24 stundir - 02.04.2008, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2008 24stundir
Ég myndi ekki nenna að vera að-
stoðarmaður einhvers en það
væri ekki amalegt að eiga rétt á
aðstoðarmanni. Ég myndi ekki
tvítóla við að ráða Gillzenegger
sem minn aðstoðarmann. Léti
hann píska mig áfram í ræktinni
og redda mér ódýrum kjúklinga-
bringum.
Gunnar Hjálmarsson
eyjan.is/goto/drgunni/
Femínistafélagið mun mótmæla
hlutgervingu kvenna með því að
fara í sund, berar að ofan. Þar
sem ég er brjóstalaus nánast, veit
ég ekki hvort ég get lagt til mál-
staðarins, „but I’ll be damned“ ef
ég tek ekki þátt. Allar vinkonur
mínar mæta[…]og nú er lag að
gefa skít í graðnaglana …
Jenný Anna Baldursdóttir
jenfo.blog.is
Ég trúi engum!
Ég treysti engum!!
Enginn mun gabba mig!!!
Ekkert víst að þetta klikki!!!!
Mikið rosalega er gott að þessi
dagur er bara einu sinni á ári.
Þoli ekki þessa vitleysu, gabb og
hrekki endalaust. Skil ekki fólk
sem hagar sér svona.
Rúnar Rafnsson
rr.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Ég spurði hvort hann [Ólafur Páll
Gunnarsson] ætlaði að hlusta á
plötuna. Hann svaraði að nafnið
væri hrikalegt. Ég gat ekki skilið
hann öðruvísi en að hann væri
ekki búinn að hlusta á hljómsveit-
ina vegna þess að honum finnst
nafnið ljótt,“ segir Baldvin Esra
Einarsson, framkvæmdastjóri út-
gáfufyrirtækisins Kimi Records.
Kimi gaf nýverið út aðra breið-
skífu Morðingjanna, Áfram Ísland.
Baldvin gagnrýnir útvarpsmennina
Ólaf Pál Gunnarsson og Guðna Má
Henningsson fyrir að afskrifa
hljómsveitina vegna nafnsins og
segir lög sveitarinnar ekki hafa
heyrst í Popplandinu frá því að
breiðskífan kom út.
Góðar viðtökur
Baldvin segir tónlist Morðingj-
anna höfða til fólks og bendir á að
breiðskífan Áfram Ísland hafi feng-
ið fullt hús stjarna hjá tónlistar-
gagnrýnanda DV.
„Við erum að fá rosalega góðar
viðtökur þannig að ég held að þessi
ákvörðun sé hvorki byggð á þekk-
ingu á tónlist né því hvað fólk vill
hlusta á,“ segir Baldvin. „Tónlistin
er ekki spiluð vegna persónulegrar
skoðunar útvarpsmanna á nafni
hljómsveitarinnar og engu öðru.“
Baldvin bætir við að Guðni Már
Henningsson, útvarpsmaður á Rás
2, hafi tjáð meðlimum Morðingj-
anna að nafnið henti ekki útvarps-
stöðinni. Honum finnst fyndið
að tónlist bandarísku hljóm-
sveitarinnar The Killers hljóti
náð fyrir eyrun útvarpsmanna
Popplands á meðan Morðingj-
arnir eru úti í kuldanum. Enska
orðið Killer þýðir banamaður,
drápsmaður eða morðingi
á íslensku.
Killer ekki morðingi
Ólafur Páll
Gunnarsson, Óli
Palli á Rás 2, vísar
gagnrýni Baldvins
á bug. „Ég get haft
mínar persónu-
legar skoðanir á
nöfnum hljómsveita
eins og á mat og bíó-
myndum. En það kemur ekki í veg
fyrir að tónlistin heyrist,“ segir Óli.
„Þetta nafn höfðar ekki til mín. En
það hefur ekkert með tónlistina að
gera. Auðvitað stoppar það ekki að
við spilum músíkina þeirra.“
Í sambandi við samanburð
ánafni Morðingjanna og
nafni hljómsveitarinnar
The Killers segir Óli að
orðið morðingi sé allt ann-
að orð en killer. „Þetta er í
raun ekki alveg það sama,“
segir hann. „Killer
er notað yfir allt
annað, það er
miklu víð-
tækara
orð en
morð-
ingi.“
Útgefandi Morðingjanna gagnrýnir störf útvarpsmanna á Rás 2
Nafnið of ljótt fyrir
Popplandið á Rás 2
Baldvin Esra gagnrýnir
útvarpsmennina Ólaf Pál
og Guðna Má fyrir að
setja hljómsveitina Morð-
ingjana út í kuldann
vegna nafnsins. Óli Palli
vísar gagnrýni á bug.
Morðingjarnir Ljúfir
drengir þrátt fyrir hart nafn.
Ljósmynd/Árni Torfason
Óli Palli Vísar gagnrýni á bug.
HEYRST HEFUR …
Hamingjuóskum rigndi yfir Björn Inga Hrafnsson
í gær eftir 24 stundir tilkynntu að hann hefði verið
ráðinn ritstjóri blaðsins. Undirrituðum er ljúft og
skylt að tilkynna að um aprílgabb var að ræða, en
óvissa ríkir enn um hvað Björn Ingi ætlar að taka
sér fyrir hendur. Kunnugir telja þó að málið skýrist í
enda vikunnar og allt virðist benda til þess að hann
finni sér starf í fjölmiðlaheiminum. afb
Útvarpsmennirnir Jóhann G. Jóhannsson og Atli
Þór Albertsson, í útvarpsþættinum Frá A til J á Rás
2, bjóða nú upp forláta hatt frá Björgvini Halldórs-
syni. Hæsta boð er 5.000 krónur þessa stundina, en
peningarnir renna í styrktarsjóð krabbameinssjúkra
barna. Uppboðinu lýkur á fimmtudag og talið er að
miklu hærri upphæð sé hægt að fá fyrir hattinn sem
hefur oft hvílt á höfði hins íslenska Elvis. afb
Allt lítur út fyrir að fyrirsætan Ásdís Rán sé komin í
úrslit áströlsku fyrirsætukeppninni Search for the
Million Dollar Woman. Þátttaka Ásdísar hefur vakið
landsathygli og margir Íslendingar hafa gefið henni
atkvæði sitt á vefsíðu keppninnar. Ásdís heldur að
öllum líkindum til Ástralíu í febrúar á næsta ári þar
sem hún keppir við aðrar föngulegar stúlkur. Verð-
launaféð er nokkuð mikið; ein milljón dollara. afb
„Við erum að leita að hressum
stelpum sem hafa áhuga og vilja
vera með, þetta er góð leið til að
komast í form,“ segir Þórey Heið-
arsdóttir sem hefur stofnað fyrsta
burlesque-danshóp landsins ásamt
vinkonu sinni.
Áhreyrnarprufur fara fram á
laugardag og sunnudag í Heilsu-
akademíunni í Egilshöll klukkan
13. Yfir 20 stelpur hafa skráð sig,
en Þórey vill sjá fleiri. „Það er fínn
áhugi, en ég held að stelpur hafi
áhyggjur af forminu og að þær séu
ekki búnar að æfa dans,“ segir hún.
„Við erum ekki endilega að leita að
úrvalsdönsurum sem hafa dansað í
15 ár. Við viljum bara fá stelpur
sem geta hreyft sig og eru hressar
og með útgeislun.“
Burlesque-dans sækir uppruna
sinn í Viktoríutímabilið á 19. öld. Í
burlesque blanda dansarar saman
kynþokka og húmor svo að úr
verður mikið skemmtiatriði. Dita
Von Teese, fyrrverandi kærasta
Marylin Manson, er einn frægasti
burlesque-dansari heims um þess-
ar mundir.
Nánari upplýsingar um skrán-
ingu í áheyrnarprufurnar er að
finna á Myspace-síðu danshópsins:
myspace.com/burlesqueiceland.
atli@24stundir.is
Burlesque-danshópur með áheyrnarprufur
Leita að stelpum
sem geta hreyft sig
Stofna danshóp Áheyrn-
arprufur verða um helgina.
24stundir/hag
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
6 4 1 3 9 8 7 5 2
7 3 2 4 1 5 8 6 9
8 5 9 2 6 7 1 3 4
3 2 7 6 4 9 5 8 1
9 1 4 5 8 3 2 7 6
5 8 6 1 7 2 4 9 3
1 9 5 7 2 6 3 4 8
2 6 3 8 5 4 9 1 7
4 7 8 9 3 1 6 2 5
Ég var ekki búinn að strauja
mussuna þína.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Ó nei, ég er rétt að byrja. Minn
hinsti dans er ekki stiginn þó að
við séum ekki á leiðinni til Serbíu.
Hefurðu stigið þinn hinsta dans?
Sigrún Birna Blomsterberg er ein fjögurra dansara Euro-
bandsins sem var sparkað úr Evróvisjónframlagi Íslands
að frumkvæði Páls Óskars Hjálmtýssonar. Minn hinsti
dans í flutningi Páls Óskars var framlag Íslands til Euro-
vision árið 1997.