24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 25
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 25
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
Fjöldi færeyskra listamanna
kemur fram í Færeyskri menning-
arveislu sem haldin verður á Kjar-
valsstöðum næstkomandi laugar-
dag frá 14.00 til 18.00. Hátíðin er
haldin í tengslum við myndlistar-
sýningu færeyska meistarans Mik-
ines sem staðið hefur yfir á Kjar-
valsstöðum og lýkur sunnudaginn
6. apríl.
Færeyskur dans stiginn
„Þetta verður afar glæsileg hátíð
og við höfum fengið til liðs við
okkur Færeyingavini um allt Ís-
land sem hafa lagt hönd á plóginn
og færeyskir listamenn koma sér-
staklega hingað til lands vegna há-
tíðarinnar,“ segir Soffía Karlsdótt-
ir, kynningarstjóri Listasafns
Reykjavíkur. Meðal þeirra sem
fram koma er færeyska söngkonan
Katrin Petersen en hún nýtur mik-
illar virðingar í Færeyjum. Hún
skemmtir ásamt Leivi Thomsen,
sem er einn þekktasti gítarleikari
Færeyinga, og bassaleikaranum
snjalla Bjarka Meitel.
„Tríóið mun koma gestum í
færeyska stemningu og eftir það
stíga dansarar frá Færeyjum fær-
eyskan dans og kenna gestum
sporin í þessum vinsæla dansi sem
var dansaður hér á landi en var svo
bannaður en hefur varðveist allan
tímann hjá Færeyingum einum
þjóða,“ segir Soffía.
Mikines á Íslandi
Soffía segir að einn hvatinn að
hátíðinni hafi verið sá mikli áhugi
sem er á gagnkvæmu samstarfi milli
Íslands og Færeyja, ekki síst varð-
andi myndlist. „Þegar við vorum
búin að taka Mikines-málverkin
upp úr kössunum pökkuðum við
Kjarvalsverkum ofan í sömu kassa
og sendum til Færeyja. Nú stendur
yfir í Listasafni Færeyja sýning á
verkum Kjarvals og við erum með
50 málverk eftir Mikines á sýningu
hér á Kjarvalsstöðum.“
Mikines fær vitanlega sína um-
fjöllun á menningarhátíðinni en
Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur
og sýningarstjóri, mun fylgja gest-
um um sýninguna og segja frá
meistara Mikines og samhengi hans
og sérstöðu í færeyskri myndlist.
Færeyskt smakk
„Við leggjum áherslu á að hafa
hátíðina fjölskylduvæna,“ segir
Soffía. „Við verðum með leiki og
létta fræðslu fyrir börn um Mik-
ines-sýninguna og Brúðuleikhús
Helgu Steffensen sýnir brúðuleikrit-
ið Vináttu. Við munum síðan bjóða
upp á ekta þjóðlegan færeyskan
mat, skerpukjöt, rastakjöt, hvalkjöt
og hvalspik og herlegheitunum get-
ur fólk skolað niður með færeysk-
um miði. Svo verður fólk frætt um
það hvernig þessi matur er búinn til.
Þetta verður sem sagt fjölbreytt
og skemmtileg hátíð fyrir alla fjöl-
skylduna.“
Soffía „Þetta verður afar
glæsileg hátíð og við höfum
fengið til liðs við okkur Fær-
eyingavini um allt Ísland sem
hafa lagt hönd á plóginn og
færeyskir listamenn koma
sérstaklega hingað til lands
vegna hátíðarinnar.“
Menningarhátíð á Kjarvalsstöðum
Færeysk fjölskylduskemmtun
➤ Kjarvalsstaðir verða lokaðirfrá mánudeginum 8. apríl til
laugardagsins 19. apríl en þá
verður útskriftarsýning
Listaháskólans opnuð.
➤ Sýningar sem lýkur umhelgina á Kjarvalsstöðum eru:
Mikines, Nína Sæmunds-
dóttir, Kjarval, Byggingarlist í
augnhæð.
KJARVALSSTAÐIR„Við leggjum áherslu á
að hafa hátíðina fjöl-
skylduvæna,“ segir Soffía
Karlsdóttir, kynning-
arstjóri Listasafns Reykja-
víkur, en færeysk menn-
ingarhátíð verður á
Kjarvalsstöðum á laugar-
dag.
Á þessum degi árið 1968 var blökkumannaleiðtog-
inn Martin Luther King myrtur í Memphis í Tennes-
see þar sem hann stóð á hótelsvölum. Hann fékk skot í
höfuðið og var fluttur á spítala þar sem hann lést
skömmu síðar. Hann var 39 ára gamall.
King var ötull baráttumaður fyrir réttindum
blökkumanna og hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið
1964. Öryggi hans var margsinnis ógnað og sprengju
var varpað að heimili hans árið 1956.
Lík Kings lá á viðhafnarbörum í Memphis og vinir
hans og félagar vottuðu honum virðingu sína. Morðið
á King olli óeirðum í rúmlega hundrað borgum víðs
vegar um Bandaríkin en margir töldu stjórnvöld bera
ábyrgð á morðinu. Það var ekki fyrr en 8. júní sem
James Earl Ray var tekinn í yfirheyrslu. Hann var sak-
felldur fyrir morðið og dæmdur til 99 ára fangels-
isvistar. Árið 1998 lést hann í fangelsi.
Baráttumaður
myrtur
MENNINGARMOLINN
Komin er út
hjá bókaút-
gáfunni Bjarti
í kiljuformi
skáldsagan
Piltur og
stúlka eftir
Jón Thorodd-
sen. Fá íslensk skáldverk hafa
náð annarri eins hylli hjá
þjóðinni og Piltur og stúlka. Í
sögunni eru á áhrifaríkan hátt
dregnar upp andstæður sem
síðar áttu eftir að verða
ríkjandi í íslenskum bók-
menntum langt fram eftir 20.
öld: sveitasælan og sollurinn.
Sigríður Rögnvaldsdóttir ritar
formála.
Piltur og stúlka
snúa aftur
Í tilefni Íslandsheimsóknar
bandaríska básúnuleikarans
og tónskáldsins
Normans Bolters og Al-
þjóðadaga básúnunnar í apríl
2008 verður opið hús í Grens-
áskirkju frá kl. 14:00 laug-
ardaginn 5. apríl.
Norman Bolter hefur und-
anfarin 32 ár leikið með Sin-
fóníuhljómsveitinni í Boston.
Á meðal verka sem flutt verða
er nýjasta verk Normans In
All Hearts sem hann samdi
vegna Íslandsheimsóknar
sinnar og tileinkar Íslandi og
vináttu við Odd Björnsson
básúnuleikara.
Básúnuleikur í
Grensáskirkju
AFMÆLI Í DAG
Anthony Perkins
leikari, 1932
Marguerite Duras
rithöfundur, 1914
Maya Angelou
rithöfundur, 1928
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Ég fór aldrei í háskóla. Klár-
aði ekki einu sinni mennta-
skólann. En ég hef fulla samúð
með þeim sem gerðu það.
Terry Pratchett