24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir „Ein klukkustund einkaþotu á flugi jafnast á við ársútblástur venjulegs fólksbíls (sjá hér). Flug forsætis- og utanríkisráðherra til Búkarest gæti hafa tekið um fimm klukkustundir samkvæmt Dohop. Fram og til baka mengar þotan því á við ársútblástur 10 fólksbíla.“ Eggert Sólberg truflun.net/eggert „[…]Þeir sem tekið hafa þátt í mótmælum síðustu áratugi geta augsýnilega margt af vörubíl- stjórum lært. […] En enn vaknar sú spurning, - fá lögreglumenn önnur fyrirmæli í umgengni sinni við verkamennina á vöru- bílunum en við t.d. ungmenni sem mótmæla náttúruspjöllum?“ María Kristjánsdóttir mariakr.blog.is „Þetta er glæsilegt hjá atvinnubíl- stjórum. Loksins koma menn með bein í nefinu sem þora að láta í sér heyra og mótmæla ofur- okri á bensíni og öðrum gjöldum. Áfram bílstjórar! Ekki gefast upp! Hvernig væri að lærisveinar Hannesar Hólsteins færu að safna fyrir atvinnubílstjóra?“ Njáll Ragnarsson njalli.blog.is BLOGGARINN Eftir Viggó I. Jónasson Viggo@24stundir.Is „Þeir þurfa að taka fulla ábyrgð á því sem hefur gerst. Nú er málið bara komið of langt,“ segir Hjalti Úrsus Árnason sem hefur stefnt Fréttablaðið fyrir að birta rógburð um sig í blaðinu. Greint er frá þessu í bæjarblaðinu Mosfellingi í dag. Stefna Hjalta var þingfest 31. janúar og verður tekin fyrir síðar í mánuðinum en sáttaumleitanir hafa ekki skilað neinum árangri. Staðreyndum snúið við Þann 8. október á síðasta ári birti Fréttablaðið frétt þar sem sagt var að fyrrverandi formanni Kraft- lyftingasambands Íslands hefði verið bolað frá völdum af kraftlyft- ingamönnum sem hafi ekki viljað sækjast eftir aðild að Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands af ótta við reglubundið lyfjaeftirlit. Hjalti Úrsus var nafngreindur sem einn af þessum mönnum. Hann fer fram á að ummælin verði dæmd dauð og ómerk, að Fréttablaðið birti leiðréttingu í sínu eigin blaði sem og öðrum miðlum og að blaðið greiði sér 10 milljónir króna í skaðabætur. Frétt Fréttablaðsins kom í kjöl- far aukaþings Kraftlyftinga- sambandsins þar sem meðal ann- ars var rædd tillaga um að kljúfa sig frá Alþjóða kraftlyftinga- sambandinu og ganga í annað samband sem stendur ekki fyrir lyfjaprófunum. Hjalti vill meina að Fréttablaðið hafi látið líta svo út sem hann hafi viljað forðast lyfja- prófin en hann segir að þetta hafi verið þveröfugt. „Eina ástæðan fyr- ir því að ég fór á þennan fund var að tryggja að það yrðu lyfjapróf áfram.“ Hjalti segir að fundargerð aukaþingsins sanni það að Fréttablaðið hafi farið rangt með stað- reyndir í umfjöll- un sinni. Hann segir að hann hafi leitað til Fréttablaðs- ins um að fá fréttina leiðrétta. „Þeir buðu mér að ég myndi leið- rétta þetta. Ég var ekki sáttur við það. Þeir skrifuðu fréttina án þess að ræða við mig og svo á ég allt í einu að leiðrétta þeirra vitleysu.“ Lögfræðingur Fréttablaðsins, Einar Þór Sverrisson, segist ekki svo viss um að Fréttablað- ið hafi farið rangt með staðreyndir í þessu máli. „Við teljum að það séu ekki skilyrði til að dæma einhver ummæli dauð og ómerk,“ segir hann. Hjalti Úrsus stefnir Fréttablaðinu vegna fréttar Vill 10 milljónir í skaðabætur Hjalti Úrsus Árnason hef- ur stefnt Fréttablaðinu vegna fréttar sem birt var 8. október síðastliðinn. Hann fer meðal annars fram á 10 milljónir króna í skaðabætur. 24stundir/Hilmar Ekki sáttur við Fréttablaðið Hjalti vill meina að blaðið hafi vegið illa að heiðri sínum í umfjöllun sinni. Ritstjóri Fréttablaðsins Þorsteinn Pálsson tjáir sig ekki um málið. HEYRST HEFUR … Spennan er í algleymingi í þáttunum Bandið hans Bubba. Fjórir keppendur eru eftir og því ljóst að undanúrslit hefjast í kvöld. Páll Rósinkranz verður gestadómari kvöldsins, sem er við hæfi enda hefur hann verið í fremstu röð íslenskra söngvara lengi. Hann mun því koma sér fyrir á milli Villa naglbíts og Björns Jörundar, en báðir hafa þeir vakið mikla athygli í vetur fyrir smellin tilsvör. afb Rás 2 hefur rokkað hringinn ásamt hljómsveitunum Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang í vikunni. Hópurinn var á Höfn í Hornafirði í gærkvöldi, en í Vestmannaeyjum kvöldið þar áður. Ferðin til Eyja tók sinn tíma, en sjórinn var úfinn og Herjólfur tók sinn tíma í að sigla á milli. Bassi, trommuleikari Benny Crespo’s Gang og Hrói hljóðmaður höfðu þó vaðið fyrir neðan sig og skelltu sér með flugi. afb Annars gengu tónleikarnir í Vestmannaeyjum vel þrátt fyrir svaðilför landkrabbanna á milli eyja. Eftir tónleikana könnuðu hljómsveitirnar pöbbamenn- ingu Vestmannaeyja með Finna, hinn síhressa söngvara Dr. Spock, í fararbroddi. Eftir að barir lokuðu var haldið á gistiheimili þar sem fjörið hélt áfram og Addi, gítarleikari Sign, sló í gegn sem kló- settpappírsmúmía. afb „Ég leik Maríu. Hún er skvísa sem hefur unnið sér það helst til frægðar að hafa orðið í öðru sæti í Ungfrú Ísland,“ segir leikkonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir um hlutverk sitt í sakamálaþáttunum Svörtum englum. Óskar Jónasson leikstýrir þátta- röðinni sem verður í sex hlutum. Handrit þáttanna er byggt á sögum eftir Ævar Örn Jósepsson og stefnt er á að hefja sýningar á RÚV í haust. Ákveðin en brothætt „María er með munninn fyrir neðan nefið, ákveðin og viss í sinni sök,“ segir Þórdís um persónu sína. Hún bætir við að María sé þó brothætt og í rauninni sígrátandi, enda kasólétt með tilheyrandi hormónaflæði. „Ég verð að kreista tárakirtlana fyrir hlutverkið. Það á eftir að ögra mér á skemmtilegan hátt, en ég verð að segja að ég var afskaplega ánægð með það að mér skyldi takast að grenja á æfingunni í morgun.“ Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur eiginmann Þórdísar í þátt- unum. „Þau eru Séð og heyrt-par,“ segir Þórdís. „Hann er sjálfstætt starfandi atvinnurekandi. Svona hot shot sem keyrir um á flottum bíl og á dýr jakkaföt. Það má segja að fegurðardrottn- ingin hafi náð í feitan feng.“ atli@24stundir.is Þórdís Elva brosir í gegnum tárin Leikur ólétta fegurðardrottningu Fegurðardrottning Persóna Þórdísar lenti í öðru sæti í Ungfrú Ísland. Fengur Jóhannes leikur kærasta Þórdísar. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 2 3 6 9 5 7 1 4 8 4 8 7 1 2 6 3 5 9 9 5 1 8 3 4 2 6 7 1 7 3 6 4 2 8 9 5 5 9 4 3 7 8 6 1 2 6 2 8 5 1 9 4 7 3 7 1 9 2 6 3 5 8 4 3 4 5 7 8 1 9 2 6 8 6 2 4 9 5 7 3 1 Vel gert, séra. Sjáumst næst. 24FÓLK folk@24stundir.is a Já, enda er ekki enn búið að útkljá hvort kom á undan. Ætlar eggið að kenna hænunni? Körfuboltalið FSu tryggði sér á miðvikudaginn rétt til að spila í úrvalsdeildinni á næsta ári. Liðið er að mestu leyti skipað nemendum Fjölbrautaskóla Suðurlands. Brynjar Karl Sigurðsson er þjálfari liðsins. 15% afsláttur föstudag og laugardag ÞAÐ VORAR Rauðarárstígur 14 sími 551 5477

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.