útivistarsvæði.
„Ég er gigtarsjúklingur með slæma vöðvabólgu í herðum og
öxlum, auk þess er ég mjög slæmur í baki.
Sú meðferð sem Ultratone hefur boðið mér uppá hefur gert það að
verkum að líður betur og ég hef meira starfsþrek“
-Sigurður Árnason
„Ég ákvað að prufa Ultratone fyrir keppni, ég get svo sannarlega sagt að ég hefi verið ánægð með árangurinn, ég hefði
aldrei náð að koma mér í svona gott form ef ekki hefði verið fyrir Ultratone.
“-Sólveig Silfá Sveinsdóttir, keppandi í fitness 2007
Komdu niðrí Faxafen og fáðu ráðleggingar hjá stelpunum í Ultratone
Frír prufutími
í líkamsmeðferð
Tilboð á andlitsmeðferð 5 tímar 11.900 kr
ÞETTA VIRKAR!
„Fór í sogæðanudd fyrir andlit og eftir aðeins eitt skipti sá ég
rosalegan mun. Ég er með mikla bauga og bjúgsöfnun í andliti, og
þegar ég leit í spegil næsta morgun ætlaði ég ekki trúa því hvað ég
var fín, hef ekki litið svona vel út í mörg ár“
-Elín Ólafsdóttir
Hefst
mánudaginn
14. Janúar
Í skíðaferðir og á ströndina
Engin
fituáferð
6 klst. sólvörn
Fæst í apótekum og fríhöfninni
S Ó L A R V Ö R N