24 stundir


24 stundir - 04.01.2008, Qupperneq 43

24 stundir - 04.01.2008, Qupperneq 43
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 43 Um þessar mundir standa yfir fundir milli NBC Universal og ITV um að framleidd verði bresk útgáfa af hinum langlífu Law & Order-þáttum. Þáttaröðin mun hafa fengið vinnuheitið Law & Order: London en þáttaröðin mun byggja á fyrri þáttum sem hafa þegar verið sýndir í Banda- ríkjunum. Þættirnir verða hins vegar stað- og stílfærðir svo að þeir eigi betur við hina vandlátu bresku þjóðarsál. vij Lög og regla senn í London Leikstjórinn Michael Bay til- kynnti aðdáendum sínum í ára- mótapistli á heimasíðu sinni að vinnu við Transformers 2- myndina miðaði vel áfram. Hann lofaði aðdáendum fyrri mynd- arinnar að í mynd númer tvö yrðu vélmennin mun flottari og það sem meira er, þau verða mun fleiri. Transformers 2 er vænt- anleg 2009. vij Fleiri vélmenni í Transformers 2 Söngkonan Christina Aguilera og leikkonan Katie Holmes hafa gert samning þess efnis að þær stöllur leiði saman hesta sína í nýrri kvikmynd. Um er að ræða fjöl- skyldudrama og munu tökur hefjast í febrúar, aðeins nokkrum vikum eftir að Aguilera á von á sínu fyrsta barni. Að sögn heim- ildarmanna er um alvarlega og dramatíska kvikmynd að ræða. hþ Aguilera í mynd með Holmes Stórstjarnan Keira Knightley hyggur á háskólanám þegar hún hefur lagt leiklistarskóna á hill- una. Þetta sagði leikkonan í við- tali við OK! á dögunum og bætti því við að hún hræddist ekki lok kvikmyndaferils síns. „Ég verð ekki endalaust í kvikmyndunum. Einhvern tímann fer ég að gera eitthvað annað og þá fer ég í skóla og læri eitthvað.“ hþ Knightley aftur á skólabekk Gamli góði frasinn um fátæka námsmenn gildir um víða veröld og hafa námsmenn í gegn- um tíðina gripið til ýmissa ráða til að fjármagna skólagöngu sína. Námsmenn við Purdue-há- skóla í Indiana í Bandaríkjunum leggja þó meira á sig en aðrir við fjáröflun sína. Námsmenn þar fá greitt fyrir að þefa af hvers konar úrgangi. „Oftast er þetta lykt sem fyr- irfinnst á sveitabæjum; skítur, sveitaúrgangur og hey. Það eina góða við þetta er að við þefum ekki af þessu í langan tíma,“ segir verkfræði- neminn Anuj Sharma í viðtali við MSNC. Nemendur þéna um 30 dollara, tæpar 1900 krónur, fyrir vinnu sína sem mun nýtast pró- fessornum Albert Heber við rannsóknir sínar en hann vinnur við að takmarka þá lyktarmengun sem vill stundum leggja frá bóndabæjum. Rannsóknir Hebers miða að því að finna út hversu langt fnykurinn getur borist frá bónda- bænum áður en hann verður ógeinilegur fyrir þefskyn hins almenna borgara sem kærir sig kannski ekkert um hina sætu sveitaangan. Hugmyndir Hebers eru þær að með því að prófa margar mismunandi aðferðir til að draga úr langdrægni hinnar fjölbreytilegu lyktar sé hægt að sannreyna hversu gagnlegar þær eru í raun og veru. Í kjölfarið væri svo hægt að nota niðurstöður þessarar rannsóknar til að skil- greina hversu nálægt bújörðum væri hægt að setja íbúabyggð án þess að íbúarnir yrðu lykt- arinnar varir. „Háskólastúdentar eru frekar fá- tækir. Ég hef gert verri hluti en þetta,“ sagði Luca Magnani, einn þefþræla Hebers, um þátt- töku sína í rannsókninni. viggo@24stundir.is Allt er hey í harðindum hjá háskólanemum Námsmenn þefa af skít fyrir peninga Ekki fyrir alla Þó svo að sveitabörnum finnist fjósalykt- in góð er hún ekki öllum að skapi. 24 Stundir/Þorkell GEGGJUÐ RÝMINGAR SALA NÚ VERÐUR ALLT BRJÁLAÐ!! ! Rýmum fyrir árgerð 2008. Seljum alla potta árgerð 2007 á hrikalegu verði. Það er núna eða aldrei. Hvað er betra en að hafa rjúkandi heitann pott í garðinum sínum og slappa vel af í skammdeginu!!!!! Arctic Spas eru Kanadískir gæðapottar Arctic Spas eru sterkir pottar og þola íslenskt veðurfar Arctic Spas þola allt niður að -50gr frosti Eigum mikið úrval af plast tröppum ásamt vönduðum tröppum úr sérvöldumsedrusviði. Seljum einnig Panasonic Nuddstóla. Þetta eru stólar sem þola næstum allt. 2 ára ábyrgð. Gæðastólar Sennilega ódýrustu og bestu hreinsiefnin á markaðinum í dag Klór 1 kg......................................1990 Bromine Töflur..........................2390 PH - ...............................................1990 Síur (ATH taka 1 micron)......3990 Vorum að taka á móti heilum gám. Allt fyrir spilaherbergið, Pókerborð, Billiardbord, spilastólar, Barir og fleira og fleira. Allt unnið úr gegnheilum við (Aski) frá Kanada Opið alla helgina Föstudag 10.00-18.00 Laugardag 10.00-18.00 Sunnudag 12.00- 18.00 Arctic Spas Faxafeni 9 ,108 Reykjavík (ATH: aðkoma í kjallara bakhús) sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is Dönsk hönnun, dönsk gæði, dönsk vara, lífstíðar ending. Þetta eru framtíðarútihúsgögn.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.