24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 2
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is „Ég skil dómarana mjög vel,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi manns sem ákærður var fyrir nauðgun í Hótels Sögu-málinu svokallaða. Var maðurinn sýknað- ur í Héraðsdómi en Hæstiréttur sendi málið aftur heim í hérað. Þrír dómarar í Héraðsdómi Reykjavíkur viku í gær sæti í mál- inu en þeir töldu ummæli Hæsta- réttar fela í sér „fyrirmæli til dóm- ara málsins um það að álykta beri á tiltekinn veg af atvikum þess“ og bæta við að þetta hljóti að vera „í andstöðu við ákvæði 70. gr. stjórn- arskrárinnar þar sem tryggður er réttur manns til að fá fjallað um ákæru á hendur honum fyrir óháð- um og óhlutdrægum dómstóli.“ Þá gera dómararnir athugasemd við túlkun Hæstaréttar á hugtakinu ofbeldi og segja réttinn breyta túlk- un laganna. Það sé andstætt 69. grein stjórnarskrárinnar um að „engum skuli refsað nema brotinu sé lýst í settum lögum.“ Hæstiréttur var ósammála hér- aðsdómi um að ekki væri um of- beldi að ræða í málinu í skilningi 194 gr. hegningarlaga. Í málinu bar konan að maðurinn hefði ýtt henni inn í salernisklefa, dregið niður um hana sokkabuxur og nærbuxur og þvingað hana til kynmaka. Konan kvaðst sökum áfalls ekki hafa getað veitt mótspyrnu. Hæstiréttur taldi sömuleiðis að mat á því hvort manninum hefði átt að vera ljóst að konan vildi ekki eiga kynmök við hann yrði ekki reist á þeim grunni að hún hefði ekki verið honum andhverf áður en hún fór með honum inn á kvenna- salerni Hótels Sögu þar sem meint- ur glæpur var framinn. Hæstiréttur taldi heldur ekki hægt að horfa framhjá því að ákærði fór inn á kvennasalerni og beið þar framan við lokaðan klefa en ekki verði séð að hann hafi talið konuna hafa hvatt sig til þess. Úrskurðurinn verður samkvæmt upplýsingum 24 stunda kærður til Hæstaréttar sem annaðhvort getur staðfest hann eða lagt fyrir héraðs- dóm að taka málið fyrir aftur. Þá verða kvaddir til nýir dómarar. Deila um hvað telst ofbeldi  Þrír dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur sögðu sig frá Hótels Sögu-málinu í gær  Segja Hæstarétt brjóta gegn stjórnarskrá Hótel Saga Hér átti meint nauðgun sér stað. ➤ Hver sem hefur samræði eðaönnur kynferðismök við mann með því að beita of- beldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skem- ur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfj- um eða öðrum sambæri- legum hætti. 194. GR. HEGNINGARLAGA. 24stundir/Golli 2 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 23 Amsterdam 9 Alicante 22 Barcelona 18 Berlín 10 Las Palmas 22 Dublin 16 Frankfurt 10 Glasgow 12 Brussel 9 Hamborg 9 Helsinki 12 Kaupmannahöfn 8 London 15 Madrid 27 Mílanó 20 Montreal -2 Lúxemborg 8 New York 4 Nuuk 2 Orlando 20 Osló 10 Genf 8 París 14 Mallorca 19 Stokkhólmur 8 Þórshöfn 8 Léttir til sunnan- og vestanlands, en stöku él norðan- og austanlands. Norðan 5-10 m/s síðdegis. Frost 0 til 7 stig á morgun, en um frostmark sunnantil. VEÐRIÐ Í DAG 0 -1 -2 -2 0 Léttir til Fremur hæg norðlæg átt og víða bjartviðri, en stöku él norðaustan- og austanlands. Frost 1 til 8 stig, en um frostmark suðvestantil. VEÐRIÐ Á MORGUN -1 -2 -3 -1 -1 Hæg norðlæg átt „Við lýsum yfir vonbrigðum með að ráðuneytið skuli ekki, í úr- skurði sínum, taka efnislega af- stöðu til kröfu okkar heldur vísa henni frá,“ segir Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Umhverfisráðherra hefur stað- fest ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 4. október, um að framkvæmdir tengdar álveri Norðuráls í Helgu- vík, þurfi ekki í sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum. Landvernd kærði Skipulags- stofnun fyrir að beita ekki laga- heimild og óska eftir að umhverfis- áhrif framkvæmda vegna álversins yrðu metin sameiginlega. „Það kemur í ljós við rannsókn þessa máls að efnisleg afstaða til sameiginlegs mats var tekin um mitt ár 2006. Það er álit mitt að það sé viss formgalli á niðurstöðu Skipulagsstofnunar að það skyldi ekki tilkynnt þá og þegar að fram- kvæmdirnar færu allar í eitt sam- eiginlegt mat,“ segir Þórunn Svein- bjarnardóttir umhverfisráðherra. „Þó úrskurðurinn sé að lands- lögum, er hann ekki endilega mér að skapi. Ég hefði gjarnan viljað úr- skurða í öðru og betra lagaum- hverfi, en þessi niðurstaða áréttar mikilvægi þess að í stjórnarskrá Ís- lands sé umhverfiskafli þannig að náttúruvernd og umhverfi njóti verndar stjórnarskrárinnar rétt eins og atvinnufrelsi og eignarréttur.“ Umhverfisráðherra hyggst leggja fram frumvarp til breytinga á lög- um þannig að Skipulagsstofnun þurfi ávallt að taka afstöðu til sam- eiginlegs mats á umhverfisáhrifum tengdra framkvæmda. aegir@24stundir.is Landvernd gagnrýnir umhverfisráðherra vegna Helguvíkur Tók ekki efnislega afstöðu Lúðvík Bergvinsson, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, segir að enn sé stefnt að því að afnema stimpilgjöld með öllu á kjörtíma- bilinu. „Það verður hins vegar að huga að tímasetningunni. Nú um stundir búum við við talsverða verðbólgu og erfiðleika í hagkerfinu. Þrátt fyrir það kæmi mér ekki á óvart að stimpilgjöld yrðu afnumin með öllu fyrr en seinna.“ Lúðvík segir að sú gagnrýni sem komið hef- ur fram um að of langur tími sé þangað til stimpilgjöld vegna kaupa á fyrstu fasteign verði afnumin sé skiljanleg. „Hins vegar þarf bara þennan tíma til að leysa úr tækni- legum atriðum varðandi lagasetn- inguna. Það er mikilvægt að vel sé vandað til þeirrar vinnu svo að hlut- irnir séu sléttir og felldir. fr Stimpilgjöld af fyrstu fasteign afnumin 1. júlí Tíminn notaður í tæknilega útfærslu Í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær um útvistun á heilbrigðisþjón- ustu á Landspítala sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra meðal annars að efla ætti háskóla- hlutverk Landspítalans. Tók ráð- herrann fram að það mætti alveg gera með einkaaðilum en Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsókn- arflokksins, hafði áhyggjur af menntunarþættinum vegna aukins einkareksturs á deildum spítalans. Ráðherrann varði ákvörðun stjórnenda Landspítalans um að fela einkaaðilum að reka öldrunardeild á Landakoti. Þuríður Backman, þingmaður Vinstri grænna, sagði að menn væru að koma sér undan því að taka á launamálum almennt með því að bjóða rekstur öldr- unardeildarinnar út en erfitt hefur verið að halda henni opinni vegna manneklu. Sagði Þuríður málið lýsandi dæmi um þann þrönga fjárhag sem Landspítalinn byggi við. Efla á háskólahlutverkið Gert er ráð fyrir að uppbygging álvers fari rólega af stað og að efnahagslegra áhrifa fari ekki að gæta að ráði fyrr en 2009 og 2010. Forráðamenn Norðuráls telja framkvæmdina ekki valda óæski- legri þenslu í samfélaginu og sögðu það á framkvæmdaþingi í Reykjanesbæ í gær. Telja álver ekki valda þenslu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðbundið í þrjú ár, fyrir fjór- ar líkamsárásir gagnvart fyrrver- andi eiginkonu sinni og húsbrot. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 900 þúsund krónur í miskabætur. Árásirnar fjórar voru gerðar á heimili konunnar á árunum 2005 og 2006. Maðurinn ruddist í heimildarleysi inn á heimilið, sló konuna hnefahögg meðal annars í andlit, bak, axlir, hnakka og maga, dró hana á hárinu og sparkaði í hana. aí Dæmdur fyrir fjórar líkamsárásir STUTT ● Árétting Eigandi jeppa á stórum dekkjum sem mynd var af í blaðinu í gær, tengist á engan hátt mótmælum gegn bensínverði. Í fréttinni var talað um mótmæli jeppakalla sem leika sér á fjöllum. Bíleig- andinn er beðinn velvirð- ingar. ● Slegist í bíl Umferð um Sæbraut í Reykjavík stöðv- aðist í gær þegar kona féll út úr bíl eftir slagsmál við bíl- stjórann. Að sögn sjón- arvotta mátti litlu muna að vörubíll sem kom aðvífandi æki yfir konuna. Málið er í rannsókn lögreglu. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skrifstofuna undir 1 þaki

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.