24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 35

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 35
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 35 Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur heida@24stundir.is Fyrirtækið Live Nation var stofnað í Beverly Hills í Kaliforníu árið 2005. Það sérhæfir sig í skipulagn- ingu tónleika, íþróttaviðburða og annarra stærri mannfagnaða. Hinn 30. september átti fyrirtækið 117 tónleikastaði, þar af 75 í Banda- ríkjunum og 42 annars staðar í heiminum. Með þekktari tónlist- arhátíðum sem fyrirtækið kemur að er Glastonbury-hátíðin á Eng- landi og bandaríska þunga- rokkshátíðin Ozzfest, en einnig á Live Nation nokkra af þekktari tónleikastöðum Lundúnaborgar, þar á meðal London Astoria og Brixton Academy, ásamt því að reka Wembley Arena. Peningarnir virðast nægir Í október árið 2007 tilkynnti Live Nation að samningar hefðu náðst við Madonnu eftir að hún yfirgaf útgáfufyrirtæki sitt Warner. Hinn 31. mars síðastliðinn gerði Live Nation 12 ára samning við írsku rokksveitina U2 og nú, nokkrum dögum síðar, hefur fyr- irtækið bætt Jay Z við, en gengið verður frá 150 milljóna dollara samningi við hann í vikunni. Þetta ku vera stærsti samningur sem Live Nation hefur gert við tónlistar- mann, jafnvel enn stærri en fyrr- nefndir samningar við Madonnu og U2. Svo virðist sem Live Nation fari nýjar leiðir í kynningu á lista- mönnum sínum. Þannig ætlar Live Nation að sjá um fatalínu, sölu- varning, tónleika og hljómplötur Jay-Z, og á greinilega næga pen- inga til að ýta Jay-Z fram á við og upp. Öruggt dæmi Á móti kemur að Live Nation fær hlut af allri sölu á efni sem tengist Jay-Z á einn eða annan hátt, hvort sem um aðgöngumiða á tónleika, plakat, bol eða geisladisk er að ræða. Fréttir herma að fyr- irframgreiðsla Jay-Z sé um 60 milljónir dollara og því greinilegt að Live Nation telur nokkuð víst að markaðsátakið komi til með að virka vel. Jay-Z Hefur ástæðu til að brosa þessa dagana. Live Nation gerir risasamning við Jay-Z Jay-Z fær 150 milljónir dollara Umboðsfyrirtækið Live Nation fer nýjar leiðir í kynningu á tónlist- armönnum með samn- ingum sínum. Jay-Z, U2 og Madonna eru öll á mála hjá fyrirtækinu. ➤ Með minnkandi geisla-diskasölu eru tekjur af sölu- varningi sífellt hærri. ➤ Flestar hljómsveitir selja bolimeð myndum. ➤ Mínus fór ótroðnar slóðir ogseldi belti og G-strengi. SÖLUVARNINGUR „Við erum að tala um einhverja alvirtustu plötusnúða í heimi. Þetta verður ekkert grín!“ segir Jón Atli Helgason hjá viðburðarfyr- irtækinu Jóni Jónssyni. Í samvinnu við Techno.is stendur fyrirtækið að tónleikum plötusnúðanna Carl Cox og Fedde le Grand á Broadway þann 23. apríl næstkomandi. Sá síðarnefndi er Íslendingum að góðu kunnur eftir heimsókn sína á Klakann í fyrra, en kappinn þeytti skífum á Broadway við mikinn fögnuð viðstaddra. Þetta mun hins vegar vera fyrsta heimsókn Carls Cox til landsins, en hann hefur verið í fremstu röð plötusnúða í þrjá áratugi og unnið með mönn- um á borð við Fatboy Slim. „Fedde er sá heitasti í dag, það er engin spurning. En sá reyndasti og besti er Carl Cox. Hann er bú- inn að vera á topp tíu lista yfir bestu plötusnúðana hjá virtustu Dj-tímaritum í heimi í 25 ár og oftar en einu sinni verið á toppn- um,“ segir Jón Atli og bætir við að erfitt sé að fá Carl til landsins. „Við fengum þetta í gegn af því að hann vill endilega koma til Ís- lands. Það skemmtilega við þetta er að búið var að bóka þá báða sinn á hvora tónleikana, en þegar þeir fréttu hvor af öðrum vildu þeir sameina þetta.“ Miðasala hefst í dag á midi.is og í versluninni Jack & Jones Kringl- unni. halldora@24stundir.is Plötusnúðarnir Carl Cox og Fedde Le Grand trylla lýðinn á Íslandi Fedde Le Grand Þeytir skífum á Broad- way síðar í mánuðinum. Dansveisla á Broadway Það varð uppi fótur og fit á tökustað nýju James Bond mynd- arinnar, Quantum of Solace, á dögunum þegar Carlos Lopez, bæjarstjóri smábæjar í Chile, réðst inn á tökustað og hellti úr skálum reiði sinnar yfir kvikmyndagerð- arfólkið. Fréttastofa Reuters grein- ir frá því að að lokum hafi lögregla þurft að handjárna bæjarstjórann og flytja hann á brott. Ástæðurnar fyrir reiðikasti Lopez munu hafa verið þær að honum fannst lög- reglufylgd tökuliðsins leggja þungt farg á íbúa bæjar síns. Einnig líkaði honum það illa að bærinn væri notaður sem staðgengill fyrir smábæ í nágrannalandinu, Bólivíu. Lopez sagði í viðtali við fjölmiðla að nærvera lögregluliðsins hefði vakið upp óþægilegar minningar um ógnarstjórn Augustus Pinoc- hets á áttunda og níunda áratugn- um. vij Bæjarstjóri mót- mælir James Bond Sonur Rod Stewart, Sean Stewart, hefur verið kærður fyrir að stela bíl frá föður fyrrverandi kærustu sinnar, Caleigh Peters. Hann sá bílinn með lyklum í fyrir utan heimili föður hennar, kvik- myndaframleiðandans Jon Pet- ers, og tók hann þaðan. Jon, fræg- astur fyrir að framleiða Flashdance og Superman Ret- urns, kærði stuldinn en Sean neitar öllu og segir kærustuna hafa lánað sér bílinn. re Stal bíl pabba fyrrverandi KJÓLAR 1590 EKKI MISSA AF! SMÁRALIND – KRINGLUNNI VIÐ HLIÐINA Á VERO MODA Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510 HÚ SG AG NA - L AG ER SA LA HÚSGAGNALAGERSALA Opnunartími mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00 70% afsláttur LEÐUR SÓFASETT TAU SÓFASETT LEÐUR HORNSÓFAR TAU HORNSÓFAR TUNGUSÓFAR TUNGUHORNSÓFAR STAKIR SÓFAR BORÐSTOFUSTÓLAR BORÐSTOFUHÚSGÖGN ELDHÚSBORÐ RÚMGAFLAR JÁRN RÚM 120-150-180X200                       Allt að Ertu að flytja, láttu fagmenn sjá um verkið fyrir þig Örugg og trygg þjónusta

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.