24 stundir - 02.04.2008, Síða 4
aUmrætt mál var kynnt fyrir bæjarfulltrúum. Það getur hver ogeinn þeirra staðfest það. Það var gengið á alla bæjarfulltrúa og
spurt hvort svona bréf mætti fara.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, um bréf sem sent var
til Landsvirkjunar til stuðnings byggingar álvers Alcan í Þorláks-
höfn.
24 stundir, 1. apríl 2008.
aVið létum senda bréf þeim [Arctus] þetta bréf til að benda á aðyfirlýsingin hefði ekki neitt gildi fyrr en búið væri að leggja hana
fyrir bæjarstjórn. Bæjarstjóri hefur fullt umboð til að skrifa undir
svona gögn.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, um bréf þar sem Arc-
tus var tjáð að bæjarstjóri hefði undirritað einkaréttaryfirlýsingu
án umboðs.
24 stundir, 1. apríl 2008
aHann er ekki í neinum einkaviðræðum við okkur. Það er öllumfrjálst að ræða við okkur. Það verða ekki mörg álver reist hér á Ís-
landi. Við munum ræða við þá aðila sem hafa tryggt sér aðgang
að orku því málið snýst allt í kringum það.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, um einkaréttarsamn-
ing sem hann gerði við Arctus 8. nóvember 2006.
Viðskiptablaðið, 5. september 2007
aVið höfum veitt þeim [Arctus] vilyrði fyrir lóð sem gildir í allt aðátján mánuði …. Við höfum kynnt þeim [Alcan] það sem við höf-
um upp á að bjóða og gert þeim fulla grein fyrir þessu vilyrði sem
við höfum veitt Alcan.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, um viðræður sínar
við forsvarsmenn Alcan um uppbyggingu álvers í Þorlákshöfn.
Fréttablaðið, 19. júní 2007.
4 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 24stundir
Langar þig að kynnast sagnameistaranum sem í þér býr?
Vantar þig leiðsögn og hvatningu?
Hvort sem þú ert að feta þín fyrstu skref eða hefur reynslu
af skrifum, þá er þetta námskeið sem nýtist þér.
Leiðbeinandi er Þorvaldur Þorsteinsson leikskáld og
barnabókahöfundur (Skilaboðaskjóðan,
Blíðfinnsbækurnar, And Björk, of course...,
Vasaleikhúsið)
Námskeiðið fer fram í Rope Yoga setrinu í Laugardal
Nánari upplýsingar á kennsla.is og í síma 822 3699
Nokkrar umsagnir
þátttakenda:
“Frábært námskeið
sem opnar nýja sýn á
lífið og tilveruna.”
“Fær mann til að
hugsa upp á nýtt!”
“Ófyrirgefanlega
gaman og nærandi
fyrir sálina, hugann
og ekki síst hugmyn-
daflugið.”
“Frábærlega uppbyg-
gjandi.”
með Þorvaldi Þorsteinssyni
Skráðu þig núna á kennsla.is!
SKAPANDISKRIF
10.- 21. apríl
Nefnd um þróun Evrópumála
sem forsætisráðherra hefur skipað
tók til starfa í gær. Nefndin er skip-
uð fulltrúum allra stjórnmála-
flokka sem eiga sæti á Alþingi og
helstu hagsmunaaðila á vinnu-
markaði.
Tveir formenn
Formenn nefndarinnar eru þeir
Illugi Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, og Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar. Þeir eru báðir bjartsýn-
ir á nefndarstarfið og sammála um
nefndin hafi fyrst og fremst það
hlutverk að fylgjast með þróun
Evrópumála út frá íslenskum hags-
munum en sé ekki að fara að und-
irbúa aðildarumsókn enda sé það
ekki stefna ríkisstjórnarinnar. ejg
Nefnd um þróun Evrópumála kemur saman
Aðildarumsókn
ekki á dagskrá
● Vorannir á Alþingi Nú færist
líf í leikinn á Alþingi, þar sem
skilafrestur þingmála á þessu
vorþingi rann út í gær. Ellefu
ríkistjórnarmálum var dreift í
gærdag og von á fleirum.
Þingmannamál hellast inn
líka og allt fer prentun og
dreifingu næstu daga. Anna-
samt er á skrifstofu Alþingis
sem upplýsir ekkert um heild-
arfjöldann fyrr en öllum mál-
um hefur verið dreift. be
● Kristfjárjarðir fyrir austan
Landbúnaðarráðherra leggur til
að andvirði vatnsréttinda krist-
fjárjarðanna Merkis og Arn-
arhóls á Jökuldal verði varið til
félagslegra framkvæmda í sveit-
inni. Kristfjárjarðir eru arfleifð
löngu liðins tíma, en tilgangur
eignarformsins var fyrst og
fremst fátækraframfærsla. be
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu verð á Gunnars majónesi
í 250 ml pakkningu. Hæsta verð er 213,7% hærra en
lægsta verð eða 156 króna munur. Þetta er óvenju
mikill verðmunur og hljóta neytendur að velta vöng-
um yfir hve há álagning er í sumum verslunum miðað
við það verð sem þessi vara er seld á í ódýrustu versl-
unum.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
Þrefaldur munur á majónesi
Sonja
McManus
NEYTENDAVAKTIN
Gunnars majónes 250 ml.
Verslun Verð Verðmunur
Nettó 73
Spar Bæjarlind 99 35,6 %
Kjarval 129 76,7 %
Skagfirðingabúð 132 80,8 %
Samkaup-Strax 165 126,0 %
10-11 229 213,7 %
Eigendur farartækja sem ganga
fyrir metangasi urðu fyrir 6 króna
hækkun á hvern rúmmetra gass í
miðjum seinasta mánuði. Þetta
var þó fyrsta hækkunin í nærri
þrjú ár, og er metangas sem fram-
leitt er í Álfsnesi töluvert ódýrara
en innflutt eldsneyti. Jafngildir
verð á gasinu því að bensínlítrinn
kostaði um 84 krónur.
„Gasið er náttúrlega innlend af-
urð, þannig að það er ekki háð
gengisbreytingum eins og annað
eldsneyti,“ segir Magnús Ásgeirs-
son, sem sér um eldsneytisinn-
kaup hjá N1. „Þótt verðið á gasinu
eigi að endurspegla eldsneytisverð
almennt hefur það breyst mun
sjaldnar og verið stöðugra.“
Björn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Metans, telur að á
milli 80 og 85 metanbílar séu á
götunum. Langflestir þeirra eru í
eigu fyrirtækja eða stofnana
Reykjavíkurborgar.
Ævar Örn Jósepsson er einn ör-
fárra einstaklinga sem aka um á
metanbíl. „Maður er bæði að
spara peninga og vernda umhverf-
ið í leiðinni.“
Ríkið veitir afslátt af vörugjöld-
um á innfluttum metanbílum,
þannig að þeir geta kostað álíka
mikið og sambærilegir bensínbíl-
ar.
„Ef full alvara væri í því að ætla
að fjölga vistvænum bílum á göt-
unum þá myndi ríkið hækka mjög
afsláttinn af vörugjöldum á svona
bílum. Þá færi fólk kannski að
hugsa sig frekar um og íhuga
þennan kost af alvöru,“ segir met-
anbíleigandinn Ævar. aij
Gjaldeyrissveiflur koma ekki illa við pyngjur allra bíleigenda
Verð á metangasi stöðugt
Eftir Þórð Snæ Júlíusson og Elías
Jón Guðjónsson
„Hann fer með rangt mál. Ég stend
alveg við það. Bæjarstjórinn talaði
ekkert um það á þessum fundi í
haust að við hefðum þegar séð bréf-
ið sem var sent til Landsvirkjunar
heldur varði það að hann mætti al-
veg skrifa svona bréf án þess að láta
okkur vita,“ segir Ásgeir Ingvi Jóns-
son, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, um fullyrðingar Ólafs
Áka Ragnarssonar, bæjarstjóra í
Ölfusi. Ólafur Áki hélt því fram í 24
stundum í gær að allir bæjarfulltrú-
ar sveitarfélagsins hefðu vitað um
bréf sem hann sendi Landsvirkjun
síðastliðið sumar þar sem stuðningi
var lýst við byggingu álvers Alcan í
Þorlákshöfn. Bréfið var einnig brot
á einkaréttaryfirlýsingu sem Ölfus
gerði við Arctus ehf. um að fara
ekki í viðræður við neina aðra ál-
framleiðendur. Sú yfirlýsing gildir
fram í maí næstkomandi.
Ásgeir leggur áherslu á að hann
hafi ekki verið á móti álvershug-
mynd Alcan, en að upplýsingar um
málið hafi einfaldlega ekki verið
lagðar fyrir bæjarstjórn né rætt um
þær með nokkrum formlegum
hætti. Í bókun hans segir orðrétt að
það sé „lágmarkskurteisi við kjörna
fulltrúa að aðrir ákveði ekki skoð-
anir þeirra hverjar sem þær eru“.
Vilja ekki verða vanhæf
Samgönguráðuneytið, sem sveit-
arstjórnarmál heyra undir, baðst
undan því að svara spurningum
um það hvort bæjarstjórar geti
skrifað undir einkaréttaryfirlýsing-
ar eða sent bréf til orkufyrirtækja í
nafni sveitarfélags án þess að bera
slíkt undir bæjarstjórn eða -ráð.
„Ég get ekki svarað þessari spurn-
ingu núna þar sem ég mun hugs-
anlega þurfa að svara henni síðar,“
segir Ragnhildur Hjaltadóttir ráðu-
neytisstjóri. Ástæðan er sú að hún
gæti gert sig vanhæfa til að fjalla um
málið. „Samkvæmt sveitarstjórnar-
lögunum er hægt að kæra ýmsar
ákvarðanir sveitarstjórna til ráðu-
neytisins. En ég má ekki tjá mig
vegna þess að þetta gæti komið inn
á borð til okkar.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Segir Ólaf fara
með rangt mál
➤ Bæjarstjóri Ölfuss undirritaðieinkaleyfisyfirlýsingu við Arc-
tus 6. nóvember 2006.
➤ Í henni skuldbindur Ölfus sigtil að eiga ekki viðræður við
aðra álframleiðendur í 18
mánuði.
➤ Arctus vill meina að Ölfus hafibrotið samkonulagið og íhug-
ar málsókn.
EINKARÉTTARYFIRLÝSING
Ólafur Áki sagði í 24 stundum í gær að allir bæjarfulltrúar hefðu vitað af bréfinu.
Bæjarfulltrúi í Ölfusi segir bæjarstjóra ekki hafa upplýst um bréf
til Landsvirkjunar Samgönguráðuneytið vill ekki verða vanhæft
24stundir/Ómar
Ummæli Ólafs Áka um
Arctus í fjölmiðlum
STUTT