24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 10

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir Sumar 2008Fífunni í Kópavogi 4.–6. apríl 2008 Upplifðu sumarið með okkur á sýningunni í Fífunni 4.-6. apríl! Kynningar, fræðsla og skemmtun fyrir alla fjölskylduna Sýningin er opin sem hér segir: Föstudag 4. apríl kl. 16:00 – 19:00, laugardag 5. apríl kl. 11:00 – 19:00 og sunnudag 6. apríl kl. 11:00 – 18:00 Tugir sýnenda, hundruð áhugaverðra hluta og þúsundir hugmynda Allir gömlu góðu réttirnir og frábærar nýjungar Komdu til okkar, taktu með eða borðaðu á staðnum Alltaf góð ur! Kjúklingastaðurinn Suðurveri Nú er orðin n stór Ingibjörg Sólrún sagðist mjög ánægð með fundinn í Búkarest. „Það er því ljóst að það er stað- fastur vilji manna hér að sýna fulla einurð í Afganistan og taka á sig skuldbindingar til næstu ára. Það sem er gott við fundinn er að það er verið að ræða það sem vel hefur tekist í Afganistan en það er líka verið að ræða það sem upp á vant- ar,“ segir Ingibjörg. Hún segir einkum þrennt hafa verið nefnt: „Í fyrsta lagi spilling í stjórnkerfinu í Afganistan, sem krafist er að Afganar taki á. Í öðru lagi er viss skortur á samhæfingu hjá alþjóðaliðinu sem þarna er; milli einstakra ríkja og milli Sam- einuðu þjóðanna og NATO. Þetta er eitthvað sem þessar alþjóða- stofnanir verða að takast á við. Í þriðja lagi er skortur á ákveðnum Eftir Egil Ólafsson í Búkarest „Það er mikill samhljómur með fólki um nauðsyn þess að halda áfram að styðja Afganistan og hvika hvergi í þeirri vinnu sem er framundan. Það hefur náðst mik- ill árangur en það má ekki hætta í miðjum klíðum, um það eru menn einróma á þessum fundi,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráð- herra sem í gær sat sérstakan fund um málefni Afganistans á leið- togafundi NATO í Rúmeníu. Mikilvæg ferð Ingibjargar Geir telur að ferð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð- herra til Afganistan í síðasta mán- uði hafi verið mikilvæg og nauð- synleg skilaboð af Íslands hálfu varðandi þátttöku í Afganistan. tengslum milli alþjóðasamfélags- ins, milli stjórnvalda í Afganistan og almennings í Afganistan. Stundum miðast aðstoðin meira við pólitíska hagsmuni aðildar- ríkjanna en fólks í Afganistan. Menn eru gagnrýnir á sjálfa sig og stjórnvöld í Afganistan. Menn leggja áherslu á að Sameinuðu þjóðirnar verði sýnilegar í landinu og þær verði meira leiðandi en þær hafa verið.“ Hvika ekki í Afganistan  Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samstöðu hafa verið um málefni Afganistans á NATO-fundi í Rúmeníu Leiðtogar Geir H. Haarde forsætisráð- herra með Bush Bandaríkjaforseta,God- manis forsætisráðherra Lettlands og Le- terme, forsætisráðherra Belgíu. ➤ Í dag eru um 47.000 hermennog friðargæsluliðar í Afgan- istan frá 40 þjóðum. ➤ Erlent herlið í Afganistan erþar í umboði Sameinuðu þjóðanna. FJÖLMENNUR HER NATO hefur staðfest að Georgíu og Úkraínu verði um sinn ekki boðin aðild að bandalaginu, en ákvörðunin verður tekin til endur- skoðunar í desember næstkom- andi. Ríkjunum var þó gefið vilyrði um aðild síðar meir. Makedón- ímönnum verður heldur ekki boð- in aðild vegna deilna þeirra við Grikkja um nafn á ríkinu. Leiðtog- ar NATO-ríkjanna samþykktu hins vegar allir á fundi sínum í Búkarest í Rúmeníu að Albaníu og Króatíu verði veitt aðild. George Bush Bandaríkjaforseti talaði fyrir því að Úkraínu og Georgíu yrði veitt aðild, en vegna andstöðu bæði Þjóðverja og Frakka varð ekkert úr því. atlii@24stundir.is Albanía og Króatía gerast aðilar að NATO Úkraína, Makedónía og Georgía fá ekki aðild Kínversk stjórnvöld hafa tilkynnt að tíbeska höfuðborgin Lhasa verði aftur opnuð fyrir erlendum ferðamönnum 1. maí næstkom- andi. Lhasa var lokuð fyrir ferðamönnum og fréttamönn- um eftir að mótmæli gegn Kínastjórn blossuðu upp í Tíbet í síðasta mánuði. Ferðamenn þurfa sem fyrr sér- staka heimild frá kínverskum yf- irvöldum til að ferðast til Tíbets. Umferð bæði kínverskra og er- lendra ferðamanna til Lhasa og Tíbets hefur aukist gríðarlega frá því að umdeild lestarleið var lögð til héraðsins árið 2006. aí Góð tíðindi fyrir ferðalanga Lhasa opnuð aftur í maí Til átaka kom milli lögreglu og íbúa í Kristjaníu í Kaupmanna- höfn í fyrrinótt. Ólætin hófust eftir að lögregla hugðist handtaka eiturlyfjasala og skaut hund sem hafði verið sigað á hana. Um hundrað grímuklæddir menn fóru þá um Kristjánshöfn, brutu rúður og kveiktu elda. Mikil reiði ríkir nú meðal Krist- janíubúa vegna hundsdrápsins. aí Óeirðir í Kristjaníu Reiði vegna hundsdráps

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.