24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 19

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 19
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 19 Þessar sósur eru ómissandi og af- ar létt að útbúa þær með grill- matnum: Agúrku-raita 1 agúrka 1 dós hrein jógúrt 2 msk. skyr 1 tsk. hvítlauksmauk 1/2 tsk. cumminduft 1-2 vorlaukar salt og pipar 1/2 tsk. engifer minta Agúrkan er rifin gróft niður í rif- járni, þá er hún söltuð og látin standa í nokkrar mínútur (vökvinn fer úr). Jógúrti, skyri, engifer, vor- lauk, hvítlauk og cummin blandað saman. Smakkað til með salti, pipar og skreytt með mintu. Satay-jarðhnetusósa Satay-sósa er ómissandi með grilluðum kjúklingi á grillpinnum. Öllu hráefni er blandað saman í matvinnsluvél. Kryddað til með fersku kóríander. 125 g hnetusmjör (chunky) 1 fínt saxaður skalottlaukur 1tsk. saxað engifer 1 kjarnhreinsaður chili-pipar 300 ml kókosmjólk eða sýrður rjómi safi úr 1/2 lime 1tsk. púðursykur 1tsk. sojasósa 1/4 búnt ferskt kóríander Létt sinnepssósa Góð með fiskréttum og glóðuðu grænmeti en líka með nautakjöti. 200 ml sýrður rjómi 1-2 tsk. sinnepsduft (eftir smekk) ¼ tsk. Dijon-sinnep smá hrísgjónaedik 1 saxaður vorlaukur salt og pipar 1 hvítlauksrif (má sleppa) dista@24stundir.is Einfaldar og léttar sósur með grillmatnum Nokkrar góðar grillsósur Grillaðar kjúklingabringur Með satay-sósu 24stundir/Golli Rósmarín hentar vel til að krydda marga grillrétti en nota má krydd- ið á ýmsan máta við matseldina. Flestir saxa rósmarín smátt til notkunar, en einnig má nota ferska rósmarínkvisti til að tylla saman kjötvefjum sem á að grilla eða þræða kjöt og grænmeti upp á þá eins og grillspjót. Þá nota margir rósmarínknippi sem pensla. Knippið er þá vætt í olíu og grill- metið penslað. Rósmarínteinar og penslar Litríkt og ferskt glóðað grænmeti er gott með öllum grillmat. Hvaða grænmeti sem er hentar á grillið, til dæmis sveppir, kúrbítur og paprika, og einnig ávextir eins og mangó og ananas. Þegar grænmet- ið hefur verið grillað í nokkrar mínútur er komið af því létt grill- bragð. Þá má taka það af grillinu, skera það í litla bita og smakka til með ólífuolíu, mangómauki, bal- samediki eða teryakisósu. Glóðað og ljúf- fengt grænmeti Útbúa má skemmtilegan og líf- legan grillmat fyrir börn úr ein- földu hráefni með lítilli fyrirhöfn. Smápítsur með pepperoni og ólíf- um fyrir augu; ávaxtagrillpinna með sykurpúðum og síðast en ekki síst, það sem helst vekur lukku og eftirtekt: kolkrabbapylsur. Þær er auðvelt að útbúa, skerið einfald- lega í pylsuna inn að miðju nokkra skurði og grillið eins og venjulega. Kolkrabbapylsur vekja lukku

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.