24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 23
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 23
Margrét Þóra Þorláksdóttir og
Andrea Guðmundsdóttir, mat-
ráðar í Listaháskóla Íslands, eiga
heiðurinn af þessari uppskrift að
salati með svínalundum sem gleð-
ur sennilega þá er finnst lítill mat-
ur í salatskammti. Uppskrift að
þessu salati hefur m.a. birst í bóka-
klúbbnum „Af bestu lyst“.
Sumarlegt salat
(aðalréttur fyrir fjóra)
½ dl þurrt sérrí
½ dl sojasósa
4 tsk. engiferrót (fersk og rifin)
3 hvítlauksrif (marin)
400 g svínalundir
½ dl Hoi-sin-sósa
2 msk. púðursykur
2 msk. hvítvínsedik
1 msk. ólífuolía
1 tsk. sesamolía
2 rauðlaukar
1 msk sesamfræ (ristuð)
2 pokar salatblanda
4 ferskjur
Blandið saman sérríi, sojasósu,
engifer og hvítlauk. Takið frá ½ dl
af leginum og geymið þar til síðar.
Setjið lundina í plastpoka og
hellið afganginum af leginum þar í.
Lokið pokanum og látið löginn
blandast kjötinu vel. Látið bíða í
kæli í a.m.k. eina klukkustund.
Þerrið marineringuna af kjötinu
og grillið í 10-12 mínútur á opnu
grilli.
Blandið nú saman marinering-
unni, sem var lögð til hliðar í upp-
hafi, Hoi-sin-sósu, púðursykri,
ediki og olíu og hitið að suðu. Bæt-
ið sesamolíu saman við. Takið af
hitanum.
Skerið kjötið í strimla og bland-
ið saman við salatblönduna í stóra
skál eða á fat. Skerið lauk í þunnar
sneiðar og dreifið yfir ásamt
sesamfræjum. Dreypið sósu yfir.
Skerið ferskjur í þunna báta og
stráið yfir að síðustu. Berið afgang
af sósunni fram með salatinu.
dista@24stundir.is
Sumarlegt salat með svínalundum
Létt en matarmikið
24stundir/Ásdís
Matarmikið og bragðgott
Undir austurlenskum áhrifum
Ef leitað er að léttri og þægilegri
máltíð þá er fondú alltaf góður
kostur, sérstaklega þegar fólki er
boðið í mat. Það þarf ekki mikinn
undirbúning fyrir fondú, heldur er
nóg að kaupa kjöt og skera niður
grænmeti. Svo geta gestirnir borð-
að á sínum hraða og hver og einn
steikir sitt kjöt eftir smekk. Í eft-
irrétt er tilvalið að nota fondúpott-
inn áfram en kannski með jarð-
arber og súkkulaði í það skiptið.
Þægileg og létt
máltíð
Portobello-sveppir eru mat-
armiklir og góðir sveppir sem
henta vel sem meðlæti en einnig
sem aðalréttur.
Gott er að blanda saman olíu, bal-
samediki, púðursykri og timían-
kryddi og láta sveppina liggja í
blöndunni í nokkrar mínútur áður
en þeir eru steiktir eða grillaðir. Þá
er geitaostur tilvalinn með til fyll-
ingar, kryddað með maldonsalti og
nýmöluðum pipar og skreytt með
ferskum kryddjurtum.
Portobello-sveppir
Börn verða fljótt þreytt á því að fá
sama nestið með sér í skólann dag
eftir dag og stundum þarf að prófa
eitthvað nýtt og venja sig af því að
setja alltaf brauð í boxið. Prófið
tortillakökur í staðinn með rjóma-
osti, grænmeti og skinku. Þá má
líka setja ýmislegt annað á flatköku
en ost og hangikjöt; hummus og
gúrku, jurtakæfu og tómata eða
rjómaost með grænmeti og góðri
skinku.
Fjölbreyttara
nesti í skólann
*Gildir a›eins ef panta›
er fyrir meira en 4.000 kr.
Fyrir 5 e›a 500!
Sómabakkarnir
eru tilvaldir í hvers
konar veislur, t.d.
í afmælisbo›i›,
starfsmannapart‡i›
e›a hvenær sem
5 e›a fleiri koma
saman.
Nánari uppl‡singar á somi.is
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
9. apríl
Börn og uppeldi
Auglýsingasímar:
Katrín Laufey 510 3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510 3722
kolla@24stundir.is
Í sérblaði 24 stunda um börn og uppeldi sem kemur út miðvikudaginn 9. apríl
verður fjallað um tómstundir barna þegar skóla lýkur, hvað er í boði fyrir þau í
skólafríinu og hvað er þeim fyrir bestu. Þá verður heilsa þeirra sett í forgang, bent á
góð ráð gegn offitu og hvernig spyrna má gegn henni með góðri hreyfingu og réttu
mataræði.
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni
Hafðu samband og fáðu gott pláss
fyrir auglýsinguna þína