24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 15

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 15
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 15 Ríkulegur staðalbúnaður • Galvaníseruð grind • Evrópskar þrýstibremsur • Radial dekk / 13” álfelgur • Góð fjöðrun, hentar vel á ísl. vegum • Útdraganleg trappa við inngang • Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk) • 50 mm kúlutengi • 220v tengill (blár skv. reglugerð) • Útvarp með geislaspilara, hátalarar inni og úti • Upphitaðar 12 cm springdýnur • Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými • Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic • SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti • 2 gaskútar • Gasviðvörunarkerfi • Öflug Truma combi 4 miðstöð m/heitu vatni • Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu • Skyggðir gluggar • 2 feta geymsluhólf • Stórt farangurshólf • Voldugir öryggisarmar fyrir þak og tjald • 1 x færanlegt lesljós með viftu • 110 amp rafgeymir • Heitt og kalt vatn, tengt • Rafmagnsvatnsdæla • 86 lítra vatnstankur • Klósett með hengi Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla, fylgihluti og margt fleira. Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík • Sími 551 5600 Fax 551 5601 • www.utilegumadurinn.is CD spilari/ útvarp vatn tengt heitt/kalt Fjöðrun f. ísl. aðstæður Evrópskar Þrýstibremsur Upphitaðar lúxusdýnur 12 cm Lau kl. 10.00-17.00 Sun kl. 12.00-16.00 Rockwood Fellihýsin 2008 Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Rockwood fellihýsum helgina 5.-6. apríl í verslun okkar að Fosshálsi 5-7. Rockwood fellihýsin eru glæsileg og sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum. Með evrópskum þrýstibremsum, galvaniseraðri grind og hlaðin staðalbúnaði. Rockwood fellihýsi Verð frá 1.398.000 kr. Í Bretlandi eru fleiri konur en karlar á aldrinum 18 til 45 ára milljónamæringar og áætlað er að árið 2020 verði meirihluti breskra milljónamæringa kvenkyns, að því er kemur fram í skýrslu The Eco- nomist fyrir Barclays-bankann. Leiða má líkur að því að íslenskar konur séu ekki eftirbátar breskra kvenna, að sögn Þórönnu Jóns- dóttur hjá Auði Capital. „Íslenskar konur mennta sig ekki minna en breskar konur. Þótt fjármagnseign kvenna hér á landi hafi lítið verið rannsökuð er at- vinnuþátttaka kvenna hér mjög mikil miðað við önnur Evrópu- lönd og þess vegna má gera ráð fyr- ir því að konur eigi sjálfsaflafé í meiri mæli en áður. Áður urðu konur ríkar af því að þær erfðu fé, við hjónaband eða skilnað,“ segir Þóranna. Á námstefnu Samtaka atvinnu- lífsins, Félags kvenna í atvinnu- rekstri, viðskiptaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins í síðustu viku lögðu fulltrúar Auðar Capital áherslu á að konur þyrftu að taka þátt í fjárfestingum, bæði þegar um er að ræða eigið sjálfaflafé og sam- eiginlegt sparifé þeirra og maka þeirra. „Giftar konur taka sjaldnar ákvörðun um hvernig farið er með sparifé en karlarnir. Ef konur virkja fjármagnið sjálfar færast líka völd og ákvörðunartaka til þeirra,“ bendir Þóranna á. Hún segir fjölbreytni skipta máli fyrir fjármálageirann. „Ef konur endast ekki í fjármálageiranum vegna þess að þeim hugnast ekki menningin og starfsumhverfið sem þar skapast þá fer fjármálageirinn á mis við mikla þekkingu og hæfni. Nálgun kvenna og viðhorf til fjár- málaþjónustu er gjarnan öðruvísi en karla og það þarf að virkja þær til þátttöku.“ ingibjorg@24stundir.is Áætlað að konur verði meirihluti breskra milljónamæringa 2020 Konur hér engir eftirbátar Barcleys banki auðkonur skáka breskum auðmönnum. Í Vegvísi Landsbankans segir að búast megi við að vöru- skiptajöfnuður snúist við og afgangur myndist þegar líður á árið. Vegvísirinn vitnar í upp- lýsingar Hagstofu Íslands um að verulegur vöxtur sé í út- flutningi áls. Áhrifanna sé farið að gæta í hagtölunum og von sé á áframhaldandi vexti af þeim sökum á næstu mán- uðum. Jafnframt er talið líklegt að nýleg lækkun gengis krón- unnar leiði til minni innflutn- ings en ella á næstunni. ibs Viðsnúningur framundan Þegar Joyti De-Laurey var ritari í Goldman Sachs fjárfesting- arbankanum í Englandi stal hún um 600 milljónum króna á fjög- urra ára tímabili án þess að yf- irmenn yrðu þess varir. Hún hafði umsjón með ávís- anaheftum þeirra og falsaði und- irskriftir. Hún keypti fasteignir, bíla og skartgripi auk þess sem hún gaf fé til velgerðarmála. Í viðtali við Mail on Sunday segir De-Laurey, sem er nú laus úr fangelsi, að upp um sig hafi komist þegar hún gat ekki stillt sig um að stela rúmlega 20 millj- ónum króna rétt áður en hún hugðist flytja úr landi. ibs Stórsvindlari Húsið sem Al-Walid Talal prins ætlar að láta reisa í Jedda í Sádi-Arabíu verður 1.600 metra hátt eða tvöfalt hærra en hæsta bygging heims, Burj Dubai. Áætlað er að byggingin í Jedda kosti yfir 700 milljarða íslenskra króna. Þegar byggingin hefur náð vissri hæð þarf að fljúga með bæði efni og iðnaðarmenn í þyrlu. Turninn þarf að þola bæði eyðimerkurhita og frost. Tveir minni turnar verða látn- ir styrkja þann stóra vegna mikilla hafsvinda. ibs 1.600 m turn

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.