24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 21

24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 21
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 21 Kokkurinn orðljóti sem má segja að sé jafn þekktur fyrir að bölva og elda góðan mat er nú kominn aftur á skjáinn í þátt- unum Hell’s Kitchen. Í þáttunum ræður Gordon Ramsay ríkjum og er síður en svo ætíð ánægður með hópinn sem honum er ætlað að þjálfa, en keppt er í eldamennsku og loks stendur einn uppi sem sig- urvegari. Efnilegur fótboltamaður Ramsay fæddist í Skotlandi en ólst upp í Englandi eftir að for- eldrar hans fluttu til Stratford- upon-Avon. Hann þótti efnilegur fótboltamaður á yngri árum og var um tíma á báðum áttum hvort hann ætti að velja sér feril á fót- boltavellinum eða fyrir framan eldavélina. Hann spilaði með Ox- ford United en í einum leik liðsins tók útsendari Glasgow Rangers eftir Ramsay og komst hann á samning hjá liðinu aðeins 15 ára gamall. Þremur árum síðar ákvað hann hins vegar að gefa atvinnu- mennskuna upp á bátinn og sneri sér alfarið að eldamennskunni. Eldskírn í Frakklandi Ramsay hóf þjálfun sína hjá Marco Pierre á veitingastaðnum Harvey’s, en vann síðan á Le Gavroche við hlið Albert Roux. Þá starfaði hann þrjú ár í Frakklandi þar sem hann hlaut eldskírn og öðlaðist mikla reynslu í hefðbund- inni franskri matargerð. Gordon rekur nú veitingastaði um allan heim, fjölda staða í London svo og veitingastaði í Japan, Bandaríkj- unum, Prag, París og Amsterdam. Auk þess hafa komið út sex upp- skriftabækur eftir Ramsay svo og ævisaga hans Humble Pie þar sem Ramsay segir hreinskilnislega frá erfiðri æsku sinni og baráttunni upp metorðastigann. Kona Ramsay heitir Tana og eiga þau fjögur börn. maria@24stundir.is Gordon Ramsay á sér margar hliðar Auðmjúk baka orðljóta Skotans Ramsay Þykir orðljótur með af- brigðum í sjónvarpsþáttum sínum og jaðra við að vera dónalegur. Það getur verið skemmtilegt að prufa ýmiss konar smárétti og þessi hér er sannarlega öðruvísi. Kaupa skal Chorizo-pylsur og skera í hæfilega stóra bita. Bitarnir eru síðan settir í eldfast mót og þremur matskeiðum af vodka dreift yfir og kveikt í. Loks eru sett- ir kokteilpinnar í flamberuðu bit- ana og þeir bornir fram með öðr- um smáréttum eins og t.d. öðru kjöti, ostum, brauði og sultu. Flamberaðar Chorizo-pylsur Matarsmekkurinn breytist eftir því sem fer að vora og fólk fer að langa í eitthvað léttara. Parmaskinka vaf- in utan um melónubita er létt og gott snarl sem auðvelt er að útbúa og slíkt getur einnig sómt sér vel sem forréttur. Þá er ekki síðra að vefja parmaskinku utan um ferskjubita eða bera fram með fíkj- um. Gott er að stinga stöngli í bit- ana til að auðveldara sé að veiða þá upp og borða. Parmaskinka með fíkjum Góður bolli af ilmandi Rúbín kaffi, hvar sem er, hvenær sem er. Suður-amerísk blanda með örlitlum keim frá Afríku. Uppistaðan er Brasilíukaffi en auk þess er í blöndunni kaffi frá Kólumbíu, Kosta Ríka og Kenýa. Hágæðablanda frá Kólumbíu og Kenýa ásamt dálítilli viðbót frá Brasilíu og Kosta Ríka. Kaffið er valið af mikilli alúð til að ná fram því besta. Milt eðalkaffi frá Kolumbíu, Kosta Ríka og Brasilíu. Hressandi fyllt bragð og ferskur ilmur gerir það að frábærum drykk sem gott er að njóta. Rúbín kaffi er unnið úr völdum hágæða kaffibaunum frá hásléttum þekktustu kaffisvæða heims, Kólumbíu, Brasilíu, Kosta Ríka, Mið-Ameríku og Afríku. Umhyggja og sérþekking við brennslu, mölun og pökkun skilar ferskum ilmi kaffisins, einstakri bragðfyllingu og ljúfum eftirkeimi alla leið í bollann þinn. Njóttu þess. Ilmurinn, keimurinn, áhrifin...

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.