24 stundir - 02.04.2008, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 24stundir
Milljónirnar eru ætlaðar í aðgerðir
sem varða vatnsveituframkvæmdir
eins og kemur fram í samningnum,
en slíkar aðgerðir telur sveitarfélag-
ið mögulega geta bætt aðstöðu
þeirra sem búa næst ánni.“
Friðrik segir eingreiðslur frá
Landsvirkjun ekkert einsdæmi og
máli sínu til stuðnings nefnir hann
m.a. eingreiðslur fyrirtækisins til
uppgræðslu á Héraði vegna Kára-
hnjúkavirkjunar og margvísleg
verkefni tengd Blönduvirkjun í
Húnaþingi.
Í frétt blaðsins gagnrýndi Jón
Árni að íbúum sveitarfélagsins hafi
verið kynntar niðurstöður áhættu-
matsskýrslu fyrir virkjunina í októ-
ber, sem enn sé ekki tilbúin, og að
Landsvirkjun hafi sjálf annast gerð
áhættumatsins.
„Alvanalegt er að Landsvirkjun
geri samninga við sveitarfélög
vegna virkjunarframkvæmda.
Samningurinn við Flóahrepp er
ekkert öðruvísi en aðrir slíkir
samningar, segir Friðrik Sophus-
son, forstjóri Landsvirkjunar,
vegna fréttar sem birtist í 24 stund-
um í gær. Í fréttinni sakaði Jón
Árni Vignisson, bóndi í Skálmholti
og landeigandi við Þjórsá, sveitar-
félagið um að setja Urriðafossvirkj-
un inn á aðalskipulag hreppsins
m.a. fyrir fjörutíu milljóna króna
greiðslu frá Landsvirkjun.
„Fjörutíu milljóna greiðslan,
sem nefnd er, er til komin vegna
þess að sveitarstjórnin hefur
áhyggjur af því að framkvæmdir
raski hefðbundinni búsetu og þar
með atvinnustarfsemi næst ánni.
„Niðurstöður um áhættu sam-
fara byggingu Urriðafossvirkjunar
lágu fyrir þegar málið var kynnt,
þrátt fyrir að skýrsla um áhættu-
mat fyrir allar þrjár virkjanirnar í
Þjórsá væri ekki tilbúin. Áhættu-
mat er hluti af hönnun mannvirkja
og þar með er nauðsynlegt að þeir
sem annist hönnunina hafi umsjón
með gerð áhættumats.“
aegir@24stundir.is
Samningur Landsvirkjunar og Flóahrepps vegna Urriðafossvirkjunar
„Alvanalegt samkomulag“
Búlgaría
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
2
9
63
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
T
er
ra
N
o
va
á
sk
ilu
r
sé
r
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
BEINT MORGUNFLUG
Golden Sands í Búlgaríu hefur slegið í gegn hjá Íslendingum. Þessi einstaki sum-
arleyfisstaður býður þín með með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi af-
þreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf.
Athugið að það er mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og gistingar í boði á
þessu einstaka tilboðsverði!
Perla Svartahafsins
– glæsilegur aðbúnaður í fríinu
Bókaðu núna!
www.terranova.is
- síðustu sætin í júní & júlí
150 sæti á frábæru sértilboði
• Sól og frábær strönd
• Ótrúlega hagstætt verðlag
• Endalausir möguleikar á afþreyingu
• Spennandi skoðunarferðir
Þú færð hvergi meira
frí fyrir peninginn!
Hotel Perla
Vinsælt hótel með stórum og góðum sundlauga-
garði og fjölbreyttri og mjög góðri sameiginlegri
aðstöðu. Stórt og gott móttökusvæði með bar,
veitingastað o.fl. Herbergi eru rúmgóð og loftkæld,
öll með baðherbergi og eru nýlega endurnýjuð á
smekklegan hátt með síma og sjónvarpi. Hótel með
fína aðstöðu og gott andrúmsloft. Morgunverð-
arhlaðborð innifalið í gistingu.
Frá kr. 54.990 í viku
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á
Hotel Perla í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí.
Glarus – íbúðir / Club Paradise Park – íbúðir
Frábærar íbúðir
Club Paradise Park
Huggulegt nýlegt (2006) íbúðahótel efst í bænum, í
fallegu skógi vöxnu umhverfi, 600 m. frá strönd og
miðbæ. Móttaka opin allan sólarhringinn, veitinga-
staður, bar og líkamsrækt. Góður sundlaugagarður
með barnalaug. Íbúðirnar eru með 1 eða 2 svefn-
herbergjum og eru rúmgóðar og vel búnar með
sjónvarpi, loftkælingu, síma, ísskáp, örbylgjuofni og
öryggishólfi. Svalir með húsgögnum. Góðar íbúðir
og aðbúnaður fyrir gesti.
Glarus
Glarus er nýlegt (2006) íbúðahótel norðarlega við
Golden Sands ströndina. Góður sundlaugagarður
með barnalaug og sólbekkjum og veitingastaður
hótelsins er opinn inn í garðinn. Líkamsræktar-
aðstaða, snyrtistofa og heilsulind. Íbúðir eru
loftkældar með einu svefnherbergi, baðherbergi
með hárþurrku og stofu með eldunaraðstöðu. Sími
og gervihnattasjónvarp er á öllum íbúðum. Örygg-
ishólf í gestamóttöku. Mjög góður kostur!
Frá kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í
íbúð á Glarus íbúðahótelinu eða Club Paradise Park íbúða-
hótelinu í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí.
Aukavika kr. 15.000.
Líklegt má telja að margir hafi í
gær hlaupið apríl og létu fjölmiðlar
ekki sitt eftir liggja og voru þeir
fullir af mistrúlegum fréttum um
aðskiljanlegustu málefni.
Hér í 24 stundum var sagt frá því
á baksíðu að Björn Ingi Hrafnsson
tæki senn við ritstjórastöðu en
hann kom einnig við sögu í apríl-
gabbi DV sem sagði hann ætla að
árita nýja bók sína um REI-málið.
Mótmæli vörubílstjóra voru
kveikjan að plati Morgunblaðsins
sem sagði þá ætla að sturta möl á
Austurvöll í mótmælum dagsins.
Morgunblaðið sagði einnig frá
því að Bob Dylan ætlaði að syngja
með götusöngvaranum JoJo í
Austurstræti og á mbl sjónvarpi var
boðið upp á ókeypis bíómyndasýn-
ingar sem ekki reyndist fótur fyrir.
Þá sögðu Bylgjan og Fréttablaðið
frá tímabundinni bensínlækkun
Skeljungs við Bústaðaveg.
Vísir var með raðgabb um
snekkju Saddams Husseins sem
hann sagði hingað komna til að
hýsa Al Gore í heimsókn hans.
Ríkisútvarpið sagði frá óvæntum
fundi neðanjarðarhvelfingar í
Öskjuhlíð frá tímum seinni heims-
styrjaldarinnar og var dómsmála-
ráðherra meðal viðmælenda.
Í ár mátti sjá gabb á netinu frá
fleirum en fjölmiðlum.
Landspítalinn sagði frá forn-
leifafundi, notendaviðmót Barna-
lands.is var á dönsku og íslensk út-
gáfa sögð til sölu í verslunum BT.
Sóley Tómasdóttir auglýsti ber-
brjósta mótmæli femínista og vef-
síðan lifiderlan.is bauð upp á 100%
óverðtryggð bílalán. fifa@24stundir.is
Gamla, góða aprílgabbið lifir góðu lífi
Fleiri plötuskjóður en oft áður
um yfir hann þurfum við að endur-
greiða TR hluta af yfirkeyrslunni.
Þetta kerfi dregur úr útgjöldum TR
sem hefur náttúrlega ekki ótakmörk-
uð fjárráð en vegna kerfisins hafa erf-
iðleikar á að veita þjónustu á viðun-
andi tíma aukist. Núna fer fólk ekki á
biðlista en það þarf að leggja út fyrir
aðgerðinni.“
Steingrímur Ari Arason, formaður
samninganefndar heilbrigðisráðherra,
kveðst ekki reiðubúinn að tjá sig um
einstök atriði þess sem ber á milli að
öðru leyti en því að meira hafi borið á
milli í viðræðum við bæklunarlækna
en aðra.
Ekki verður krafist tilvísunar frá
heimilislækni vegna þjónustu bækl-
unarlækna. „Það var ákveðið að nálg-
ast þetta þannig að það ylli sjúkling-
um sem minnstum óþægindum og
þannig að um bráðabirgðaástand væri
að ræða,“ segir Steingrímur.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Sjúklingar þurfa nú sjálfir að leggja út
fyrir aðgerð hjá sjálfstætt starfandi
bæklunarlæknum og getur heildar-
kostnaðurinn vegna dýrustu aðgerð-
arinnar numið 200 þúsund krónum.
Gildandi samningar læknanna við
Tryggingastofnun ríkisins, TR, runnu
út 31. mars síðastliðinn. Nýir samn-
ingar hafa ekki náðst milli samninga-
nefndar heilbrigðisráðherra og bækl-
unarlæknanna sem munu hækka
einingaverð lítillega.
„Verð fyrir svæfingu verður það
sama og verið hefur þar sem svæf-
ingalæknar eru með samning. Við
munum hins vegar hækka eininga-
verðið aðeins,“ segir Ágúst Kárason,
formaður samninganefndar bæklun-
arlæknanna.
Hjá bæklunarlæknum í Orkuhús-
inu, þar sem Ágúst starfar, er nú
heildarverð dýrustu aðgerðarinnar allt
að 200 þúsund krónur. Heildarverð
algengustu aðgerðinnar þar, það er
hnéspeglunargerðar, er 99.360 krónur,
að sögn Ágústs. „Ef allir væru á samn-
ingi og við værum öll með sama ein-
ingaverðið og samið var um við aðra
sérfræðinga þá myndi þessi aðgerð
kosta 93.472 krónur. Ég veit ekki hvað
þessi aðgerð kostar annars staðar.“
Önnur algeng aðgerð er aðgerð
vegna skekkju á stórutá. Heildarverð á
henni er nú 72.630 krónur í Orkuhús-
inu en væri 68.326 krónur ef sama
einingaverð gilti og hjá öðrum sér-
greinum, að því er Ágúst greinir frá.
Hann segir kerfið með afslætti og
skerðingu ekki virka lengur þar sem
það sé vinnuletjandi. „Menn hafa get-
að unnið upp að ákveðnum eininga-
fjölda á mánuði. Þegar honum er náð
hefur komið hár afsláttur á það sem
menn gera. Þar að auki er sérgreinin í
heild með ákveðinn pott og ef við för-
Sjúklingar
greiði sjálfir
Bæklunarlæknar án samnings 200 þúsund á borðið
Speglun á hné Leggja þarf út
tæpar 100 þúsund krónur fyrir
hnéspeglunaraðgerð.
➤ Samkvæmt sérstakri reglu-gerð, sem er að vænta, munu
sjúklingar geta fengið hluta
kostnaðarins endurgreiddan
hjá TR frá og með 1. apríl.
➤ Hámarksgreiðsluþátttakasjúklings hefur hingað til ver-
ið 21 þúsund krónur.
GREIÐSLUÞÁTTTAKA