24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir Michael O’Brien er latur maður sem ólst upp í Kaliforníu. Þegar hann flutti til miðvesturríkja Bandaríkjanna hélt hann áfram að vera latur og fyrir það ættum við að þakka honum. Hann nennti nefnilega ekki að skipta um dekk tvisvar á ári og fann upp dekk með nöglum sem hægt er að skjóta út eða draga inn með rofa inni í bílnum, allt eftir yf- irborði vegar. Íslendingar ættu að vera góður markhópur, þar sem dekkin sam- eina umhverfiskosti naglalausra dekkja og öryggi nagladekkja. Dekkin, sem heita Q-Celsius í höfuðið á tæknimanni James Bond, koma væntanlega á markað innan árs og munu kosta um 30% meira en hefðbundin vetrardekk. Nöglunum er skotið út með loftþrýstingi og er loftið í dekkj- unum nýtt til þess. Eftir að nöglum hefur verið skotið út 30 sinnum þarf að athuga loftþrýsting dekkjanna. Ný tegund nagladekkja hinn gullni meðalvegur? Nagladekk í anda James BondStarfsmenntanám · Blómaskreytingar · Búfræði · Garðyrkjuframleiðsla · Skógur og umhverfi · Skrúðgarðyrkjubraut www.lbhi.is Háskóli lífs og lands Umsóknarfrestur um skólavist er til 4. júní Bílaverkstæði Smurstöð Verslun Vissir þú að... vélarslitvörn frá Liqui Moly kemur í vegfyrir að vélin bræðir úr sér ef hún verður olíulaus. LÍFSSTÍLLBÍLAR bilar@24stundir.is a Ég get tekið sem dæmi þegar ég keyri til vinnu heiman frá mér í Vesturbænum og til vinnu í Borgartúninu þá keyri ég framhjá sjö bensínstöðvum á fimm kílómetrum. Eftir Einar Elí Magnússon einareli@24stundir.is Á höfuðborgarsvæðinu eru um 70 bensínafgreiðslustöðvar, sam- kvæmt upplýsingum á heimasíð- um olíufélaganna. Á sama svæði eru 196.373 íbúar, þar af 150.398 sem hafa aldur til að keyra bíl. Þessir einstaklingar, ásamt fyrirtækjum, eiga 124.621 fólks- og sendibíl. Leikur að tölum Úr þessum tölum má búa til margs konar tölfræði. Til dæmis að hver bensínstöð anni að meðaltali 1780 bílum. Gefum okkur svo að bíleigendur taki að meðaltali elds- neyti einu sinni í viku, og að meg- inörtröðin sé frá níu á morgnana til níu á kvöldin. Þá er að meðaltali 21 bíll að taka eldsneyti á stöðinni á klukkutíma. Taki hver bíll fimm mínútur að meðaltali, mætti loka bensínstöð með 10 dælum fyrir klukkan hálf- tólf á hádegi, næðist hámarksnýt- ing á afgreiðslutíma. Það er því ljóst að framboð á elds- neytisafgreiðslu er mun meira á höf- uðborgarsvæðinu en eftirspurn. En skyldi það koma niður á neytand- anum, til lengri tíma litið? Skilar sér í álagningu „Framboðið er vissulega mun meira á höfuðborgarsvæðinu en víða annars staðar,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. „Það hefur komið fram í viðtali við forvígismann þess olíufélags sem er stærst á markaðnum að þetta skili sér að hluta í hærri álagningu til neytenda. Eftir að nýr aðili kom inn á markaðinn, fór að fóta sig og koma sér upp aðstöðu, hafa hin félögin sótt um aðstöðu á svipuðum slóð- um. Ég get tekið sem dæmi þegar ég keyri heiman að frá mér í Vest- urbænum og til vinnu í Borg- artúninu þá keyri ég framhjá sjö bensínstöðvum á fimm kílómetr- um. Ég hefði talið æskilegt að héðan í frá yrði svona þjónusta á útboðs- grundvelli. Þá væru gerðir leigu- samningar til einhverra ára og síð- an mættu menn eiga von á því að aðstaðan yrði boðin út aftur að þeim tíma loknum,“ segir Run- ólfur að lokum. Vallargrund 1-3, Kjalarnesi BENSÍNAFGREIÐSLUSTÖÐVAR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Heimildir: Heimasíður olíufélaganna Um 70 bensínafgreiðslustöðvar eru á höfuðborgarsvæðinu Fleiri stöðvar ekki endi- lega neytendum í hag Á sama tíma og sam- keppni á olíumark- aðinum tryggir neyt- endum skammtímatilboð og aukið framboð á af- greiðslustöðvum gæti hún líka þýtt hærri álagn- ingu til lengri tíma litið. Til eru bílar sem leggja sjálfir í stæði, en fyrir þá sem eiga mikið erindi í miðbæinn hlýtur að vera enn meira virði ef hægt er að leggja bílnum frítt. Ingvar Helgason hóf í vikunni sölu á nýjum Subaru Justy með eins lítra, þriggja strokka vél sem uppfyllir kröfur um bíla sem leggja má frítt í stæði í miðbæ Reykjavík- ur. Eyðsla bílsins í blönduðum akstri er 5,0 lítrar á hverja hundrað kílómetra og CO2 útblástur er að hámarki 120 g/km. Þrátt fyrir smæð er Justy örugg- ur og státar meðal annars af sex loftpúðum. Umhverfisvænn Subaru Nýr Justy leggur frítt Myndband sem virðist sýna Max Mosley, forseta FIA og Formúlu 1, í kynlífsathöfnum með fimm vændiskonum skekur nú bíla- heiminn hjóla á milli. Ekki hefur fengist úr því skorið hvort mað- urinn í myndbandinu sé í raun Mosley, og gæti myndbandið raunar hæglega verið ráðabrugg til að velta honum úr forseta- stólnum. Flengingar í formúlunni? Ford T 100 ára Stöðumælaverðir í Bretlandi hafa verið iðnir við kolann. Á síðustu sex árum hefur útgefnum sekta- miðum á ári fjölgað úr 800.000 í 3,5 milljónir árið 2007. Í pundum talið þýðir það 214 milljónir á ári, en ef stöðusektum útgefnum af lögregluþjónum er heildar- upphæðin 480 milljónir punda. Bretar duglegir að sekta Ekki svo að skilja að Volvo C30 sé einstaklega karlmannlegur bíll, en viljir þú gera hann enn kven- legri geturðu nú tekið gleði þína. Volvo býður nefnilega 20 skreyti- filmur til að heilmerkja bílinn. Sem er standa þær aðeins til boða í Svíþjóð, en vonandi munu Volvo eigendur um allan heim njóta þeirra fyrr en varir. Viltu kvenlegri Volvo C30? Þann 1. október árið 1908 rúllaði fyrsti Ford T-bíllinn af færiband- inu, fyrsti fjöldaframleiddi bíll- inn á viðráðanlegu verði. Í tilefni af aldarafmælinu verða mikil há- tíðarhöld í Bandaríkjunum í sumar. Viljir þú taka þátt í þeim skaltu skella þér á síðuna tparty2008.com.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.