24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 13
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 13
Kistan.is hefur sent 20 há-skólamönnum spurn-ingar er
varða dóm yfir
Hannesi Hólm-
steini Gissurarsyni
og þeir beðnir að
svara þeim. Í gær
voru 15 búnir að
svara spurningunum og voru allir
á því að dómurinn væri réttlátur.
Einstaka vildi að Hannes yrði rek-
inn úr Háskólanum en aðrir voru
á því að áminning myndi duga.
Gísli Gunnarsson prófessor
bendir á að Hannes hafi ekki ver-
ið dæmdur fyrir brot á hegning-
arlögum heldur í skaðabætur
(ekki sekt) fyrir brot á einkamála-
rétti. „Rektor getur því ekki beitt
ströngustu viðurlögum (t.d.
brottvísun úr starfi) í málinu, þá
ætti Hannes skaðabótarétt.“ Þeg-
ar háskólamennirnir voru spurðir
um söfnun til handa Hannesi ætl-
aði enginn þeirra að taka þátt í
henni og voru flestir á því að
söfnunin væri háðung fyrir
Hannes.
Auglýsing umbókinaStrákurinn
í röndóttu náttföt-
unum sem birtist í
24 stundum í gær
vakti aldeilis athygli. Síminn
stoppaði ekki á skrifstofu bókaút-
gáfunnar Veraldar því lesendur
vildu vita hvað þríhyrningur á
náttfötum drengsins þýddi. Á
skrifstofunni voru menn með
þetta á hreinu. Myndin var fengin
frá Auschwitz í Póllandi og sýnir
fanga í útrýmingarbúðum. Nas-
istar skráðu fanga með númerum
og þríhyrningi eða Davíðsstjörnu
eftir því hvaða flokki þeir til-
heyrðu og ástæðu þess að hann
hafði verið sendur til Auschwitz.
Og mennhaldaáfram að
hneykslast á þotu-
liðinu í ríkisstjórn-
inni. Vefurinn and-
riki.is sem haldið er úti af
frjálshyggjumönnum í Sjálfstæð-
isflokknum lætur þetta flakka:
„Fyrir nokkrum áratugum gekk
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Keflavíkurveginn á tveimur jafn-
fljótum til að mótmæla aðild Ís-
lands að NATO. Í gær sparaði
hún sér ferðina suður eftir og
flaug með einkaþotu af Reykja-
víkurflugvelli til Rúmeníu til að
heiðra sama NATO með nærveru
sinni.“ elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Munið þið eftir nýja hagkerfinu?
Þegar netbólan fór að blása út und-
ir nýliðin aldamót fóru einhverjir
úrtölumenn að fjasa um að það
væri nú kannski heldur lítil inni-
stæða fyrir verðmati sumra fyrir-
tækja, sér í lagi ýmissa tölvu- og
tæknifyrirtækja, sem höfðu sprott-
ið fram úr dimmum tölvuleikjasöl-
um og vaxið í veldisvís á alnæmum
heimsmarkaði alnetsins svokallaða.
Virði fyrirtækjanna var komið í
hæstu hæðir og umsvifin svo of-
boðsleg að jafnvel rykföllnustu fé-
lagsfræðikennarar voru orðnir
staffírugir ráðgjafar í örtækni og
hvers konar míkróflögum.
Hagkerfið var í blóma, svo mikl-
um blóma að nánast hvaða sprota
sem stungið var ofan í sólblóma-
maríneraðan jarðveginn fór fyr-
irhafnarlítið að vaxa af sjálfu sér.
Það þurfti lítið að vökva. Þó var
einn vandi sem lá eins og grá stein-
vala ofan á rjómabolluástandinu.
Tekjurnar létu á sér standa. Gjöldin
voru þó á sínum stað og uxu bara
og uxu eins og baunagrasið hans
Jóa.
Nýja hagkerfið
En þetta þótti ekki mikill vandi.
Spekingar netbólunnar smíðuðu
sér einfaldlega nýja kenningu. Nú
var komið nýtt hagkerfi. Nýja hag-
kerfið var að þeirra sögn ekki leng-
ur bundið af takmörkunum gamla
hagkerfisins. Nú var ekkert lögmál
að fyrirtæki þyrftu að hafa tekjur
umfram gjöld. Það gilti aðeins í
gamla hagkerfinu, í gömlum iðn-
og framleiðslufyrirtækjum. Svo-
leiðis rekstur var álitinn gamal-
dags. Mestu máli skipti að kon-
septið, eins og það var kallað, væri
gott. Ef konseptið var gott þá þyrfti
ekki að hafa áhyggjur af tekjum.
Þær myndu koma svo gott sem
sjálfkrafa í ofurbjartri framtíðinni.
Bókfærslukennarar í framhalds-
skólum fengu um leið skömm í
hattinn fyrir gamaldags hallæris-
hugsun. Helst þyrfti að senda þá
alla í endurmenntun. Fyrirtæki
voru ekki lengur rekin fyrir tekjur
af rekstri heldur fyrir hlutafé sem
sparifjáreigendur dældu gagnrýnis-
lítið inn í fyrirtæki nýja hagkerf-
isins. Restin var tekin að láni.
Brennsluhraði hlutafjár varð mik-
ilvægari mælieining heldur en
hefðbundin tekjuáætlun. Svo
sprakk netbólan með látum upp úr
aldamótum. Ástandið var svo bjart
að menn fengu ofbirtu í augun og
sáu ekki hætturnar sem blöstu við
þegar sólin hneig til viðar.
Gamaldags hagfræðilögmál
Munið þið eftir verðbréfagutt-
unum sem fylltu alla sjónvarps-
þætti og spáðu endalausum upp-
gangi verðbréfa? Að vísu voru alltaf
einhverjir afdankaðir hagsögu-
fræðingar að minna menn á að
efnahagskerfi heimsins gangi yfir-
leitt í nokkrum sveiflum. En boð-
berar nýja hagkerfisins gáfu lítið
fyrir svoleiðis speki. Nú væri ný tíð
og gamaldags hagfræðilögmál giltu
ekki lengur. Það var búið að taka
þyngdarlögmálið úr sambandi. Það
var komið nýtt fjármálakerfi. Pen-
ingar voru ekki lengur takmörkuð
auðlind. Í nýja fjármálakerfinu
þurfti bara útsjónarsama og um-
fram allt hugaða útrásarvíkinga til
að finna uppsprettuna og virkja
hana. Þá gætu menn eytt að vild.
Málið var að kaupa, ekki að borga.
Á morgun er annar dagur og allt
það.
Aldrei aftur Elton John
Munið þið Range Roverana?
Einkaþoturnar? Þyrlurnar? Og
sjálfan Elton John? Munið þið alla
kaupleigusamningana, raðgreiðsl-
urnar, fjármögnunarsamningana?
Eins og pönkararnir í gamla daga
treystu nýju fjármáladúddarnir
engum yfir þrítugu. Grandvarir
eldri bankamenn voru settir til
hliðar. Þeir kunnu ekki á nýja gló-
bal fjármálakerfið. Kunnu ekki
eyða eins og alvöru menn. Voru sí-
fellt að þrasa um debit þegar hægt
var einbeita sér að kredit. Aftur
settu sparifjáreigendur allt sitt
traust á unggíruga fjármálafursta.
Svo hrundi úrvalsvísitalan í Kaup-
höllinni. Svo féll gengið. Verð-
bólgudraugurinn sá að því loknu
um að brenna upp restina. Og
vextirnir, maður lifandi!
Leiðtogar þjóðarinnar eru nú í
einkaþotunni alræmdu á leiðinni
af Nató-fundi. Við bjóðum þau
velkomin heim.
Höfundur er stjórnmálafræðingur
Um bólur og bólusóttir
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
Ástandið var
svo bjart að
menn fengu
ofbirtu í aug-
un og sáu
ekki hætt-
urnar sem
blöstu við þegar sólin
hneig til viðar.
TB
W
A\
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
www.triumph.is
Krossgötur ehf
Suðurlandsbraut 50
(bláu húsunum við Fákafen)
www.gala.is • Sími 588 9925
Opið 11-18 • 11-16 lau.
Full búð af
flottum fötum
frá Pause Café
Str: 34-52
Nú hefst síðasta námskeiðið í fluguköstum í T.B.R húsinu
Gnoðavogi 1 6. apríl kl 20:00 á þessum vetri.
Kennt verður 6., 13., 20. og 27. apríl.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Verð kr 9.000 en kr 8.000 til félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm
STANGAVEIÐIMENN ATHUGIÐ
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH